Monitor - 08.04.2010, Side 5
5FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 Monitor
Localice Productions er ungt og
metnaðarfullt fyrirtæki með stór
framtíðaráform sem sérhæfir sig
í gerð tónlistarmyndbanda. Þrír
félagar, Arnar Helgi Hlynsson,
Egill Björnsson og Unnar Helgi
Daníelsson, reka fyrirtækið sem er
með starfsstöðvar bæði á Íslandi og
Bretlandi þar sem Arnar og Egill eru
búsettir og stunda nám samhliða
því að reka fyrirtækið. Þeir standa
fyrir heljarinnar rokkveislu á Nasa
á föstudagskvöldið, sem er aðeins
upphafið að því sem koma skal.
„Localice er í raun margþætt
framleiðslufyrirtæki en við
höfum lagt langmesta áherslu á
gerð tónlistarmyndbanda hingað
til. Tónleikarnir á föstudaginn eru
fyrstu stóru tónleikarnir sem við
höldum en planið er að fara meira
út í tónleikahald í framtíðinni,“
segir Arnar Helgi. Alls koma sjö
íslenskar hljómsveitir fram á
tónleikunum á Nasa, sem hafa
hlotið nafnið Localice Live. Þær eru
Cliff Clavin, For a Minor Reflection,
Noise, Ten Steps Away, Nevolution,
Our Lives og síðast en ekki síst
Sign með Ragnar Sólberg í broddi
fylkingar, sem hefur ekki spilað á
Íslandi í meira en ár.
Í samstarfi við Kerrang!
og iTunes
Arnar viðurkennir að svona
tónleikum fylgi alltaf ákveðin
fjárhagsleg áhætta en kveðst þó
hafa fulla trú á íslenska tónlistar-
markaðnum. „Í dag koma ekki jafn
margir erlendir tónlistarmenn til
landsins og var hérna fyrir nokkrum
árum. Mér finnst íslenskt tónlistarlíf
vera að taka virkilega við sér. Ég
velti því stundum fyrir mér hvort
hljómsveitir á borð við Diktu, sem
eru að fylla stóra tónleikastaði trekk
í trekk, hefðu gert það hérna í kring-
um 2007 þegar úrvalið af erlendum
listamönnum var gífurlegt. Í dag
held ég að fólk vilji sjá íslenska bönd
á sviði,“ segir Arnar.
Localice hefur náð athyglisverðum
samstarfssamningum við stór
fyrirtæki erlendis og ber hæst að
nefna rokktímaritið Kerrang! „Við
náðum að landa samstarfssamningi
við Kerrang! um að þeir streymi
Localice Live tónleikunum beint á
vefnum sínum. Hugmyndin er að
þessir tónleikar verði góður sýning-
argluggi fyrir íslenskar hljómsveitir
sem vilja koma sér á framfæri.
Við ætlum að reyna að halda þessi
kvöld að minnsta kosti tvisvar á ári
og vonandi áfram í samstarfi við
Kerrang!“ segir Arnar en Kerrang! er
eitt vinsælasta tímaritið í rokksen-
unni á heimsvísu.
„Við höfum líka verið að gera
myndbönd fyrir iTunes sem
birtast á heimsíðunni þeirra.
Starfsemin hefur verið að
vinda mjög mikið upp á sig að
undanförnu. Við byrjuðum einungis
í tónlistarmyndböndum en erum
komnir út í heimildarmyndagerð og
tónleikahald. Það má segja að við
höfum byrjað á botninum og unnið
okkur upp þaðan,“ segir Arnar að
lokum. Miðasala á tónleikana fer
fram í verslunum Skífunnar, Retro í
Smáralind og á miði.is.
Localice gerir það gott í mynd-
bandagerð og stendur fyrir heljar-
innar rokkveislu á Nasa.
Fólk vill sjá
íslensk bönd
Mynd/Ernir
Myndbönd sem
þú gætir hafa séð
eftir Localice
Cliff Clavin - Midnight Getaways
Cliff Clavin - This is Where
We Kill More Than Time
Dikta - Thank You
Nevolution - All I See
Noise - Stab in the dark
Sign - The Hope
Ten Steps Away -
Point of Desperation
ıwww.itr.is sími 411 5000
Sundsamlega gott!
Heilsulindir í Reykjavík