Morgunblaðið - 09.03.2010, Side 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2010
Jóhann RúnarKristjánsson
úr íþróttafélaginu
Nesi sigraði ann-
að árið í röð í
keppni í 1. flokki
karla á Íslands-
mótinu í borð-
tennis um síðustu
helgi. Jóhann er
bundinn við hjólastól og því er ár-
angur hans afar athyglisverður. Rétt
eins og á síðasta Íslandsmóti vann
Jóhann sigur á Hlöðveri Steina
Hlöðverssyni úr KR, 3:1, í úrslita-
leiknum.
Björgvin Páll Gústavsson, lands-liðsmarkvörður í handknatt-
leik, og félagar hans í svissneska lið-
inu Kadetten unnu á
sunnudagskvöld sinn 20. leik í sviss-
nesku A-deildinni í handknattleik
þegar þeir kjöldrógu HSC Suhr Aa-
rau, 43:22, á heimavelli. Björgvin
Páll stóð í marki Kadetten í fyrri
hálfleik. Kadetten er langefst í deild-
inni með 41 stig að loknum 22 leikj-
um.
Auður Jóns-dóttir skor-
aði tvö af mörk-
um Ringkøbing
þegar liðið vann
stórsigur, 31:19,
yfir Viby IF í
næst efstu deild
danska kvenna-
handknattleiks-
ins á sunnudag. Þegar þrjár umferð-
ir eru eftir að deildarkeppninni er
Ringkøbing í öðru til þriðja sæti
ásamt Silkeborg með 37 stig eftir 23
leiki, einu stigi á eftir Roskilde. Að-
eins eitt lið fer upp í úrvalsdeild en
næstu þrjú liðin fara í umspil um
sæti í úrvalsdeildinni.
Arna Sif Pálsdóttir, landsliðs-kona í handknattleik, skoraði
tvö mörk fyrir Horsens þegar liðið
tapaði 19. leiknum í dönsku úrvals-
deildinni í handknattleik á sunnu-
dag. Þá mætti liðið FCK og beið
lægri hlut með tólf marka mun á
heimavelli, 30:18. Horsens er neðst í
deildinni með aðeins 2 stig að lokn-
um 20 leikjum.
Erik Veje Rasmussen hefur á nýtekið við þjálfun danska úrvals-
deildarliðsins Århus GF, ári eftir að
hann sagði starfi sínu lausu. Århus
GF hefur átt í fjárhagserfiðleikum
síðustu misseri en vonir standa til að
þau mál séu að komast í lag. For-
svarsmenn félagsins reyndu ákaft að
ráða Aron Kristjánsson, þjálfara Ís-
landsmeistara Hauka, sem þjálfara
liðsins á síðasta vori.
Bergur IngiPétursson,
Íslandsmethafi í
sleggjukasti, tek-
ur ekki þátt í
Vetrarkastmóti
Frjálsíþrótta-
sambands Evr-
ópu eins og til
stóð, en Bergur
Ingi var á meðal
keppenda á síðasta ári. Hann glímir
við meiðsli í baki og vinnur í því um
þessar mundir ásamt sjúkraþjálfara
að fá sig góðan og vera klár í slaginn
fyrir keppni sumarsins en fram-
undan er m.a. Evrópumeistaramót í
Barcelona undir lok júlí.
Kvennalið Breiðabliks í knatt-spyrnu leikur gegn sænska Ís-
lendingaliðinu Kristianstad á sunnu-
daginn kemur. Leikurinn fer fram á
gervigrasi, æfingavelli Kristianstad,
sem er með þrjár íslenska landsliðs-
konur innanborðs og Elísabetu
Gunnarsdóttur sem þjálfara. Blikar
leika áður gegn sænska 1. deildarlið-
inu Vittsjö, á föstudaginn.
Fólk sport@mbl.is
BRIAN Kerr, landsliðsþjálfari Færeyinga í knatt-
spyrnu, tilkynnti í gær 20 manna landsliðshóp fyrir vin-
áttuleikinn gegn Íslandi sem fer fram í Kórnum 21.
mars.
Færeyingar koma hingað með flesta sína bestu leik-
menn en í hópnum eru níu af þeim ellefu sem skipuðu
byrjunarlið þeirra í síðasta leiknum í undankeppni HM
síðasta haust, þegar þeir töpuðu 1:3 fyrir Rúmenum á
útivelli. Þrettán af þessum tuttugu voru í 18 manna
hópnum gegn Rúmenum.
