Monitor - 29.04.2010, Qupperneq 10
sjónvarp
10 Monitor FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 2010
SJÓNVARP
EVRÓPUDEILDIN
Stöð 2 Sport
18:55 Bein útsending frá leikLiverpool og Atletico
Madrid í Evrópudeildinni í knattspyrnu.
Liverpool tapaði fyrri leiknum 1-0 og
verður því að vinna ætli liðið sér að
komast í úrslit.
LAW AND ORDER
Skjár einn
21:50 Fyrsti þáttur í sextánduþáttaröð þessa klassíska
sakamálaþáttar. Í þessum þætti er ungri
stúlku rænt. Mannræninginn finnst en
neitar að gefa upp hvar hún er nema ef
samið er um að hann fari ekki í fangelsi.
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL
ÍSLANDSMÓTIÐ
Í HANDBOLTA
Sjónvarpið
20:15 Bein útsending frá leikVals og Hauka í úrslitum
Íslandsmótsins í handknattleik. Þetta er
fyrsti leikurinn í einvíginu og má búast
við hörkuviðureign.
STEINDINN OKKAR
Stöð 2
20:50 Nýr sketsaþáttur meðSteinda Jr. sem prýðir
einmitt forsíðu Monitor. Steindi sló í
gegn með sketsum í Monitor í fyrra og
fékk fyrir vikið sinn eigin sjónvarpsþátt,
sem verður að öllum líkindum drep-
fyndinn.
SATURDAY NIGHT LIVE
Skjár einn
21:05 Klassískirgrín-
þættir. Að þessu sinni er
Jude Law stjórnandi og
hljómsveitin Pearl Jam
spilar. Jerry Seinfeld og
Julian Casablancas úr The
Strokes mæta líka og taka
þátt í grínatriðum.
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL
FOOTLOOSE
Sjónvarpið
20:35 Klassísk unglingamyndfrá 1984. Kevin Bacon
leikur borgarstrák sem flytur í lítið þorp
þar sem bannað er að dansa og hlusta á
rokktónlist, sem er það eina sem hann
vill gera. Tilnefnd til Óskarsverðlauna
fyrir tónlist.
CONFESSIONS OF
A SHOPAHOLIC
Stöð 2
21:05
Rómantísk gamanmynd
um hina kaupóðu Rebeccu
sem fær fyrir slysni vinnu
sem blaðamaður og á að fjalla um
hvernig best er að spara, sem er hægara
sagt en gert. Með aðalhlutverk fer Isla
Fisher.
HNEFALEIKAR
Stöð 2 Sport
01:00 Beinútsending
frá hnefaleikabardaga
Floyd Mayweather og
Shane Mosley. Hér eru á ferðinni tveir
fantagóðir boxarar og má búast við
flottum bardaga.
LAUGARDAGUR 1. MAÍ
SUNNUDAGUR 2. MAÍ
LISTAHÁTÍÐ
Sjónvarpið
19:35
Kynningarþáttur fyrir
Listahátíð í Reykjavík
sem hefst 12. maí
næstkomandi og stendur
til 5. júní. Umsjónarmaður
er gleðipinninn Felix
Bergsson. Dagskrá hátíðarinnar í ár er
sérlega fjölbreytt og glæsileg.
„Metnaðurinn sem krakkarnir leggja í þetta
skilar þessum mikla áhuga. Þau byrja að æfa
í september og árangurinn er eftir því,“ segir
Ásgeir Erlendsson umsjónarmaður Skólahreystis.
Úrslit þáttarins fara fram á föstudagskvöld og
mæta 12 skólar til leiks. Búast má við mikilli
spennu en Skólahreysti er orðinn einn af
vinsælustu sjónvarpsþáttum landsins.
„Það tóku sex skólar þátt í fyrstu keppninni en
núna eru þeir 120,“ segir hann og nefnir einnig
meiri metnað í vinnslu og betri sýningartíma sem
hafa breytt þættinum til hins betra. „Við vildum
líka kynna betur krakkana sem taka þátt. Búa til
smá stjörnur úr þeim, enda er alveg ótrúlegt hvað
þau leggja mikið á sig,“ segir Ásgeir.
Magnús Scheving gestastjórnandi
Ásgeir stýrir Skólahreysti ásamt Felix Bergssyni
en þeim til halds og trausts í úrslitaþættinum
verður Magnús Scheving. „Það er alveg frábært
að fá Magga. Hann er með svo mikla
hugsjón fyrir hreyfingu og hollu
líferni barna. Það má kannski segja að
Latibær sé fyrir yngri kynslóðina og
svo tekur Skólahreysti við. Það eru sex
til sjö ára börn að spyrja mig hvenær
þau megi taka þátt í Skólahreysti og
velta fyrir sér hvernig er best að æfa
sig fyrir þetta,“ segir Ásgeir.
Hann segir starfsumhverfið
gera það að verkum að hann
er sjálfur farinn að hugsa sér til
hreyfings. „Ég ætla að byrja í átaki
1. maí. Stefnan er að geta gert 20
upphífingar einhvern tímann á árinu.“
Næsti Jón Ársæll?
