Morgunblaðið - 09.03.2010, Síða 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2010
Haukar – Grindavík 81:74
Ásvellir, 1. umferð í úrslitakeppni kvenna,
2. leikur, mánudag 8. mars 2010.
Gangur leiksins: 2:0, 4:11, 12:15, 18:16,
23:23, 23:27, 32:32, 37:34, 41:38, 43:38,
48:40, 48:45, 53:45, 53:52, 56:57, 58:60,
63:63, 67:68, 73:74, 81:74.
Stig Hauka: Kiki Lund 30, Heather Ezell
19, Ragna M. Brynjarsdóttir 8, Telma B.
Fjalarsdóttir 7, Helena B. Hólm 6, Guðrún
Ámundadóttir 4, María L. Sigurðardóttir 4,
Bryndís H. Hreinsdóttir 3.
Fráköst: 28 í vörn – 14 í sókn.
Stig Grindavíkur: Michela DeVault 26, Jo-
anna Skiba 16, Helga Hallgrímsdóttir 15,
Petrúnella Skúladóttir 9, Íris Sverrisdóttir
6, Jovana Stefánsdóttir 2.
Fráköst: 24 í vörn – 14 í sókn.
Villur: Haukar 19 – Grindavík 21.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og
Jón Þór Eyþórsson..
Áhorfendur: Um 70..
Haukar unnu einvígið 2:0 og mætir KR í
undanúrslitum.
Snæfell – Keflavík 105:112
Stykkishólmur, 1. umferð í úrslitakeppni
kvenna, 2. leikur, mánudag 8. mars 2010.
Gangur leiksins: 12:3, 19:14, 21:21, 23:29,
25:31, 32:34, 44:38, 46:45, 49:49, 60:55,
62:62, 65:64, 70:70, 76:75, 86:94, 96:96,
101:101, 101:108, 105:112.
Stig Snæfells: Sherrel Hobbs 42, Gunnhild-
ur Gunnarsdóttir 15, Hrafnhildur Sif Sæv-
arsdóttir14, Sara Sædal Andrésdóttir 14,
Unnur Lára Ásgeirsdóttir 13, Björg Guð-
rún Einarsdóttir 5, Hildur Björg Kjartans-
dóttir 2.
Fráköst: 29 í vörn – 22 í sókn.
Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir
37, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 31,
Kristi Smith 29, Svava Ósk Stefánsdóttir 7,
Rannveig Randversdóttir 4, Pálína Gunn-
laugsdóttir 2, Hrönn Þorgrímsdóttir 2.
Fráköst: 27 í vörn – xx í sókn.
Villur: Snæfell 34 – Keflavík 21.
Dómarar: Eggert Þ. Aðalsteinsson og Dav-
íð Tómas Tómasson.
Áhorfendur: 136.
Keflavík sigraði 2:0 og mætir Hamri í
undanúrslitum.
Eftir Sigurð Ragnar Bjarnason
sport@mbl.is
SNÆFELL og Keflavík mættust öðru sinni í
gærkvöldi í úrslitakeppni IE-deildar kvenna og
liðin buðu upp á stórskemmtilegan leik og mikla
spennu. Léku hraðan bolta og skiptust á naumri
forustu út leikinn. Eftir venjulegan leiktíma var
staðan jöfn 96-96 og því þurfti að framlengja um
5 mínútur og þá reyndust Keflvíkingar eiga
meira inni, sigruðu að lokum 105-112.
Fyrir úrslitarimmu þessara liða var Keflavík
talin eiga fremur greiða leið áfram en reyndin
varð önnur. Snæfellsliðið lét Keflavík heldur bet-
ur hafa fyrir hlutunum í báðum leikjunum og var
ekki fjarri því að ná sigri í kvöld. Keflvíkingar
voru í eltingarleiknum framan af leik og kunnu
ekki vel við það hlutverk. Keflvíkingar skelltu á
pressuvörn og fyrr á tímabilinu hefði það dugað
vel en nú er Snæfellsliðið orðið reyndara og
tókst ágætlega að ráða við hana. Í hálfleik mun-
aði aðeins einu stigi á liðunum 46-45 og sama
baráttan hélst leikinn út. Spennan jókst eftir því
sem á leikinn leið og allt í járnum, ýmsum var
farið að hitna í hamsi uppi í stúku sem á vellinum
og átti dómgæslan þar hlut að máli en sveiflaðist
á báða bóga, þó villurnar hafi reyndar lent mun
meira öðrum megin.