Þrír góðkunningjar Íslendinga eru í hópnum. Símun
Samuelsen, sem er nýfarinn til Færeyja eftir hálft
fimmta ár í Keflavík, Rógvi Jacobsen, fyrrum leikmaður
KR, og Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram.
Sex í hópnum spila með erlendum liðum. Þar á meðal
er markvörðurinn Gunnar Nielsen frá Manchester City
sem átti stórleik fyrir ári síðan þegar Færeyingar lögðu
Íslendinga, 2:1, í Kórnum. Einnig
18 ára piltur, Jóan Símun Ed-
mundsson, sem samdi við New-
castle í vetur, en hann spilaði sinn
fyrsta A-landsleik gegn Frökkum á
síðasta ári og þykir mikið efni. Hin-
ir fjórir leika með dönsku 1. deild-
arliðunum Frem og Roskilde.
Þrír leikmenn koma frá HB, lið-
inu sem Kristján Guðmundsson
þjálfar nú, þeir Símun, Fróði og
Vagnur Mohr Mortensen. B36 og
NSÍ eiga einnig þrjá leikmenn hvort í hópnum.
Íslenska liðið verður sem kunnugt er skipað leik-
mönnum íslenskra liða, nema hvað Jóhann Berg Guð-
mundsson og Kolbeinn Sigþórsson koma frá Alkmaar
í Hollandi. vs@mbl.is
Sterkt lið Færeyinga mætir í Kórinn
Símun
Samuelsen
heimaleik í mars og helst að spila ekki tvo leiki
í júní. En það kom aldrei til þess að það strand-
aði á okkur. Það eina sem menn voru sammála
um var að vera ósammála,“ sagði Ólafur Jó-
hannesson landsliðsþjálfari Íslands sem sat fund-
inn.
„Það var margt snúið í þessu. Engin Norð-
urlandaþjóðanna vildi spila á heimavelli í mars
og suðrænu þjóðirnar tvær vildu ekki spila
heima í júní þannig að það var aldrei samnings-
grundvöllur á þessum fundi. Það var ekki einu
sinni samþykkt að draga um leikdaga á fund-
inum, menn vildu greinilega fría sig alveg af
þessu,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið.
Riðlakeppnin hefst í haust en leikið er um
sæti í lokakeppni Evrópumótsins sem fram fer í
Póllandi og Úkraínu árið 2012. vs@mbl.is
ra ósammála“
r Víði Sigurðsson
mbl.is
Ð er ljóst að við erum með
nsta leikmannahópinn í þessari
d en ég er ekkert smeyk og ætla
að fara langt með liðið í ár,“ sagði
abet Gunnarsdóttir, þjálfari
ska knattspyrnuliðsins Kristian-
, í samtali við Morgunblaðið.
að hefur vakið athygli í Svíþjóð að
væri aðeins tólf leikmenn á samn-
hjá Kristianstad. Um tíma var
vel dregið í efa að félagið fengi
pnisleyfi á komandi tímabili vegna
hagsörðugleika.
Ég var reyndar að fá þrettánda
leikmanninn, nýsjá-
lenska landsliðs-
konu. Síðan hafa
stúlkur úr 16-ára
liðinu okkar æft
með hópnum og til
viðbótar hef ég
fengið stráka úr fé-
laginu til að vera á
sumum æfingunum
til að geta spilað.
Fækkunin er að
hluta til mér að kenna, ég hef verið
grimm í því að grisja hópinn og henda
út leikmönnum sem eru ekki nógu góð-
ir til að spila í þessari deild. Um leið
eru mjög litlir peningar til staðar og
við höfum sett okkur það takmark að
fjölga áhorfendum á heimaleikjunum
um helming, og fá þannig tekjur til að
styrkja liðið.
En á móti kemur að ég er nánast
með sama byrjunarlið og í fyrra og það
er í mikið betri stöðu og æfingu en á
sama tíma í fyrra. Það kemur ekki til
greina að vera í fallbaráttu, við kynnt-
umst henni í fyrra, og ég stefni hik-
laust með liðið mun ofar í deildinni í
ár,“ sagði Elísabet. Lið hennar setti
met með því að tapa 10 fyrstu leikj-
unum í fyrra en átti síðan frábæra síð-
ari umferð og bjargaði sér frá falli af
öryggi.