Auk þess að sjá um Skólahreysti
hefur Ásgeir verið stigavörður í Gettu betur, en
hann segir fyrrnefnda starfið óneitanlega slá
því síðarnefnda við. „Í Gettu betur
þarf ég í rauninni bara að brosa
og ýta á takka og er svona meira
í bakgrunni. Í Skólahreysti er ég
náttúrulega að stjórna þættinum
og það er meira starf,“ segir Ásgeir,
sem er auk þess nýbúinn að
ljúka sínu fyrsta ári í sálfræði við
Háskólann í Reykjavík.
Hann segir að hugurinn hneigist
þó mest til starfa í fjölmiðlum.
„Mér finnst mikilvægt að klára
einhverja gráðu. Það er kannski
svolítið áhættusamt að reiða bara
á fjölmiðlaferil, en metnaðurinn
og áhuginn liggur þar,“ segir
Ásgeir. Sem sálfræðimenntaður
sjónvarpsmaður er eðlilegt að spyrja
hvort hann ætli sér að verða næsti Jón Ársæll. „Af
hverju ekki? Jón Ársæll er frábær,“ segir Ásgeir.
ÁSGEIR ERLENDSSON ER
NÆSTI JÓN ÁRSÆLL
Úrslit Skólahreystis fara fram í Laugardalshöll um helgina. „Þetta verður
sprengja,“ segir Ásgeir Erlendsson sem býst við að Íslandsmet muni falla.
SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
„Við erum bara rétt að hita
upp. Þátturinn er kominn til
að vera,“ segir Karl Berndsen,
umsjónarmaður þáttarins Nýtt
útlit. Hann hefur
fest sig í sessi sem
tískuvitringur Íslands
síðan þættirnir hófu
göngu sína síðasta
vetur.
Í nýju þátta-
röðinni hefur sú
breyting orðið á að
hann fær eingöngu
þekkt andlit í þáttinn
og reynir að breyta stíl
þeirra á sinn einstæða
hátt. „Það hefur verið
talsvert öðruvísi að
vinna þessa þáttaröð. Ég kem að
viðfangsefninu frá öðru sjónarhorni
þar sem ég veit hver viðkomandi er
og hef jafnvel myndað mér skoðun
á honum áður en ég hitti hann. Í
fyrstu þáttaröðinni hafði ég kannski
meira frjálsræði,“ segir Karl.
Vinsældirnar komu á óvart
Karl segist hafa sérstaklega gaman
af því hversu margir karlmenn
horfa á þáttinn. „Þeir horfa ekkert
síður en konurnar,
þó svo að jafnvel
bara helmingur
þeirra viðurkenni
það. En mig grunar
að þeir horfi með
konunum og
spurningin er bara
hvort þeirra hefur
meiri áhuga,“ segir
Karl og hlær.
Hann segir
vinsældir þáttarins
hafa komið á
óvart. „Guð minn
góður, móttökurnar hafa verið
framar öllum mínum jarðnesku
vonum, gjörsamlega ótrúlegar.
Vindsældirnar komu mér
gjörsamlega í opna skjöldu. Mér leið
eins og það væri verið að leiða mig
til hengingar,“ segir Karl og heldur
áfram: „Þetta var auðvitað erfið
fæðing að öllu leyti. Allt í einu var
ég fyrir allra augum og allir höfðu
skoðun á mér. Þó að ég sé með
nægilega breitt bak til að bera það
þá var ég engu að síður skyndilega
orðinn svolítið berskjaldaður.“
Sigurjón eins og amish
Á dögunum fékk Karl til sín
Sigurjón Kjartansson úr Tvíhöfða.
„Sá þáttur var nú eiginlega bara
skemmtiþáttur. Ég var búinn að
lýsa því yfir að Sigurjón liti út eins
og amish-maðurinn. Miðað við
að hann er fimm árum yngri en
ég fannst mér hann líta helst til
ellilega út,“ segir Karl. Sigurjón
stóð sig þó eins og hetja. „Ég sagði
honum að ég myndi nú reyna að
yngja hann aðeins upp og ég held
að það hafi bara tekist ágætlega.“
Karlarnir horfa ekkert síður
Tískugúrúinn Karl Berndsen
stjórnar þættinum Nýtt útlit
KARL BERNDSEN ER
GLÆPSAMLEGA FLOTTUR
ÞRIÐJUDAGUR KL. 21:10
NÝTT ÚTLIT
Mynd/Golli
Tískuráð Kalla
Vertu sjálfstæður í hugsun
Ekki fylgja endilega
hópnum
Myndaðu þér þínar eigin
skoðanir
Réttu úr bakinu
Berðu höfuðið hátt
Það skiptir ekki öllu máli í
hverju þú ert ef þú kannt
að bera þig vel
SJÓNVARPIÐ KL. 20:10
ÚRSLIT SKÓLAHREYSTI
Ótrúlegt hvað
þau leggja
mikið á sig
Mynd/Ernir
Skólarnir
í úrslitum
Austurbæjarskóli
Dalvíkurskóli
Egilsstaðaskóli
Giljaskóli
Grunnskólinn á Hellu
Grunnskólinn á Ísafirði
Heiðarskóli
Lágafellsskóli
Lindaskóli
Lækjarskóli
Varmalandsskóli
Ölduselsskóli