Monitor - 08.04.2010, Page 3
Stúlknasveitin The Charlies, sem áður nefndist
Nylon, notaði páskana ekki til þess að úða í sig
súkkulaðieggjum, eins og flestir Íslendingar. Þær
Klara Ósk Elíasdóttir, Alma Guðmundsdóttir og
Steinunn Camilla Sigurðardóttir hafa nefnilega
verið í detox hjá Jónínu Ben síðustu daga. Páska-
maturinn þeirra var eitt stykki ávaxtasafi.
Skýrari í kollinum
„Þetta er alveg æðislegt. Það sem kemur mér
mest á óvart er hvað þetta er nærandi fyrir
líkamann og sálina. Þetta er svo mikil slökun,“
segir Klara, sem var stödd á meðferðarstöðinni
í Reykjanesbæ þegar Monitor náði tali af henni.
Þar hafa stúlkurnar búið undanfarna daga og
deila saman herbergi. „Við erum búnar að færa
saman tvö rúm og gistum saman á nóttunni,“
segir Klara.
Detoxið er liður í undirbúningi fyrir Ameríkuför
The Charlies, sem stúlkurnar leggja upp í eftir
rúman mánuð, en þær gerðu plötusamning við
útgáfufyrirtækið Hollywood Records í fyrra. „Það
er gott fyrir okkur að vera hérna saman og stilla
saman strengina. Ég finn hvað maður verður
miklu skýrari í kollinum af þessu og líður á allan
hátt betur. Fólk kemur ofboðslega orkumikið út
úr þessu. Við þurfum auðvitað að vera þróttmikl-
ar og með hausinn í lagi þegar við förum út,“
segir Klara.
Jónína og Gunnar frábær
Klara ber Jónínu söguna vel og segir hana mikið
dugnaðarkvendi. „Við þekktum hana ekkert áður
en við komum, en erum búnar að kynnast henni
ágætlega núna og hún er alveg frábær. Jónína
þykist ekki vera neitt meira en hún er. Hún er
ótrúlega hress og jákvæð og hörð af sér. Hún er
eiginlega alveg ótrúleg kona og ég dáist að því
sem hún er búin að gera hérna,“ segir Klara.
Það hefur varla farið framhjá mörgum að Jónína
og Gunnar í Krossinum gengu í það heilaga á
dögunum, en Gunnar er einmitt líka í detox.
Klara segir hann hafa komið sér skemmtilega á
óvart. „Hann er algjör húmoristi. Ég bjóst eigin-
lega ekki við því að hann væri svona sniðugur,“
segir Klara.
Söngkennari og talþjálfari bíða úti
Upphaflega stóð til að Charlies-stúlkurnar færu
til Bandaríkjanna í byrjun þessa árs, en mikil
pappírsvinna hefur seinkað förinni. „Við erum
einmitt á leið á okkar fyrsta Skype-fund með
söngkennaranum um leið og við komum út úr
detoxinu. Við þurftum að bíða með fundinn þar
til eftir meðferðina, því á meðan á henni stendur
má ekki nota farða og við vildum ekki að fyrstu
kynni söngkennarans af okkur yrðu þannig,“
segir Klara og hlær.
Auk söngkennara hafa stúlkurnar yfir að ráða
talþjálfara, sem mun reyna að gera enskan hreim
þeirra eins amerískan og hægt er. „Talþjálfarinn
er til þess að koma í veg fyrir að við lendum
í vandræðum þegar berum fram textana. Við
vildum fá einhvern til að gera okkur sjóaðar í
hreimnum og slípa burtu íslenska hreiminn eins
og hægt er. Það hjálpar okkur að ná betur tökum
á málinu og gerir það að verkum að við stöndum
okkur betur í viðtölum úti,“ segir Klara.
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Allan Sigurðsson (allan@monitor.is), Haukur Harðarson (haukur@monitor.is) Forsíðumynd: Ernir Eyjólfsson
Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
Bubbi Mort-
hens Sólin kisti
mig í morgun
ég tók hana
í fangið og
hvíslaði pabbi elskar þig hún
horfði á mig brúnum augum
brosti og sagði at Búið
5. apríl kl. 08:28
Jón Jósep
Snæbjörnsson
Ég er með
spurningu: Ég
á 505 vini á
facebook sem ég þekki og er
með 501 vinabeiðni. Á ég að
segja já við öllum eða halda
áfram að handvelja vinina eftir
því sem ég nenni?
