Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.02.1978, Page 1

Ísfirðingur - 11.02.1978, Page 1
28. árgangur. ísafjörður, 11. febrúar 1978 4. tölublað. Slysavarnafélag íslands 50 ára Slysavarnafélag íslands átti 50 ára afmæli 29. janú- ar s.l., en þann dag 1928 var félagið formlega stofnað. Það orkar áreiðanlega ekki tvimælis, að með stofnun félagsins var mikið gæfuspor stigið, enda löngu viður- kennd af almenningi hin mikilvægu störf þess að slysavörnum almennt. Fé- lagið hefur í ríkara mæli átt hug almennings í sambandi við starfsemi sína en önnur félagsmálasamtök í landinu. Fljótlega eftir stofnun Slysavarnafélagsins hófst það handa um stofnun deilda út um land. Var fyrsta deildin stofnuð í Sandgerði þegar sumarið 1928 og í júlí 1929 var fyrsta björgunarstöðin vígð í Sandgerði. Nú eru félags- deildir starfandi i öllum byggðarlögum landsins og er tala félagsmanna liðlega 30 þúsund. Þar af eru 30 kvennadeildir með um 13 þúsund félagskonur. Má af þessu sjá, að konur hafa ekki legið á liði sínu í starf- semi félagsins og fjáröflun því til handa. Gunnar Friðriksson form. SVFf Ungliðadeildir eru einnig starfandi innan SVFÍ. Frá fyrstu tíð hefur björgun manna út sjávarháska verið meginviðfangsefni félagsins og afrek þess í þeim efnum risið hvað hæst. Björgunar- sveitir félagsins eru nú 87 með um 2500 félagsmanna sem vinna að alhliða björg- unarstörfum, hjálp og að- stoð. Með tilkomu fullkom- inna og stöðugt endur- bættra tækja hefur björgun- arstarfsemi sveitanna stöð- ugt eflst. Nú starfrækir SVFÍ 44 sipbrotsmannaskýli víðsvegar við strendur landsins. Síðastliðin 12 ár hefur verið bjargað 232 mönnum af strönduðum skipum. Á undanförnum árum hefur félagið stöðugt fært út starfsemi sína. Hefur félagið t.d. reist 29 björgunarskýli á fjallvegum landsins. Eru þau búin nauðsynlegum búnaði til öryggis nauð- stöddu fólki. Á þessu ári hyggst SVFÍ „berjast gegn þeirri þjóðarvá, sem um- ferðaslys eru.“ Vafalaust verður félagið áhrifamikill aðili í þeim efnum. Allt frá stofnun Slysa- varnafélags Islands 'hefur það átt því láni að fagna, að forustumenn þess allir hafa verið áhugasamir úrvals- menn. En hinn mikla ár- angur starfsins ber auðvitað einnig að þakka þeim þús- undum félagsmanna SVFÍ, karla og kvenna, í öllum byggðarlögum landsins, sem unnið hafa fórnfúst og óeig- ingjarnt starf í þágu slysa- varna og björgunarmála. Núverandi forseti félags- ins er Gunnar Friðriksson, og hefur hann verið það s.l. 18 ár. JA.J. Strandaði við Arnarfjörð Vélskipið Hafrún BA 400 strandaði við sunnanverðan Arnarfjörð aðfaranótt fimrhtudagins 2. þ.m. Næsta dag náðist skipið á flot og var þá dregið að bryggju á Bíldudal. Miklar skemmdir urðu á botni skipsins og kom að því mik- ill leki. Einnig urðu skemmdir á rafkerfi og vél. Hafrún er um 200 lesta skip og er eigandi þess Fisk- vinnslan á Bildudal h.f. Skipið hefur nú verið dregið til Reykjavíkur þar sem nánari könnun fer fram á skemmdum þess. Það er mikið áfall fyrir Fiskvinnsluna á Bíldudal og allt atvinnulíf á staðnum að missa Hafrúnu frá veiðum. Gert er ráð fyrir að viðgerð á skipinu taki marga mán- uði. Jakob Kristinsson, framkvæmdastjóri Fisk- vinnslunnar, sagði blaðinu að nú væri verið að