Monitor - 08.04.2010, Side 12
–– Meira fyrir lesendur
Þú færð það sem þú borgar fyrir!
Morgunblaðið og mbl.is bjóða lesendum sínum yfirgripsmiklar og ýtarlegar íþróttafréttir,
innlendar og erlendar, og gera það með hraði.
Íþróttaáhugafólk:Vinsamlega berið saman umfjöllun um íþróttir í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu.
Það er engum blöðum um það að fletta hver hefur vinninginn.
MOGGINN ER Í SIGURSÆTI
Íþróttasíður í Morgunblaðinu 26. mars 2010 Íþróttasíðan í Fréttablaðinu 26. mars 2010
sjónvarp
12 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
SJÓNVARP
MASTERS-MÓTIÐ
Stöð 2 sport
21:00 Bein útsending fráfyrsta keppnisdegi
á Augusta Masters-mótinu. Mótið er
sérstakt að því leyti að sjálfur Tiger
Woods mun þarna keppa á sínu fyrsta
móti eftir að upp komst um hressileg
svik hans í einkalífinu.
DESPERATE
HOUSEWIVES
Sjónvarpið
21:25 Aðþrengdueiginkonurnar hafa
alltaf í nógu að snúast í einkalífinu
enda skortir ekki dramatíkina í þessum
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL
AUDDI OG SVEPPI
Stöð 2
19:20 Auddi og Sveppi virðasteiga óskaplega auðvelt
með að gera skemmtilegt sjónvarpsefni.
Snúa aftur eftir stutt frí og halda áfram
að gera gott grín.
DJÚPA LAUGIN
Skjár einn
21:00 Í þætt-inum
leggja íslensk ungmenni
allt undir til að komast á
draumastefnumótið.
ME, MYSELF
AND IRENE
Stöð 2
21:40 Hress mynd meðmeistara Jim Carrey í
aðalhlutverki. Fjallar um lögreglumann
sem á tvo persónuleika sem eru báðir
í fullu fjöri þegar hann gleymir að taka
lyfin sín.
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL
UNDANÚRSLIT FA CUP
Stöð 2 sport
15:50 Chelsea og AstonVilla eigast hér
við í leik um sæti í úrslitum elstu
bikarkeppni veraldar í fótbolta, ensku
bikarkeppninnar, en leikurinn fer fram
á Wembley.
SATURDAY NIGHT LIVE
Skjár einn
21:20 Einn allravinsælasti
grínþáttur sjónvarpssög-
unnar. Í þessum þætti er
hjartaknúsarinn Ashton
Kutcher gestaleikari.
BLADES OF GLORY
Stöð 2
01:40 Frábær grínmynd meðWill Ferrell og Jon Heder
úr Napoleon Dynamite í aðalhlutverk-
um. Myndin fjallar um tvo listdansara á
skautum og er bráðskemmtileg.
LAUGARDAGUR 10. APRÍL
SUNNUDAGUR 11. APRÍL
UNDANÚRSLIT FA CUP
Stöð 2 sport
14:50 Í seinniundan-
úrslitaleik ensku bikar-
keppninnar eigast við
Portsmouth og Tottenham.
Eiður Smári og Hermann
Hreiðarsson mætast því
miður ekki á Wembley þar sem Hemmi
meiddist illa fyrir skemmstu.
RÉTTUR
Stöð 2
20:20 Rammíslensktlögfræðidrama. Magnús
Jónsson hefur farið á kostum í hluverki
lögfræðingsins Loga sem stendur í
ströngu í þætti kvöldsins.
SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
Úrslit Útsvars, spurningakeppni sveit-
arfélaganna, eru á dagskrá Sjónvarpsins
klukkan 20:10 á laugardaginn. Boðið
verður upp á nágrannaslag af bestu gerð
því Reykjavík etur kappi við litla bróður
úr Garðabæ. Vilhjálmur Bjarnason, lektor
við Háskóla Íslands, hefur farið mikinn
í liði Garðarbæjar í vetur. „Það er hver
í sínu horni að lesa sitt og svo tölum
við af og til saman, helst sem minnst.
Við erum með svo góða verkaskiptingu
í þessu og við vitum alveg hvernig
liðsfélagarnir hugsa,“ segir Vilhjálmur
og bætir við: „Við ætlum að minnsta
kosti að gera okkar besta og svo ráða
örlögin framhaldinu.“
Lið Reykjavíkur hefur verið firnasterkt
í ár en fjölmiðlakonan Svanhildur Hólm
Valsdóttir er á vinstri kantinum fyrir
hönd höfuðborgarbúa. „Liðið hittist
yfirleitt einu sinni fyrir hverja keppni.
Undirbúningurinn felst aðallega í því
að við borðum einhverja góða köku
saman,“ segir Svanhildur en hún segir
hlutverkaskiptinguna í liðinu góða.
„Við erum með bókmenntafræðinginn
í Jóni Yngva, Stefán er mikið í íþróttum
og slíku en ég er mest í gagnslausri
þekkingu,“ segir Svanhildur og bætir við:
„Annars höfum við öll ýmis sérsvið sem
Óli spurningahöfundur virðist ekki hafa
neinn sérstakan áhuga á að spyrja út í.“
Undirbúningurinn felst í kökuáti
SVANHILDUR HÓLM ÆTLAR
AÐ BORÐA KÖKUR MEÐ LIÐINU
VILHJÁLMUR OG FÉLAGAR
ÆTLA AÐ HITTAST SEM MINNST