„Deildin verður vissulega erfið, ekki
síst vegna þess að nýju liðin, Tyresö og
Jitex, hafa verið duglegust allra við að
sanka að sér leikmönnum. Á móti kem-
ur að nokkur lið hafa misst marga leik-
menn og eru sum með lítið stærri hópa
en við, kannski í kringum 15 leik-
menn.“
Hólmfríður Magnúsdóttir er eini
fastamaðurinn frá síðasta tímabili sem
er farin frá liðinu en hún samdi við
Philadelphia Independence í Banda-
ríkjunum. Margrét Lára Viðarsdóttir,
Guðný Björk Óðinsdóttir og Erla
Steina Arnardóttir leika allar áfram
með Kristianstad. Fyrsti leikur liðsins
í úrvalsdeildinni er gegn Sunnanå 5.
apríl, á öðrum degi páska.
„Ætla mér langt með liðið í ár“
Kristianstad með 13 leikmenn Strákar fylla uppí á æfingum Grisjaði hópinn í vetur
Elísabet
Gunnarsdóttir
r Kristján Jónsson
@mbl.is
ÉR líst bara mjög vel á að vera
na áfram. Stemningin er góð í
ngum félagið og ýmislegt að gerast.
verður til dæmis tekin ný höll í
kun á næsta ári þar sem við mun-
leika heimaleikina. Þá er gert ráð
r því að við verðum með 1.000-
0 áhorfendur á heimaleikjunum,“
ði Rakel þegar Morgunblaðið
rði í henni hljóðið.
akel segir metnaðinn hafa aukist í
ngum félagið og heimamenn þakki
þjálfaranum, Ágústi Jóhannssyni,
tórum hluta að minnsta kosti.
kill munur frá því Ágúst kom
Fólkið í kringum félagið er mjög
ið af Gústa og segist sjá mikinn
n á leik liðsins frá því að hann tók
þó svo að við séum neðarlega í
dinni enn sem komið er. Ég er
nig mjög ánægð með Gústa sem
fara. Ég hef trú á því að hann geti
ði hjálpað liðinu mikið og mér að
bæta minn leik,“ sagði Rakel sem er á
tuttugasta og fjórða aldursári.
Eftir að hafa unnið alla titla sem í
boði eru hérlendis með Stjörnunni,
hélt Rakel til Danmerkur en fékk fá
tækifæri þar með KIF Vejen og flutti
sig yfir til Noregs í kjölfarið.
Lærði mikið í Danmörku
„Ég sé ekkert eftir tímanum í Dan-
mörku því þar lærði ég gríðarlega
mikið enda var ég hjá stóru félagi í
stærstu deild í heimi. Það var hins
vegar mjög mikilvægt fyrir mig að fá
fleiri mínútur inni á vellinum og hjá
Levanger hef ég fengið stórt hlutverk.
Ég hef spilað mikið í vörninni frá því
ég kom til félagsins og er smám saman
farin að spila meira í sókninni, aðal-
lega sem leikstjórnandi. Norska deild-
in er einnig mjög sterk. Larvik og
Byåsen skera sig úr en þetta eru allt
hörkuleikir á milli hinna tíu liðanna í
deildinni.“
Levanger er fámennur bær á norsk-
an mælikvarða og á svæðinu í kring
búa í heildina um átta þúsund manns
að sögn Rakelar. Hún segir íbúana
fylgjast vel með liðinu.
„Maður verður fljótt vör við það.
Maður þarf ekki nema að fara út í búð
eða í ræktina þá hittir maður fólk sem
er að spjalla um boltann. Hér þekkja
allir alla og fólkið er mjög vinsamlegt.“
„Líst mjög
vel á að vera
hér áfram“
Rakel Dögg framlengdi við Levanger
Þurfti að spila meira en í Danmörku
Norðmenn hrifnir af Ágústi þjálfara
el Dögg Bragadóttir landsliðskona í
dknattleik framlengdi á dögunum
ning sinn við norska liðið Levanger
tvö ár eins og fram hefur komið.
el sagðist í samtali við Morgun-
ðið vera mjög ánægð hjá félaginu.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Sterk Rakel Dögg Bragadóttir er komin í stórt hlutverk hjá Levanger.