Ísfirðingur - 24.06.1978, Blaðsíða 2
ÍSFIRÐINGUR
KAD TMMSÓKNAVMANNA / VESírJAKÐAKJÖJtMMI
Ulgefandi:
Kjördœmissamb. Framsóknarmanna í Vestfjarðakjördami.
Ritstjórar:
Halldór Kristjánsson ogjón Á. Jóhannsson, áb.
Afgreiðslumaður:
Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, sími 3332.
Verð árgangsins kr. 600.
Nokkur orð við leikslok
Sviku gefin loforð
Foringjar og áróðursmenn Alþýðubandalagsins
og Alþýðuflokksins standa nú frammi fyrir alþjóð
berir að svikum á loforðum sínum fyrir bæja- og
sveitastjórnarkosningarnar í síðasta mánuði. Fyrir
kosningarnar lofuðu þessir menn því m.a. að
greiða fullar vísitölubætur á öll laun, ef þeir að
afloknum kosningum fengju umboð kjósenda til að
láta að sér kveða og stjórna. Þetta umboð hlotnað-
ist þeim m.a. í Reykjavík. En þessir herrar voru
varla búnir að koma sér fyrir í notalegum borgar-
stjórnarstólum höfuðborgarinnar þegar þeir á-
kváðu að svíkja kosningaioforðin. Með því brugð-
ust þeir því fólki, sem í góðri trú hafði haldið að
loforðum þeirra mætti treysta.
Fyrir kosningarnar þrástöguðust áróðursmenn
þessara flokka á því, sem þeir kölluðu kauprán og
kjaraskerðingu ríkisstjórnarflokkanna. Mátti heita
að þeir bæru sér ekki í munn önnur mál, nema
hvað þeir gáfu sér alltaf tíma til, svona í leiðinni, að
telja fólki trú um hve góðir stjórnendur þeir væru.
Þeir hefðu ráð við hverjum vanda og raunar
myndu öll vandamál leysast af sjálfu sér fengju
þeir að ráða. Svona barnalegur og ábyrgðarlaus
vax málflutningur þeirra.
Við hverju er hægt að búast af svona liði)? Hver
getur forsvarað það fyrir sjálfum sér, að kasta
atkvæði sínu á þessa flokka? Þegar svo við þetta
bætist að forustumenn þeirra og frambjóðendur
eru úrræðalausir Möllum öðrum málum. Innan-
tómur orðaflaumur, gaspur og gífuryrði þessara
áróðursmanna getur aldrei orðið til lausnar vanda-
málum þjóðfélagsins.
Þetta ættu kjósendur að muna við kjörborðin á
sunnudaginn kemur. J.Á.J.
Politiskur
aumingjaskapur
Eitt skýrasta dæmið um ábyrgðarleysi og póli-
tískan aumingjaskap Alþýðuflokksins er sú afstaða
hans að vera á móti útfærslu landhelginnar í 50
mílur á árinu 1971. Er hægt að ganga lengra í
andstöðu við þjóðarhagsmuni en Alþýðuflokkurinn
gerði þá? Þá neitaði Alþýðuflokkurinn að ganga til
samstarfs um vinstri stjórn, vegna þess að hann
var andvígur útfærslu landhelginnar í 50 mílur.
Þetta er söguleg staðreynd. Það var þá, sem
Alþýðublaðið kallaði það „siðleysi" að stækka
landhelgina. Allt frá árinu 1958 hefur Alþýðuflokk-
urinn verið utan gátta og ekkert gert til útfærslu
landhelginnar. En hann bar ábyrgð á nauðungar-
samningnum 1961, sem torveldaði mjög útfærsl-
una. Þá voru „ungu mennirnir" sem nú er víða í
framboði að orjótast til áhrifa innan Alþýðuflokks-
ins.
Hver getur haldið því fram að aukin áhrif
áróðursmanna Alþýðuflokksins á Alþingi íslend-
Framhald af 1. sfðu
Það gerðu jafnaðarmenn
raunar líka.
En af hverju ætli Alþýðu-
bandalaginu hafi vaxið fisk-
ur um hrygg? Ætli skýringin
finnist ekki m.a. í því, að
flokksforystan afneitaði fyrir
síðustu kosningar yfirburð-
um hins sovieska þjóðskipu-
lags, kynnti sig sem
„sósíalskan" lýðræðissinnað-
an flokk og hefur tileinkað
sér ýmiss þau stefnumið, sem
Framsóknarflokkurinn hefur
barist fyrir frá upphafi.
Dekur þeirra við þau öfl
sem gleypa gömlu fræðin
hrá, sem nýmeti væri, án
þess að aðhæfa þau nýjum
tima og þjóðfélagsháttum,
veldur því að öðru hverju er
gægst undan sauðargærunni.
Þetta kemur m.a. fram í loð-
inni stefnuskrá, þar sem gert
er ráð fyrir, að hægt sé að ná
fram markmiðum sínum eft-
ir öðrum leiðum, ef leikregl-
ur lýðræðisins duga ekki.
„Haltu mér, slepptu mér,"
sagði kerlingin. „Mér er ekki
svo leitt sem ég læt."
