Monitor - 08.04.2010, Page 13
UNDANÚRSLIT
Í KÖRFUNNI
Ljónagryfjan, Njarðvík
19:15 Suðurnesjaslagur af bestugerð. Baráttan um Reykjanes-
bæ verður gríðarlega hörð og áhorfendur geta
búist við gríðarlega spennandi viðureign.
Liðið sem fyrst vinnur þrjá leiki í rimmunni
fer áfram í úrslitin.
HÆNUUNGARNIR
Kassinn, Þjóðleikhúsinu
20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í
fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk
á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki
hins óútreiknanlega djassáhugamanns,
Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk
Braga Ólafssonar.
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
20:00 Ormur Óðinsson og félagar erumættir aftur á fjalirnar í þessu
ástæla verki Ólafs Hauks Símonarsonar. Í
þetta skipti er Gauragangurinn í Borgar-
leikhúsinu og það ætti enginn að láta þetta
stykki framhjá sér fara. Aðalhlutverkið er í
höndum Guðjóns Davíðs Karlssonar en þess
má geta að tónlistin í verkinu var sérsamin
af hljómsveitinni Ný dönsk þegar leikritið var
sett upp í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu.
HÆNUUNGARNIR
Kassinn, Þjóðleikhúsinu
20:00 Nokkrir kjúklingar á tilboðs-verði hverfa úr frystikistu í
fjölbýli sem á eftir að draga talsverðan dilk
á eftir sér. Eggert Þorleifsson hefur fengið
mikið lof fyrir frammistöðu sína í hlutverki
hins óútreiknanlega djassáhugamanns,
Sigurhans. Hænuungarnir eru annað verk
Braga Ólafssonar fyrir leiksvið.
POLAR PUB QUIZ
Karaoke Sport Bar
21:00 Vinsælt pub quiz semsamanstendur af almennum,
krossa- og myndaspurningum ásamt
hljóðdæmum. Að hámarki mega fjórir vera
saman í liði en nokkuð veglegir vinningar eru
í boði fyrir þá allra skörpustu.
REGÍNA ÓSK SYNGUR
CARPENTERS
Salurinn
21:00 Regína Ósk tekur fyrir bestulög Carpenters ásamt einvala
liði hljóðfæraleikara og söngvara. Atburður
sem enginn sannur Carpenters-aðdáandi má
missa af.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
HJÁ SKÚLA MENNSKA
Café Rosenberg
21:00 Tónlistarmaðurinn SkúliÞórðarson, betur þekktur
sem Skúli mennski, fagnar útgáfu plötunnar
Skúli mennski og hljómsveitin Grjót. Skúli
mennski kemur fram á ýmsum stöðum yfir
daginn, ýmist einn með gítar eða með hljóm-
sveit, en hápunkturinn verður tónleikarnir
um kvöldið.
TÓNLEIKAR
Hemmi & Valdi
22:00 Ruxpin, Troopa og DJ AnDrekoma fram á tónleikum sem
Extreme Chill stendur fyrir. Búast má við
afslappandi stemningu ef tónleikahaldarinn
stendur undir nafni.
ÓLAFSVAKA
Kaffi Zimsen
22:00 Sigurður Marteinsson eðaDJ El Nino spilar klassískt
rokk frá árunum 1970 til 1979. Þeir sem heita
Ólafur fá fyrsta bjórinn frían en þurfa að
muna eftir skilríkjunum.
13
fílófaxið
FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010 Monitor
TÓNLEIKAR, LEIKHÚS, SÝNINGAR, ÍÞRÓTTIR, UPPISTAND, PUBQUIZ, TRÚBADORAR OG ALLT ANNAÐ
fimmtudagur
Valgerður Guðnadóttir fer með hlutverk Lindu
í Gauragangi sem gengur fyrir fullu húsi þessa
dagana í Borgarleikhúsinu. „Þetta hefur gengið alveg
ótrúlega vel. Aðsóknin hefur verið gríðarlega góð
og fólk virðist skemmta sér rosalega vel enda er
sýningin flott og fjörug,“ segir Valgerður sem sjálf
missti af Gauragangi þegar verkið var sett upp í
fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu.
„Ég veit eiginlega ekki alveg hvernig ég fór að því.
