Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 14

Monitor - 08.04.2010, Blaðsíða 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 fílófaxið Hjaltalín kemur fram á tvennum tónleikum á Café Rosenberg um helgina. „Við höfum spilað þarna fyrr í vetur. Það myndaðist hrikalega hugguleg stemning og það er gaman að vera svona nálægt áhorfendunum. Við hlökkum öll til,“ segir Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalín, en hún var á dögunum valin „Rödd ársins“ á Íslensku tónlistarverðlaun- unum. Hjaltalín er þessa dagana að fylgja eftir sinni annarri breiðskífu, Terminal, en sveitin var mikið á faraldsfæti á tónleikaferðalögum á síðasta ári. „Við verðum líklega að spila bara hérna heim fram á sumar að minnsta kosti. Platan er ekki komin út annars staðar en hér á landi en við erum að vinna í því að koma plötunni út. Þá förum við vonandi út en fram að sumri verðum við á Íslandi og ætlum að reyna að spila á nokkrum stöðum og hafa það notalegt bara,“ segir þessi frábæra söngkona að lokum. Gaman að vera í ná- lægð við áhorfendur HJALTALÍN TÓNLEIKAR Cafe Rosenberg 22:00 laugardagur DR. ROBERT YOUNG MEÐ FYRIRLESTUR Rope Yoga setrið 09:00 Dr. Robert Young heldurdaglangan fyrirlestur um pH-kraftaverkið sem er kenning sem hann hefur sett fram og veltir fyrir sér hvort orsök allra sjúkdóma sé of lágt pH-gildi. Þó eru líklega ekki margir sem ætla að skella sér með alla fjölskylduna þar sem miðaverðið er 39.000 krónur. SKOPPA OG SKRÍTLA Á TÍMAFLAKKI Borgarleikhúsið, litli salur 12:00 og 14:00 Tilvalin sýning tilað fara á með krakka enda hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra leikhús- og bíógesta undanfarin ár. FÍASÓL Þjóðleikhúsið, Kúlan 13:00 og 15:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur en sýningunni er leikstýrt af Vigdísi Jakobsdóttur. HORN Á HÖFÐI Rýmið, Akureyri 14:00 Barnasýning á vegumLeikfélags Akureyrar eftir Guðmund Brynjólfsson og Berg Þór Ingólfsson en leikstjórn er einnig í höndun þess síðarnefnda. Sagan segir af Birni litla sem vaknar einn morguninn með horn á höfðinu. Hann fær vinkonu sína í lið með sér til að komast að ástæðunni fyrir því að hann vill ekki líta út eins og geit það sem eftir er, en leikarar í sýningunni eru Sólveig Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Víðir Guðmundsson. GAURAGANGUR Borgarleikhúsið 16:00 og 20:00 Ormur Óðinssonog félagar eru mættir aftur á fjalirnar í þessu ástæla verki Ólafs Hauks Símonarsonar. Í þetta skipti er Gauragangurinn í Borgarleikhúsinu og það ætti enginn að láta þetta stykki framhjá sér fara. Aðalhlutverkið er í höndum Guðjóns Davíðs Karlssonar en þess má geta að tónlistin í verkinu var sérsamin af hljómsveitinni Ný dönsk þegar leikritið var sett upp í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu. UNDANÚRSLIT Í KÖRFUNNI DHL-höllin 16:00 Snæfellingar mæta íVesturbæinn en viðureignir þessara liða eiga það til að ráðast á síðustu körfu leiksins. Spennan verður í hámarki en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í rimmunni fer áfram á úrslitin. MARTIAL NARDEAU OG DÉSIRÉ N´KAOUA Salurinn 17:00 Flautu- og píanóleikararnirMartial Nardeau og Désiré N´Kaoua spila klassísk verk eftir meistara á borð við Bach, Schubert, Fauré, Roussel og Prokofief í Salnum í Kópavogi. ÞÝSK SÁLUMESSA Hallgrímskirkja 17:00 Lokatónleikar á Kirkjulista-hátíð 2010. Flutt verður Þýsk sálumessa eftir Johannes Brahms sem þykir eitt af stórverkunum í kirkjutónlist. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. 39 ÞREP Leikfélag Akureyrar 19:00 39 þrep, eða The 39 Steps,er nýlegur gamanleikur eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfreds Hitchcocks, eftir samnefndri skáldsögu Johns Buchans. Í þessu nýstárlega verki blandast saman spenna og gamanleikur en sýningin þykir afar hröð og spennandi. Þess má til gamans geta að leikar- arnir fjórir í sýningunni, Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir, þurfa að bregða sér í 139 hlutverk meðan á sýningu stendur. Leikstjórn er í höndum Maríu Sigurðardóttur. HÆNUUNGARNIR Kassinn, Þjóðleikhúsinu 20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki hins óútreiknanlega djassáhugamanns, Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk Braga Ólafssonar fyrir leiksvið. REGÍNA ÓSK SYNGUR CARPENTERS Græni hatturinn 20:00 Regína Ósk tekur fyrir bestulög Carpenters ásamt einvala liði hljóðfæraleikara og söngvara. Atburður sem enginn sannur Carpenters-aðdáandi má missa af. GERPLA Þjóðleikhúsið 20:00 Baltasar Kormákur leggurtil atlögu við meistaraverk nóbelsskáldsins, en Gerpla hefur aldrei áður verið sett á svið. Með hlutverk fóstbræðranna Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Kolbrúnar- skálds fara Jóhannes Haukur Jóhannesson og Björn Thors. HÆNUUNGARNIR Kassinn, Þjóðleikhúsinu 20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki hins óútreiknanlega djassáhugamanns, Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk Braga Ólafssonar fyrir leiksvið. DUBSTEP Nasa 22:00 A.T.G. Og Techno.is takahöndum saman og standa fyrir einum stærsta atburði ársins í Dubstep- senunni á Íslandi. Technoþyrstir einstakling- ar ættu ekki að láta sig vanta. 10 apríl

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.