Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 12

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 12
–– Meira fyrir lesendur Þú færð það sem þú borgar fyrir! Morgunblaðið og mbl.is bjóða lesendum sínum yfirgripsmiklar og ýtarlegar íþróttafréttir, innlendar og erlendar, og gera það með hraði. Íþróttaáhugafólk:Vinsamlega berið saman umfjöllun um íþróttir í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Það er engum blöðum um það að fletta hver hefur vinninginn. MOGGINN ER Í SIGURSÆTI Íþróttasíður í Morgunblaðinu 26. mars 2010 Íþróttasíðan í Fréttablaðinu 26. mars 2010           sjónvarp 12 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 SJÓNVARP MASTERS-MÓTIÐ Stöð 2 sport 21:00 Bein útsending fráfyrsta keppnisdegi á Augusta Masters-mótinu. Mótið er sérstakt að því leyti að sjálfur Tiger Woods mun þarna keppa á sínu fyrsta móti eftir að upp komst um hressileg svik hans í einkalífinu. DESPERATE HOUSEWIVES Sjónvarpið 21:25 Aðþrengdueiginkonurnar hafa alltaf í nógu að snúast í einkalífinu enda skortir ekki dramatíkina í þessum FIMMTUDAGUR 8. APRÍL AUDDI OG SVEPPI Stöð 2 19:20 Auddi og Sveppi virðasteiga óskaplega auðvelt með að gera skemmtilegt sjónvarpsefni. Snúa aftur eftir stutt frí og halda áfram að gera gott grín. DJÚPA LAUGIN Skjár einn 21:00 Í þætt-inum leggja íslensk ungmenni allt undir til að komast á draumastefnumótið. ME, MYSELF AND IRENE Stöð 2 21:40 Hress mynd meðmeistara Jim Carrey í aðalhlutverki. Fjallar um lögreglumann sem á tvo persónuleika sem eru báðir í fullu fjöri þegar hann gleymir að taka lyfin sín. FÖSTUDAGUR 9. APRÍL UNDANÚRSLIT FA CUP Stöð 2 sport 15:50 Chelsea og AstonVilla eigast hér við í leik um sæti í úrslitum elstu bikarkeppni veraldar í fótbolta, ensku bikarkeppninnar, en leikurinn fer fram á Wembley. SATURDAY NIGHT LIVE Skjár einn 21:20 Einn allravinsælasti grínþáttur sjónvarpssög- unnar. Í þessum þætti er hjartaknúsarinn Ashton Kutcher gestaleikari. BLADES OF GLORY Stöð 2 01:40 Frábær grínmynd meðWill Ferrell og Jon Heder úr Napoleon Dynamite í aðalhlutverk- um. Myndin fjallar um tvo listdansara á skautum og er bráðskemmtileg. LAUGARDAGUR 10. APRÍL SUNNUDAGUR 11. APRÍL UNDANÚRSLIT FA CUP Stöð 2 sport 14:50 Í seinniundan- úrslitaleik ensku bikar- keppninnar eigast við Portsmouth og Tottenham. Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson mætast því miður ekki á Wembley þar sem Hemmi meiddist illa fyrir skemmstu. RÉTTUR Stöð 2 20:20 Rammíslensktlögfræðidrama. Magnús Jónsson hefur farið á kostum í hluverki lögfræðingsins Loga sem stendur í ströngu í þætti kvöldsins. SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Úrslit Útsvars, spurningakeppni sveit- arfélaganna, eru á dagskrá Sjónvarpsins klukkan 20:10 á laugardaginn. Boðið verður upp á nágrannaslag af bestu gerð því Reykjavík etur kappi við litla bróður úr Garðabæ. Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Háskóla Íslands, hefur farið mikinn í liði Garðarbæjar í vetur. „Það er hver í sínu horni að lesa sitt og svo tölum við af og til saman, helst sem minnst. Við erum með svo góða verkaskiptingu í þessu og við vitum alveg hvernig liðsfélagarnir hugsa,“ segir Vilhjálmur og bætir við: „Við ætlum að minnsta kosti að gera okkar besta og svo ráða örlögin framhaldinu.“ Lið Reykjavíkur hefur verið firnasterkt í ár en fjölmiðlakonan Svanhildur Hólm Valsdóttir er á vinstri kantinum fyrir hönd höfuðborgarbúa. „Liðið hittist yfirleitt einu sinni fyrir hverja keppni. Undirbúningurinn felst aðallega í því að við borðum einhverja góða köku saman,“ segir Svanhildur en hún segir hlutverkaskiptinguna í liðinu góða. „Við erum með bókmenntafræðinginn í Jóni Yngva, Stefán er mikið í íþróttum og slíku en ég er mest í gagnslausri þekkingu,“ segir Svanhildur og bætir við: „Annars höfum við öll ýmis sérsvið sem Óli spurningahöfundur virðist ekki hafa neinn sérstakan áhuga á að spyrja út í.“ Undirbúningurinn felst í kökuáti SVANHILDUR HÓLM ÆTLAR AÐ BORÐA KÖKUR MEÐ LIÐINU VILHJÁLMUR OG FÉLAGAR ÆTLA AÐ HITTAST SEM MINNST

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.