28. mars kl. 23:07
Unnur B.
Vilhjálmsdóttir
-BJóR og pitsa
til að jafna sig à
geðveikinni
I lìfi minu.. 5. apríl kl. 13:08
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 Monitor
Mynd/Kristinn
Klara, Alma og Stein-
unn undirbúa Amer-
íkuför með andlegri og
líkamlegri hreinsun.
Monitor
mælir með
Sporcle.com er staður-
inn fyrir þig, ef þig langar að missa
vinnuna eða falla í öllum prófunum
í vor. Þar er að
finna ógrynni af
heilabrotsleikj-
um, þar sem
maður á til
dæmis að fylla
inn höfuðborgir
landa eða þekkja
myndir af tónlist-
armönnum. Það er alls ekkert grín
að maður verður gjörsamlega háður
Sporcle, en þessi fíkn hefur það þó
fram yfir flestar aðrar að maður
verður klárari af því að glíma við
hana.
I Love You Phillip
Morris er stórskemmti-
leg mynd. Jim Carrey
hefur stigið mörg
feilspor á síðustu
árum, en hann er í
fínu formi í hlutverki
samkynhneigða
svikahrappsins Stevens
Russells. Það munu þó
eflaust einhverjir
roðna yfir ástar-
atlotum hans og
Evans McGregors.
Kvöldsund
er eitthvað það besta sem til er. Þótt
farið sé að birta og hlýna, er ennþá
svalt í lofti og dimmt á kvöldin. Þá
er fátt betra en að
skella sér í heita
pottinn og
svamla um í
lauginni. Ekki
skemmir fyrir
að taka með
sér fýsilegan
aðila af hinu
kyninu. Lykilatriði
að fara á kvöldin, þegar það er orðið
dimmt.
Vikan á...
Feitast í blaðinu
Leikmenn Breiða-
bliks fóru til Spán-
ar og tóku frekar
vafasamar
ljósmyndir 4
Friðrik Dór og
Jón Ragnar eru
bræður sem eru að
gera það gott í
tónlistinni
7
Kvikmyndasíðan
tekur fyrir frum-
sýningar bíóhús-
anna um
helgina
7
Fílófaxið er Biblía
fyrir alla sem ætla
að gera sér glaðan
dag um
helgina 13
Simmi og Jói opna
veitingastað og fá
nikk frá Stebba
Hilmars í
Nóatúni 8
Á NETINU
Í BÍÓ
Nylon-stúlkur í detox
FYRIR LÍKAMA OG SÁL
Sjónvarpsbangsarnir Auddi og Sveppi gerðu
skemmtilegt veðmál í síðasta Monitor. Auddi er
stuðningsmaður Manchester United, en Sveppi heldur
með Chelsea, og veðjuðu þeir um hvort liðið myndi
sigra í leik þeirra um síðustu helgi. Sá sem héldi með
liðinu sem tapaði þyrfti að láta mynda sig í treyju
andstæðingsins og játa að sitt lið væri óæðra. Skemmst
er frá því að segja að United tapaði 2-1 á heimavelli og
neyðist Auddi því til að kyngja stolti sínu.
„Sveppi kippir sér ekkert upp við það ef Chelsea
tapar en ég verð brjálaður þegar United tapar. Þetta
hefur furðulegt nokk alveg hellings áhrif á mig,“
sagði Auddi og Sveppi bætti við: „Það er svona
svipuð tilfinning fyrir mig að vera með veikt barn
og það er fyrir Audda þegar United tapar leik.“
Það þarf ekki að taka það fram hversu sárt Audda
þótti að fara í Chelsea-treyjuna og lýsa því yfir að
þeir bláklæddu væru betri en Rauðu djöflarnir.
Myndin hér til hliðar er óneitanlega erfiður biti að
kyngja fyrir United-menn um allan heim.
Aron Pálmars-
son 2-3 Arsen-
al, Rosicky 2
og Bendtner 1...
áfram Gunners!
6. apríl kl. 18:43
Efst í huga Monitor
Að tapa veðmáli
við vin sinn
Halldór
Halldórsson
Er ég sá eini
sem sefur ekki
af ótta við þetta
eldgos? 6. apríl kl. 20:46