Undir lok venjulegs leiktíma virtust Keflvík-
ingar vera komnir með sigurinn í höndina þegar
um 2 mínútur voru eftir og munurinn 8 stig 88-
94 en þá kom magnaður lokakafli hjá Snæfelli
sem jafnaði leikinn 96-96 með þristi frá Söru Sæ-
dal þegar um 25 sek voru eftir og þar við sat og
því þurfti að framlengja. Þegar þar var komið
sögunni var Snæfellsliðið komið í villuvandræði
og Keflavík var sterkara liðið í framlengunni og
sigraði að lokum 105-112. Snæfellsliðið lék mjög
vel, Unnur, Hrafnhildur, Gunnhildur og Sara
léku mjög vel en Sherrel Hobbs var þó þeirra
sterkust, Keflvíkingar réðu illa við hana og
skiptust á um að glíma við hana í vörninni en
áttu fá svör.
En Keflavík átti svar við Hobbs sóknarlega og
það var Birna Valgarðs sem skoraði jafnt og þétt
allan leikinn og það sýnir sig í svona leik hve
mikilvægt það er að hafa reyndan leikmann inn-
an sinna raða, því hún var alltaf sú sem kom með
mikilvægu körfurnar þegar mest þurftii. Bryn-
dís Guðmunds var einnig gríðarlega sterk og
saman voru þessar tvær of stór biti fyrir Snæfell.
Keflavík er þar með komin í undanúrslitin en
ekki er hægt að segja annað en Snæfell hafi end-
að tímabilið með stæl.
Sigur Keflvíkinga í spennuleik
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
HAUKAR tryggðu sér í gær réttinn til að leika í und-
anúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfu-
knattleik er liðið vann Grindavík öðru sinni, nú 81:74.
Haukar mæta KR í undanúrslitum.
„Það er auðvitað bara gaman að fá að spila við bestu
lið landsins,“ sagði Henning Henningsson, þjálfari
Hauka eftir að lið hans var öruggt áfram.
Leikurinn í gær var eldfjörugur, spennandi og ágæt-
lega leikinn af beggja hálfu. Það sést ef til vill best á
því að 18 sinnum skiptust liðin á um að hafa forystu og
átta sinnum var jafnt.
„Þetta var rosaleg barátta tveggja hörku liða. Báðir
leikirnir voru þannig að sigurinn gat lent hvorum meg-
in sem var og við vorum bara heppin að hann datt okk-
ar megin í báðum tilfellum,“ sagði Henning eftir að
hann hafði andað nokkrum sinnum djúpt til að róa sig
aðeins.
Hann tók leikhlé eftir tveggja mínútna leik þegar
staðan var 4:11 fyrir Grindavík. „Já við settum upp
ákveðið skipulag og mér fannst það ekki ganga alveg
upp hjá okkur. Við vildum alls ekki láta þær ráða hrað-
anum í leiknum, en þær gerðu það í upphafi leiks og
það lagaðist eftir leikhléið,“ sagði Henning.
„Auðvitað er ég ánægður með að vera komin í úrslit-
in. Við lékum í B-riðlinum og þar voru leikirnir kannski
ekkert allt of erfiðir, en á móti kemur að þar fengu þær
stelpur sem spila minna hjá okkur að reyna sig og það
kemur okkur örugglega til góða,“ sagði Henning
ánægður með sitt lið.
Grindavík var 74:73 yfir þegar rúm mínúta var eftir
en Haukar gerðu síðustu átta stigin.
Heather Ezell var öflug hjá Haukum sem og Kiki
Lund sem er gríðarlega skynsamur leikmaður og sjóð-
andi heit utan þriggja stiga línunnar í gær. Gerði átta
slíkar körfur úr 13 tilraunum. Einnig var gaman að
fylgjast með Bryndísi Hreinsdóttur í vörninni þar sem
hún er mjög sterk. Hjá Grindavík var Michele DeVault
sterk sem og Helga Hallgrímsdóttir og Joanna Skiba,
skemmtilegur leikstjórnandi, mjög snögg og lipur.
Haukarnir
fóru bakdyra-
megin í úrslitin
Morgunblaðið/Ómar
Barátta Telma B. Fjalardóttir heldur boltanum með öruggri hendi en Grindvíkingurinn
Helga Hallgrímsdóttir sækir að henni. Telma og lið Hauka eru komin í undanúrslit.
Eftir Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HAUKUR Helgi Pálsson ung-
lingalandsliðsmaður í körfuknatt-
leik, hefur gert munnlegt sam-
komulag við Maryland-háskólann í
Bandaríkjunum. Körfuknatt-
leikslið skólans er mjög hátt skrif-
að og leikur í afar sterkum riðli
með þekktum skólum eins og
North Carolina, Georgia Tech,
Virginia og Florida State sem
hafa alið af sér ófáa NBA leik-
mennina. Nokkrir þekktir NBA-
leikmenn hafa leikið með Mary-
land-skólanum og má í því sam-
bandi nefna Steve Francis, Buck
Williams og Joe Smith. Einnig má
nefna Len Bias sem stórlið Boston
Celtics valdi annan í nýliðavalinu
árið 1986 en hann lést úr hjarta-
áfalli tveimur dögum síðar.
Haukur mun því að líkindum
stunda nám við skólann og leika
með liðinu næstu fjögur árin á
körfuboltastyrk. Raunvirði skóla-
styrksins næstu fjögur árin er
metið á um 18 milljónir króna á
núverandi gengi. Maryland-
skólinn býr að glæsilegri hefð í
hinum sterka háskólakörfubolta í
Bandaríkjunum. Liðið fór alla leið
og sigraði árið 2002 og er nú í 22.
sæti á listanum yfir sterkustu lið
deildarinnar. Liðið leikur heima-
leiki sína í höll sem tekur 18 þús-
und áhorfendur.
Þjálfari liðsins heitir Gary Willi-
ams og hefur stýrt liðinu allar
götur síðan 1989. Undir stjórn
Williams hefur liðið tvívegis kom-
ist í undanúrslit og sjö sinnum í
16 liða úrslit. Gert er ráð fyrir því
að Haukur gangi formlega frá
samkomulagi sínu við skólann í
apríl. Haukur er 18 ára gamall og
uppalinn Fjölnismaður, og lék með
meistaraflokki félagsins í 1. deild-
inni 2008-09, en hefur í vetur leik-
ið með Montverde-mennta-
skólanum á Flórída. Hann hefur
vakið athygli fyrir frammistöðu
sína með yngri landsliðum Íslands
og var m.a. valinn í úrvalslið
Norðurlandamóts U18 ára lands-
liða á síðasta ári.
Haukur fer í
sterkan skóla
Samdi við Maryland-háskólann
Ljósmynd/Stefán Þ. Borgþórsson
Efnilegur Haukur Pálsson fékk
verðlaun á Norðurlandamóti.
Birkir Bjarna-son, leik-
maður 21-árs
landsliðsins í
knattspyrnu, skor-
aði bæði mörk Vik-
ing Stavanger í
síðasta æfingaleik
liðsins áður en
keppni hefst í
norsku úrvalsdeildinni um næstu
helgi. Viking lék við Start á sunnu-
dag og beið lægri hlut, 2:3. Birkir
skoraði tvívegis í seinni hálfleiknum
og kom Stavangerliðinu í 2:1 en
Start tryggði sér sigur með tveimur
mörkum undir lokin.
Norskur knattspyrnumaður,Torgeir Motland að nafni,
kom til landsins í gær og verður til
reynslu hjá Íslandsmeisturum FH
út þessa viku. Hann mun leika æf-
ingaleik með Hafnarfjarðarliðinu
gegn Breiðabliki á föstudaginn.
Motland er 25 ára gamall sókn-
armaður og hefur leikið með Stav-
anger IF í 1. og 2. deild í Noregi,
en einnig með Sandnes/Ulf og
Bryne.
Liverpool varðfyrir tals-
verðu áfalli í bar-
áttunni um fjórða
sæti ensku úrvals-
deildarinnar í
knattspyrnu. Wig-
an sigraði, 1:0, í
viðureign liðanna á
DW-leikvanginum og náði í dýrmæt
stig í fallbaráttunni. Hugo Rod-
allega skoraði sigurmarkið á 35.
mínútu eftir mikil mistök hjá Dirk
Kuyt, leikmanni Liverpool, sem gaf
boltann á mótherja við eigin víta-
teig.
Cesc Fabregas, fyrirliði Arsenal,verður ekki með liðinu gegn
Porto í Meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu í kvöld. Hann tognaði í
læri í leiknum við Burnley á laug-
ardag og í gær var staðfest að hann
yrði ekki með. Porto vann fyrri leik
liðanna í 16-liða úrslitunum, 2:1.
Fólk sport@mbl.is