Ísfirðingur - 17.05.1975, Page 3
ISFIRÐINGUR
3
Nýkomið!
Mikið úrval af hljómplötum
Verslunin Kjartan R. Giiðimindsson
ísafirði — Sími 3507
Sýning
á skólavinnu nemenda Barnaskóla
ísafjarðar verður í skólahúsinu á
hvítasunnudag kl. 14-22.
Allir eru velkomnir á sýninguna
Skólastjóri.
Leigutilboð
M.b. Jón Jónsson Í.S. 80 er til leigu í sumar
Tilbcð óskast skrifleg fyrir 25. maí
Áskilinn er réttur, til að taka hvaða tilboði,
sem er, eða hafna öllum.
Jón Víðir Njálsson
Eyrargötu 10 Suðureyri
AEG-rafmagnsverkfæri
Borvélar Slípirokkar
Hjólsagir Járnklippur
Ýmsir fylgihlutir
Verslunin Kjartan R. Guðmundsson
ísafirði — Sími 3507
Viðhald gatna í bænum
— Stjórnmála-
ályktun
Framhald af 4. síðu
öryggisleysi í orkumálum og
orkuskort. Stefna verður að
nýju skipulagi, sem tryggi
hagkvæmar og samræmdar
aðgerðir til að allir landsmenn
fái sem ódýrasta orku án
tvíverknaðar og sóunar.
f>að þarf að auka virkjunar-
rannsóknir og gera sérstök
átök í virkjun bæði fallvatna
og jarðvarma. Það þarí að
vinna að því, að innlendir
orkugjafar leysi olíuna af
hólmi, eftir því sem kostur er.
Auknar virkjanir eru einnig
imdirstaða vaxandi iðnaðar,
hvort heldur er í stærri eða
smærri stíl.
Fundurinn fagnar þeim
mikilsverða áfanga í land-
helgismálum, sem náðist með
útfærslu í 50 mílur og hefur
þegar skilað miklum árangri.
Væri illa komið, ef vinstri
stjórnin hefði ekki mótað þá
stefnu á sínum tíma. Minnir
fundurinn á þá forustu, sem
Framsóknarfl. hefur haft í
iandhelgismálinu, alla tíð.
Jafnframt bendir fundurinn á,
hver áhrif aðgerða íslendinga
hafa haft á stefnumótun í
þessum málum á alþjóðavett-
vangi. Fundurinn leggur
áherzlu á, að íslendingar íæri
auðlindalögsögu sína út í 200
mílur á þessu ári, en telur
rétt að bíða niðurstöðu haf-
réttarráðstefnunnar í Genf,
sem lýkur í næsta mánuði. Er
nauðsynlegt, að sú útfærsla
sé sem bezt undirbúin. í þessu
sambandi bendir fundurinn á
að nauðsynlegt er að skipu-
leggja nýtingu miðanna með
tilliti til verndunar og viðhalds
fiskistofnunum.
Fundurinn minnir á ákvæði
málefnasamnings ríkisstj. um
endurskoðun stjórnarskrár-
innar og leggur áherzlu á, að
henni verði hraðað.
Að því er varðar stefnuna í
utanríkismáium og í einstök-
um málaflokkum öðrum,
vísar fundurinn til samþykkta
síðasta flokksþings.
Fundurinn þakkar ráðherr-
um og þingmönnum flokksins
störf þeirra og hvetur þá til
áframhaldandi átaka til að
koma fram stefnumálum
flokksins.
Fundurinn væntir þess að
almennur skilningur þjóðar-
innar á efnahagsstöðunni
komi fram í einlægum sam-
starfsvilja allra stétta og
öruggri samstöðu um
nauðsynleg úrræði, svo að
þess verði sem skemmst að
bíða að aftur birti í lofti og
herða megi að nýju alhliða
framfarasókn”.
Ráðnir
til starfa
Bæjarráð ísafjarðar hefur
heimilað bæjartæknifræðingi
að ráða Albert Guðmundsson,
verkfræðinema, til starfa í
3 mánuði og Svein Lyngmó,
nema, í 4 mánuði.
Flestir munu vera sammála
um það, að nauðsyn beri til að
halda umferðagötum í kaup-
stöðum og öðru þéttbýli vel
við. Á þetta ekki síst við um
götur sem malbikaðar hafa
verið eða steinsteyptar. Brúnir
á holum sem myndast í slíkar
götur eru hvassari og því
hættulegri en holur sem
myndast í þær götur sem
ekki hafa verið malbikaðar
eða steyptar.