Líklega hef ég verið á kafi í félagslífinu í Verzló en ég
man eftir lögunum. Það bætir það vissulega upp að
fá að taka þátt í þessari uppfærslu. Það er náttúrlega
ekkert slor að fá að leika þessa hasargellu,“ segir
Valgerður og bætir við: „Þetta er búið að vera
ótrúlega skemmtilegt verkefni. Það er stór og
skemmtilegur hópur sem kemur að sýningunni og
gaman að fara í vinnuna og hitta allt þetta fólk.“
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
Borgarleikhússins, leikstýrir sjálfur sýningunni en
Valgerður ber honum vel söguna. „Hann stendur sig
alveg frábærlega og er virkilega fær leikstjóri sem
nær því besta út úr öllum,“ segir Valgerður.
Gaman að leika
þessa hasargellu
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
20:00
8
apríl
Mynd/Grímur Bjarnason
föstudagur
„Það hefur verið hálfgert Bollywood-
æði á Íslandi undanfarið. Ég fæ
oft símtöl þar sem ég er spurð út
í búninga og tónlist sem tengist
þessu,“ segir Yesmine Olsson sem
stendur fyrir Bollywood-sýningu
í Turninum í Kópavogi. Yesmine
býður upp á kvöldstund sem er
blanda af indverskri matarveislu
og danssýningu í Bollywood-stíl.
Sýningin á föstudagskvöldið verður
sú síðasta, í bili að minnsta kosti.
„Það getur vel verið að við förum
aftur af stað með sýninguna seinna.
Upphaflega ætluðum við að gera
fjórar sýningar en nú held ég að þær
séu orðnar fjórtán,“ segir Yesmine
sem er ánægð með viðtökurnar. „Ég
held líka að Íslendingum finnist
indverskur matur almennt alveg
rosalega góður,“ segir Yesmine.
Fjórar sýn-
ingar urðu
að fjórtán
BOLLYWOOD SÝNING
Turninn, Kópavogi
20:00
9
apríl
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Langholtskirkja
19:30 Sinfóníuhljómsveitinheldur tónleika til heiðurs
tónskáldinu Jóni Nordal í Langholtskirkju.
HLJÓMAR FRÁ MEXÍKÓ
Salurinn
20:00 Klassísku gítarleikararnirSantiago Gutiérrez Bolio &
Santiago Lascurain verða með tónleika bæði
á einleiksgítar og flytja saman verk. „Sounds
of Mexico“ er alþjóðlegt menningarátak til
kynningar á mexíkóskri tónlist og mexíkön-
um sem starfa í Evrópu.
GAURAGANGUR
Borgarleikhúsið
20:00 Ormur Óðinsson og félagareru mættir aftur á fjalirnar í
þessu ástæla verki Ólafs Hauks Símonarson-
ar. Í þetta skipti er Gauragangurinn í Borgar-
leikhúsinu og það ætti enginn að láta þetta
stykki framhjá sér fara. Aðalhlutverkið er í
höndum Guðjóns Davíðs Karlssonar en þess
má geta að tónlistin í verkinu var sérsamin
af hljómsveitinni Ný dönsk þegar leikritið var
sett upp í fyrsta skipti í Þjóðleikhúsinu.
EILÍF ÓHAMINGJA
Borgarleikhúsið – Litli salur
20:00 Eilíf óhamingja er sjálfstættframhald af verkinu Eilíf ham-
ingja sem sett var upp í Borgarleikhúsinu
árið 2007. Verkinu er lýst sem gamansamri en
beittri ádeilu á markaðshyggjuna. Handrits-
gerð er í höndum Andra Snæs Magnasonar
og Þorleifs Arnar Arnarssonar. Þorleifur
leikstýrir einnig verkinu en hann hefur getið
sér gott orð sem leikstjóri á erlendri grund,
nú síðast fyrir uppsetningu á Rómeó og Júlíu
í Sviss sem hlaut mikið lof.
LOCALICE LIVE
Nasa
20:00 Allsherjar rokkhátíð semLocalice-framleiðslufyrir-
tækið stendur fyrir í samstarfi við breska
tónlistartímaritið Kerrang! Fram koma
íslensku hljómsveitirnar Cliff Clavin, For
a Minor Reflection, Noise, Ten Steps Away,
Nevolution, Our Lives og Sign.
BRENNUVARGARNIR
Þjóðleikhúsið
20:00 Leikritið Brennuvargarnir ereitt af frægustu leikritum 20.
aldarinnar. Þetta er næstsíðasta sýningin
á verkinu að sinni en á meðal leikenda eru
Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Eggert Þorleifsson.
HJALTALÍN TÓNLEIKAR
Café Rosenberg
22:00 Hjaltalín hefur ekki átt íerfiðleikum með að fylla þá
tónleikastaði sem hljómsveitin hefur spilað
á að undanförnu. Það er því vissara að mæta
tímanlega fyrir þá sem vilja ná góðu plássi.
Allt að gerast - alla fimmtudaga!