Monitor - 08.04.2010, Síða 6
kvikmyndir
Hæð: 193 sentimetrar.
Besta hlutverk: Oskar Schindler
í Schindler‘s List.
Skrýtin staðreynd: Hefur leikið
fjölmargar persónur sem voru
til í alvörunni, svo sem Rob Roy,
Oskar Schindler, Michael Collins
og Alfred Kinsey.
Eitruð tilvitnun: „Það er athygl-
isvert að eftir því sem maður
nær meiri árangri, þeim mun
fleiri vilja gefa þér fría hluti.“
1952Fæddur 7. júní íbænum Ballymena
á Norður-Írlandi.
1971Hefur nám í eðlis-og tölvunarfræði
í háskóla í Belfast, höfuðborg
Norður-Írlands, en hættir og
fer að starfa fyrir Guinnes-
bjórframleiðandann.
1978Þreytir frumraunsína í kvikmynd-
um þegar hann leikur Jesú
Krist í trúarmyndinni Pilgrim‘s
Process.
1987Flytur tilHollywood, með
það fyrir augum að meika það.
Á þessum tíma hafði hann
búið í London í nokkur ár og
leikið aukahlutverk í nokkrum
kvikmyndum, meðal annars í
The Mission (1986) með Robert
DeNiro og Jeremy Irons.
1990Kemur sér á kortiðfyrir alvöru þegar
hann leikur aðalhlutverkið í
ofurhetjumyndinni Darkman
eftir Sam Raimi.
1994
Hlýtur sína
fyrstu og einu
Óskarstil-
nefningu fyrir
hlutverk sitt
sem Oskar
Schindler í kvikmyndinni
Schindler‘s List, sem kom út
árið á undan. Tapar fyrir Tom
Hanks úr Philadelphia.
1994Kvænist leikkon-unni Natöshu
Richardson og eignast með
henni tvo syni, Michael (1995)
og Daniel (1996).
1999Leikur Jedi-ridd-arann Qui-Gon
Jinn í Star Wars Episode I: The
Phantom Menace.
2009
Natasha,
eiginkona
hans, deyr
af völdum
alvarlegra
höfuðáverka
sem hún
hlaut í skíðaslysi í Kanada.
Liam
Neeson
FERILLINN
6 Monitor FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
Frumsýningar
helgarinnar
Clash of the Titans
Leikstjóri: Louis Leterrier.
Aðalhlutverk: Sam Worthington, Liam Neeson, Ralph
Fiennes, Danny Huston, Gemma Arterton, Mads Mikkelsen,
Alexa Davalos og Pete Postlethwaite.
Lengd: 100 mínútur.
Dómar: IMDB: / Metacritic: / Rotten Tomatoes:
Aldurstakmark: 14 ára.
Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni,
Keflavík, Selfossi og Akureyri.
Perseus (Worthington) býður sig fram til að leiða hóp stríðsmanna niður í
helvíti Hadesar (Fiennes), eftir að Hades hefur myrt fjölskyldu hans. Perseus
og menn hans þurfa að sigra Hades áður en hann hrifsar völdin af Seifi
(Neeson) og skapar helvíti á jörðu. Perseus þarf að glíma við eigin örlög og
sætta sig við að hann er guð, til þess að geta sigrað ýmsa djöfla og skrímsli
Date Night
Leikstjóri: Shawn Levy.
Aðalhlutverk: Steve Carell, Tina Fey,
Mark Wahlberg, Ray Liotta, James
Franco, Leighton Meester, Mark
Ruffalo og Mila Kunis.
Lengd: 88 mínútur.
Dómar: Engir dómar komnir.
Aldurstakmark: 10 ára.
Kvikmyndahús: Smárabíó, Laug-
arásbíó, Háskólabíó og Borgarbíó
Akureyri.
Lífið er frekar hversdagslegt og sam-
bandið einhæft hjá hjónaleysunum
Phil (Carell) og Claire (Fey) svo þau
ákveða að gera sér dagamun og fara
út að borða á fínan veitingastað.
Vegna misskilnings lenda þau í
hlutverki glæpahjóna á flótta í
bullandi vandræðum.
MARK WAHLBERG BORGAR STEVE CARELL
OG TINU FEY FYRIR AÐ FINNA BOLINN SINN
ENDURGERÐ
FRÁ 1981
Clash of the Titans er endurgerð
samnefndrar kvikmyndar frá árinu
1981. Þar fór stórleikarinn Laurence
Olivier með hlutverk Seifs og
Bond-skvísan Ursula Andress með
hlutverk Afródítu. Með hlutverk
Perseusar fór Harry Hamlin, sem
hefur lítið markvert gert síðan.
Gamla myndin kostaði litlar 16 millj-
ónir Bandaríkjadollara í framleiðslu,
en kostnaðurinn við nýju myndina
nemur 125 milljónum dollara.
VILTU VINNA MIÐA?
Monitor ætlar að gefa nokkrum heppnum
lesendum tvo miða á Date Night.
Það eina sem þú þarft að gera er að fara
inn á Facebook-síðu Monitor og skrifa
athugasemd á kvikmyndaþráð vikunnar.
Þú finnur okkur með því að slá inn
„Tímaritið Monitor“ í leitarstrenginn.
Dregið verður á mánudag úr þeim
nöfnum sem skrifuð eru á þráðinn.
PERSEUS ER NÁUNGI SEM FÓLK
ÆTTI AÐ FORÐAST AÐ REITA TIL REIÐI
TINA FEY, STEVE CARELL, COMMON OG LEIGHTON MEESTER
Á FRUMSÝNINGU DATE NIGHT Í NEW YORK Í VIKUNNI