Á þetta er minnst hér og nú
vegna þess að vanrækt hefur
ALLAR ALMENNAR
MYNDATÖKUR
LJÓSMYNDASTOFA
ÍSAFJARÐAR
Mánagötu 2 sími 3776
verið að halda eðlilega við
malbikuðum götum hér í
bænum, og er þá sérstök
ástæða til að nefna aðal
umferðargöturnar, Hafnar-
stræti og Fjarðarstræti, sem
nú líta nánast út eins og net,
svo þéttar eru holurnar. Allir
hljóta að sjá að þetta skapar
hættuástand, bæði fyrir gang-
andi fólk og farartæki.
Þess er að vænta að bæjar-
yfirvöld láti sem allra fyrst
hefjast handa um endurbætur
á götum í bænum.
Hefur sugt
upp sturii
Kristján Rafn Guðmundsson,
slökkviliðsstjóri, hefur sagt
upp starfi sínu frá og með
30. apríl s.1.
Trúlofunarhringar, margar gerðir
Allt siifur á upphluti fyrir fullorðna og börn
Stokkabelti — Beltispör — Millur — Doppur
— Skúfhólkar — Brjóstnálar — Skyrtuhnappar
— Krossar — Eyrnalokkar — plötu og stein-
hringar og margt fleira. Hreinsa og gylli
silfurmuni
HÖSKULDUR ÁRNASON, GULLSMIÐUR
Isafjarðarkaupstaður
Innheimta bœjar-
sjóðs tilkynnir
20. maí hefst útreikningur dráttarvaxta á allar
vanskilaskuldir bæjargjalda. Vextir reiknast 1,5%
á mánuði.
4. hluti fyrirframgreiðslu 1975 féll í gjalddaga
1. maí og ber gjaldanda því að hafa greitt
sem nemur 53,6% af álögðu útsvari
ársins 1974.
Álagning dráttarvaxta verður ekki tilkynnt
sérstaklega.
Bæjargjaldkerinn ísafirði.
Aðstöðugjald í
Vestfj arðaumdœmi
Eftirtalin sveitarfélög hafa tilkynnt um álagningu
aðstöðugjalds í Vestfjarðaumdæmi 1975,
skv. 5. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga
nr. 8/1972, sbr. lög nr. 104/1973 og rgj. nr. 81/'62:
Kaupstaðirnir Bolungarvík og ísafjörður, sveitar-
félögin Gufudals,— Flateyjar,— Barðastrandar,—
Rauðasands,— Patreks,— Tálknafjarðar,—
Suðurfjarðar,— Auðkúlu,— Þingeyrar,— Mýra,—
Flateyrar,— Suðureyrar,— Súðavíkur,—
Reykjarfjarðar,— Snæfjalla,— Árnes,—
Kaldrananes,— Hrófbergs,— Hólmavíkur,—
Fells,— Óspakseyrar,— og Bæjarhreppar.
Gjaldstigar liggja frammi á skrifstofu minni
og hjá viðkomandi sveitarstjórn.
Athygli er vakin á því, að þeir sem margþætta
atvinnu reka, þannig að útgjöld þeirra teljast
til fleiri en eins gjaldflokks, þurfa að senda
fullnægjandi greinargerð um, hvað af útgjöldunum
tilheyri hverjum einstökum gjaldflokki sbr. 7. gr.
rgj. nr. 81/1962. Skv. 8. gr. sömu rgj. þurfa þeir,
sem hafa með höndum aðstöðugjaldsskylda
starfsemi í öðru sveitarfélagi en þeir eiga
lögheimilisfesti í að skila yfirliti eða sundurliðun,
er sýni hvað af útgjöldum þeirra er bundið þeirri
starfsemi. Skv. 14. gr. sömu rgj. þurfa óframtals-
skyldir aðilar til tekju- og eignarskatts,
en aðstöðugjaldsskyldir að senda sérstakt framtal
til aðstöðugjalds.
Ofangreind gögn þarf að senda fyrir 25/5 n.k.
ella má búast við að skipting í gjaldflokka
og eða aðstöðugjaldið sjálft verði áætlað.
ísafirði, 30. apríl 1975.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi.