Monitor - 08.04.2010, Side 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
fílófaxið
Hjaltalín kemur fram á tvennum
tónleikum á Café Rosenberg um
helgina. „Við höfum spilað þarna
fyrr í vetur. Það myndaðist hrikalega
hugguleg stemning og það er gaman
að vera svona nálægt áhorfendunum.
Við hlökkum öll til,“ segir Sigríður
Thorlacius, söngkona Hjaltalín, en
hún var á dögunum valin „Rödd
ársins“ á Íslensku tónlistarverðlaun-
unum. Hjaltalín er þessa dagana að
fylgja eftir sinni annarri breiðskífu,
Terminal, en sveitin var mikið á
faraldsfæti á tónleikaferðalögum
á síðasta ári. „Við verðum líklega
að spila bara hérna heim fram á
sumar að minnsta kosti. Platan er
ekki komin út annars staðar en hér
á landi en við erum að vinna í því
að koma plötunni út. Þá förum við
vonandi út en fram að sumri verðum
við á Íslandi og ætlum að reyna að
spila á nokkrum stöðum og hafa það
notalegt bara,“ segir þessi frábæra
söngkona að lokum.
Gaman að
vera í ná-
lægð við
áhorfendur
HJALTALÍN TÓNLEIKAR
Cafe Rosenberg
22:00
laugardagur
DR. ROBERT YOUNG
MEÐ FYRIRLESTUR
Rope Yoga setrið
09:00 Dr. Robert Young heldurdaglangan fyrirlestur um
pH-kraftaverkið sem er kenning sem hann
hefur sett fram og veltir fyrir sér hvort orsök
allra sjúkdóma sé of lágt pH-gildi. Þó eru
líklega ekki margir sem ætla að skella sér
með alla fjölskylduna þar sem miðaverðið er
39.000 krónur.
SKOPPA OG SKRÍTLA
Á TÍMAFLAKKI
Borgarleikhúsið, litli salur
12:00 og 14:00 Tilvalin sýning tilað fara á með krakka enda
hafa Skoppa og Skrítla verið eftirlæti ungra
leikhús- og bíógesta undanfarin ár.
FÍASÓL
Þjóðleikhúsið, Kúlan
13:00 og 15:00 Fíasól í Hosiló ersprellfjörug sýning fyrir alla
fjölskylduna byggð á hinum geysivinsælu
og margverðlaunuðu bókum Kristínar Helgu
Gunnarsdóttur en sýningunni er leikstýrt af
Vigdísi Jakobsdóttur.
HORN Á HÖFÐI
Rýmið, Akureyri
14:00 Barnasýning á vegumLeikfélags Akureyrar
eftir Guðmund Brynjólfsson og Berg Þór
Ingólfsson en leikstjórn er einnig í höndun
þess síðarnefnda. Sagan segir af Birni litla
sem vaknar einn morguninn með horn á
höfðinu. Hann fær vinkonu sína í lið með
sér til að komast að ástæðunni fyrir því að
hann vill ekki líta út eins og geit það sem
eftir er, en leikarar í sýningunni eru Sólveig
Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson
og Víðir Guðmundsson.
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
16:00 og 20:00 Ormur Óðinssonog félagar eru mættir
aftur á fjalirnar í þessu ástæla verki Ólafs
Hauks Símonarsonar. Í þetta skipti er
Gauragangurinn í Borgarleikhúsinu og það
ætti enginn að láta þetta stykki framhjá
sér fara. Aðalhlutverkið er í höndum
Guðjóns Davíðs Karlssonar en þess má
geta að tónlistin í verkinu var sérsamin af
hljómsveitinni Ný dönsk þegar leikritið var
sett upp í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu.
UNDANÚRSLIT
Í KÖRFUNNI
DHL-höllin
16:00 Snæfellingar mæta íVesturbæinn en viðureignir
þessara liða eiga það til að ráðast á síðustu
körfu leiksins. Spennan verður í hámarki en
það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í rimmunni
fer áfram á úrslitin.
MARTIAL NARDEAU OG
DÉSIRÉ N´KAOUA
Salurinn
17:00 Flautu- og píanóleikararnirMartial Nardeau og Désiré
N´Kaoua spila klassísk verk eftir meistara á
borð við Bach, Schubert, Fauré, Roussel og
Prokofief í Salnum í Kópavogi.
ÞÝSK SÁLUMESSA
Hallgrímskirkja
17:00 Lokatónleikar á Kirkjulista-hátíð 2010. Flutt verður
Þýsk sálumessa eftir Johannes Brahms sem
þykir eitt af stórverkunum í kirkjutónlist.
Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
39 ÞREP
Leikfélag Akureyrar
19:00 39 þrep, eða The 39 Steps,er nýlegur gamanleikur
eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni
þekktu kvikmynd Alfreds Hitchcocks, eftir
samnefndri skáldsögu Johns Buchans. Í þessu
nýstárlega verki blandast saman spenna og
gamanleikur en sýningin þykir afar hröð og
spennandi. Þess má til gamans geta að leikar-
arnir fjórir í sýningunni, Atli Þór Albertsson,
Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannsson
og Þrúður Vilhjálmsdóttir, þurfa að bregða
sér í 139 hlutverk meðan á sýningu stendur.
Leikstjórn er í höndum Maríu Sigurðardóttur.
HÆNUUNGARNIR
Kassinn, Þjóðleikhúsinu
20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í
fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk
á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki
hins óútreiknanlega djassáhugamanns,
Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk
Braga Ólafssonar fyrir leiksvið.
REGÍNA ÓSK SYNGUR
CARPENTERS
Græni hatturinn
20:00 Regína Ósk tekur fyrir bestulög Carpenters ásamt einvala
liði hljóðfæraleikara og söngvara. Atburður
sem enginn sannur Carpenters-aðdáandi má
missa af.
GERPLA
Þjóðleikhúsið
20:00 Baltasar Kormákur leggurtil atlögu við meistaraverk
nóbelsskáldsins, en Gerpla hefur aldrei áður
verið sett á svið. Með hlutverk fóstbræðranna
Þorgeirs Hávarssonar og Þormóðs Kolbrúnar-
skálds fara Jóhannes Haukur Jóhannesson og
Björn Thors.
HÆNUUNGARNIR
Kassinn, Þjóðleikhúsinu
20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í
fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk
á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki
hins óútreiknanlega djassáhugamanns,
Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk
Braga Ólafssonar fyrir leiksvið.
DUBSTEP
Nasa
22:00 A.T.G. Og Techno.is takahöndum saman og standa
fyrir einum stærsta atburði ársins í Dubstep-
senunni á Íslandi. Technoþyrstir einstakling-
ar ættu ekki að láta sig vanta.
10
apríl