Morgunblaðið - 09.03.2010, Síða 1
ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2010
íþróttir
Körfubolti Keflavíkurkonur lentu í miklu basli með Snæfell en unnu í framlengingu og mæta
Hamri í undanúrslitum. Haukar unnu Grindavík aftur og mæta KR-ingum. 4
Íþróttir
mbl.is
KR-INGAR höfðu
í nógu að snúast í
gærkvöld. Þeir
fengu framherj-
ann Guðjón Bald-
vinsson lánaðan
frá GAIS í Sví-
þjóð og sam-
þykktu fé-
lagaskipti
framherjans Guð-
mundar Péturs-
sonar yfir í Breiðablik.
Það hafði legið í loftinu um skeið
að Guðjón kæmi aftur til KR, eins og
fram hefur komið í Morgunblaðinu,
en hann fór frá KR til sænska félags-
ins eftir tímabilið 2008. Þá hafði
Guðjón aðeins verið eitt ár í röðum
Vesturbæinga en til þess tíma spil-
aði hann með Stjörnunni. Guðjón
skoraði 9 mörk í 21 leik með KR í úr-
valsdeildinni 2008.
„Það eru aðeins formsatriði eftir
varðandi félagaskiptin en við höfum
náð fullu samkomulagi við Svíana
og Guðjón verður hjá okkur út þetta
tímabil,“ sagði Rúnar Kristinsson,
yfirmaður knattspyrnumála hjá KR,
við Morgunblaðið í gær.
Guðmundur samdi við Blika
Guðmundur Pétursson skrifaði
seint í gærkvöld undir þriggja ára
samning við Breiðablik en hann
hafði fyrr um kvöldið hafnað því að
ganga til liðs við Íslandsmeistarana í
FH. Bæði félögin höfðu náð sam-
komulagi við KR um félagaskiptin
og valið var því í höndum Guð-
mundar.
Hann var í láni hjá Breiðabliki frá
KR seinni hluta síðasta tímabils og
skoraði þá 4 mörk í 10 leikjum í úr-
valsdeildinni. Þar að auki skoraði
hann sigurmörk liðsins í 8-liða úr-
slitum og undanúrslitum bikar-
keppninnar og varð bikarmeistari
með liðinu. vs@mbl.is
Guðjón í KR
og Guðmund-
ur til Blika
Guðjón
Baldvinsson
GUÐNÝ Björk
Óðinsdóttir,
landsliðskona í
knattspyrnu og
leikmaður Kristi-
anstad í Svíþjóð,
er óbrotin sam-
kvæmt nið-
urstöðum úr
myndatökum
sem hún fékk í
gær. Guðný
meiddist í leik Íslands og Svíþjóðar
í Algarvebikarnum á dögunum eftir
að hafa leikið afar vel þar og gegn
Bandaríkjunum í fyrsta leik móts-
ins. Óttast var að hún væri með
brotið bein í fæti. Nú er hinsvegar
allt útlit fyrir að Guðný nái að leika
með landsliðinu gegn Serbíu og
Króatíu í undankeppni HM í lok
mánaðarins. vs@mbl.is
Guðný Björk
er óbrotin
Guðný Björk
Óðinsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægðir Leikmenn Skautafélags Akureyrar gátu brosað breitt í gærkvöld eftir að hafa sigrað Björninn, 3:2, í fjórða úrslitaleik liðanna um Íslandsmeist-
aratitilinn í íshokkí. Björninn hefði orðið Íslandsmeistari með sigri en nú er staðan 2:2 í einvígi liðanna og úrslitin ráðast á Akureyri annað kvöld. »2
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
TIL greina kemur að Snorri Steinn
Guðjónsson, landsliðsmaður í hand-
knattleik og leikmaður þýska stór-
liðsins Rhein-Neckar Löwen, leiki
með danska liðinu AG frá Kaup-
mannahöfn á næsta keppnistímabili.
Þýska dagblaðið Mannheimer
Morgenpost hefur þetta eftir Tors-
ten Storm, framkvæmdastjóra RN
Löwen, um liðna helgi. Sterk teng-
ing er á milli RNL og AG, þar sem
danski skartgripasalinn Jesper
Nielsen er fjárhagslegur bakhjarl
beggja félaga.
Snorri Steinn gekk til liðs við RN
Löwen í september í haust frá
danska liðinu GOG Svendborg, eftir
að aðalleikstjórn-
andi þýska liðs-
ins, Pólverjinn
Grzegorz Tkac-
zyk, meiddist illa
og ljóst að var að
hann yrði mán-
uðum saman frá
keppni. Snorri
gerði aðeins 10
mánaða samning
við Löwen sem
lýkur í júní í sumar.
Mikið og vaxandi samstarf
Storm segir í viðtalinu við Mann-
heimer Morgenpost að Löwen ætli
sér ekki að hafa mikið fleiri en 15
leikmenn í sínum herbúðum á næstu
leiktíð. Framhaldið hjá Snorra sé
óljóst er vel komi til greina að hann
gangi í raðir AG í Kaupmannahöfn.
Milli félaganna sé mikið og vaxandi
samstarf og ekki sé útilokað að fleiri
leikmenn gangi á milli félaganna s.s.
spænski línumaðurinn Carlos Prieto
sem nú er í herbúðum Löwen. Þá
hefur því verið fleygt að félögin geti
einnig skákað leikmönnum á milli
sín á komandi árum eftir þörfum.
Ljóst er að fyrrgreindur Nielsen
skartgripasali ætlar að byggja upp
sterkt lið í höfuðstað Danmerkur.
Sterkt lið í uppsiglingu
AG er nú langefst í dönsku B-
deildinni og ekkert virðist koma í
veg fyrir að það leiki í úrvalsdeild á
næstu leiktíð. Auk sterkra leik-
manna sem eru fyrir í herbúðum
þess s.s. eins og Lars Jörgensen þá
hefur félagið keypt Mikkel Hansen
frá Barcelona fyrir komandi leiktíð,
spænsku örvhentu skyttuna Cristi-
an Malmargo Viana frá Portland og
línumanninn Rene Toft Hansen frá
Kolding. Þá er ljóst að eftir að sam-
eining AG og FCK mun eiga sér
stað í sumar þá fari bestu bitarnir
FCK-liðsins, s.s. markverðirnir
Steinar Ege og Kasper Hvidt til AG
og ekki hefur verið útilokað að Arn-
ór Atlason flytji sig á milli félaga.
Stefna Nielsens er sú að eiga
stóran hlut í tveimur af sterkustu
handknattleiksliðum Evrópu innan
fárra ára. Þótt víða kreppi að um
þessar mundir virðist hann ekki
skorta fé til þess að láta þann
draum sinn rætast.
Snorri frá Löwen til AG?
Gæti farið í hið upprennandi danska stórlið Sami bakhjarl og hjá Löwen
Danski skartgripasalinn ætlar að vera með tvö stórlið á sínum snærum
Snorri Steinn
Guðjónsson