reyna að fá leiguskip í stað Hafrúnar. Ný ferðaskrifstofa Þessa dagana er að hefja starfsemi sína ný ferðaskrif- stofa í Reykjavík. Nafn skrifstofunnar er ATLAN- TIK TRAVEL eða Ferða- skrifstofan ATLANTIK, og hefur hún aðsetur í Iðnað- arhúsinu að Hallveigarstíg 1. Skrifstofan mun hafa á boðstólum hvers konar ferðaþjónustu, svo sem út- gáfu farseðla íáætlunarfiugi utanlands sem innanlands, hópferðir til nærliggjandi landa og sólarlanda. Ætlun- in er að leggja megináherslu á nýja áfangastaði og þá með smærri hópa. Auk þess mun sk. ifstofan annast mót- töku erlendra ferðahópa. Hljómleikar á ísafirði Menntaskóllnn á ísafirði og Tónllstarfélag isafjarðar stóðu að hljómleikum sem Philip Jenkins, píanóleikari, hélt í Al- þýðuhúsinu á isafirði fimmtu- daginn 9. þ.m. Píanóleikarinn lék af mikilli snilld verk eftir W.A. Mozart, Fauré, W. Alwyn, Fr. Chopin og K. Szyman- owsky. Philip Jenkins er frábær pf- anóleikari og því mjög ánægju- legt á hann að hlýða. Honum var mjög vel tekið af áheyrend- um, sem gjarnan hefðu mátt vera miklu fleirf. Það eitt að Philip Jenkins haldi hljómleika ætti að vera næg ástæða fyrir áheyrendur til að fylla sam- komusal, svo frábær listamað- ur sem hann er. En þegar þar við bætist að tvær merkar stofnanir hér f bænum, Menntaskólinn og Tónlistar- félagið, stóðu að umræddum hljómleikum, þá vekur hin fremur fámenna aðsókn hina mestu furðu. Friðuðu húsin í Neðstakaupstað A fundi bæjarráðs ísa- fjarðar 9. f.m. fiutti Guðm- undur Sveinsson, bæjarfull- trúi, eftirfarandi tillögu, sem var svo samþykkt í bæj- arstjórn 12. f.m., að gerðum smávegis orðalagsbreyting- um: „Þar sem viðgerð er hafin á friðuðu húsunum á ísa- firði á vegum bæjarstjórnar og þjóðminjasafns kjósi bæj- arstjórn þrjá menn, þar af einn samkvæmt tilnefningu ^þgufélags ísfirðinga, til að gera tillögur um fram- kvæmd verksins, ásamt þeim, sem á vegum þjóð- minjasafnsins starfa að því. Athuga þarf til hvers á að nota húsin í framtíðinni og hvernig á að framkvæma hinar ýmsu viðgerðir í sam- ræmi við það. Nefndin geri einnig tillögur um lóðaskip- an og hafi eftirlit með fram- kvæms alls verksins.“ Það er vissulega rétt stefna hjá tillögumanni og bæjarstjórn, að það sem gera þarf til endurnýjunar og viðhalds húsanna sé gert í samráði við þá sem að þessum málum vinna á veg- um þjóðminjasafnsins. Ekki mun bæjarstjórnin ennþá hafa komið því í verk að kjósa þá nefnd sem um er talað í tillögunni hér að of- an. Kvenfélagið Hvöt Kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal átti 65 ára afmæli 29. des. sl. I tilefni þess lagði félagið 200.000 kr. til bygg- ingar skíðatogbrautar í Hnífsdal, sem íþróttafélagið Reynir stendur fyrir. Á aðfangadag jóla færði kvenfélagið Kapellunni í Hafa þegar náðst samningar við þekktar erlendar ferða- Framhald á 2. síðu Hnífsdal 50 sálmabækur að gjöf, áletraðar HNÍFS- DALSKAPELLA með gylltu letri. Stjórn félagsins skipa nú: Jóna Valgerður Kristjáns- dóttir, formaður, Þórdís Þorleifsdóttir, ritari, Þórunn Vernharðsdóttir, gjaldkeri, Hrafnhildur Samúelsdóttir, varaformaður, Kristín Einarsdóttir, Inga Ingimars- dóttir og SóleySigurðardótt- ir, meðstjórnendur.

x

Ísfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.