Alþingismenn eru ekki að-
eins dæmdir eftir því, hverju
þeir fá áorkað í aðalstörfum
sínum á Alþingi, löggjafar-
störfunum. Viðhorf manna
til stjórnmálaflokka mótast
mjög af því, hver viðhorf
þeirra eru til landsbyggða-
þróunnar. Viðhorf til fram-
bjóðenda af því, til hvers
þeir eru líklegir.
Það þarf jafnan þungan
róður til að stöðva þann
straum, sem stríðast rennur.
Grettistaki hefur verið lyft,
ekki aðeins að stöðva, heldur
að snúa við þeim straumi
fólks og fjármagns, sem lá á
viðreisnarárunum frá Vest-
fjörðum á Faxaflóasvæðið.
Þar hafa margir lagt hönd á
plóginn, en þólitískar á-
kvarðanir hafa verið þyngst-
ar á metunum.
Árangurinn er augljós öll-
um. Vestfirðingar eru nú
meðal þeirra sem hæstar
hafa meðaltekjur á hvern
einstakling. Það er rangt að
litið sé á Vestfirðinga sem 2.
eða 3. flokks fólk. Þeir eru
þvert á móti virtir fyrir
dugnað og forystu, t.d. í sjó-
sókn og vinnslu sjávarafla.
Við Djúp og í Árnes-
hreppi voru fyrstu byggðaá-
ætlanir framkvæmdar, til að
tryggja búsetu. Austur-
Barðastrandasýsla, og þó sér-
staklega Gufudalssveit, er nú
í sérstakri athugun. Fólks-
flottinn úr sveitum er stöðv-
aður og jarðir setnar að nýju.
Eftir áratuga deyfð hafa ný
hverfi íbúðarhúsa risið í öll-
um þorpum og baejum.
Víða er nýtt umhverfi, á
vissan hátt, með stórátaki við
lagningu bundins slitlags á
götur í þéttbýli. Sjúkrahús
og heiJsugæslustöðvar rísa af
grunni. Framtíð ísafjarðar
sem skólabæjar er tryggð
með áframhaldandi frar"-
kvæmdum við Menntaskoi-
ann.
Fleira skal ekki talið, en
heldur ekki fjöður yfir það
dregið, að enn er margt ógert
og þörfin brýn. Nauðsynlegt
er hverri framfarabyggð, að
geta boðið upp á fjölbreytt-
ara atvinnulíf en nú er víð-
ast. Þar er mikið komið und-
ir heimamönnum sjálfum og
eigin frumvkæði. Félagsleg
þjónusta, einkum í heibrigð-
ismálum, er víða ekki viðun-
andi, þó nokkuð hafi þokast í
rétta átt. Svo mætti lengur
telja.
Ég bið kjósendur að huga
grannt að því hver hlutur
Framsóknarflokksins og
Framsóknarmanna er í þeim
straumhvörfum sem orðið
hafa. Þá óttast ég ekki þeirra
dóm.
Það er talað um gömlu
flokkana meira að segja tals-
menn þess flokks sem elstur
er, Alþýðuflokksins. Flokkar
verða ekki gamlir vegna þess
hvenær þeir voru stofnaðir.
Þeir verða gamlir ef þeir
halda í steinrunnar hug-
myndir og aðhæfa stefnu
sína ekki þörfum þjóðfélags-
ins á líðandi stund.
Ef rýnt er í þjóðmálaum-
ræður fyrri tíðar, þegar sam-
vinnuhugsjónin var að eflast
til áhrifa, kallaði íhaldið
Framsóknarmenn sosíalista.
Þeim þykir sumum fínt, að
kenna sig við það orð í dag,
sem ekki eru Framsóknar-
menn. Framsóknarmenn
hafa hinsvegar notað íslenskt
orð og kennt sig við félags-
hyggju og framfarir
Þeirri hugsjón hefur
Framsóknarflokkurinn verið
trúr og haft félagshyggju að
leiðarljósi við breytilegar að-
stæður. Hann hefur tekist á
við vandamálin hverju sinni
án lýðskrums eða gylliboða.
Framsóknarflokkurinn
mun að kosningum loknum
einbeita sér að því, að ná
valdi á efnahagsmálunum,
með það að leiðarljósi að
tryggja fulla atvinnu lands-
manna og nýta auðlindir
þjóðarinnar, en þó ekki að
ofnýta þær. Mátt sinn sækir
hann til þjóðarinnar 25. júní
n.k.
Vilt þú kjósanii efla Fram-
sóknaflokkinn til áframhald-
andi framfarasóknar, til
mótunar alíslenskrar at-
vinnu- og menningarstefnu?
Gunnlaugur Finnsson.
m *
Á kjördag, sunnudaginn 25. júní
n.k., verður kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins í kaffistofu
Kaupfélags ísfirðinga, á annari hæð
hússins við Austurveg. Sími 3690.
Kaffiveitingar fyrir starfsfólk og
stuðningsmenn.
Leiðrétt-
ing
í grein frú Ingibjargar
Norðkvist, sem birtist á 3.
síðu í síðasta blaði þ.e. 18.
tölublaði, hefur mér við
prófarkalestur yfirsést þann-
ig, að tvær setningar í grein-
inni þurfa leiðréttingar við.
1. Fyrsta setning í fimmtu
málsgrein hefur brenglast,
en rétt er setningin þannig:
inga séu í samræmi við þjóðarhagsmuni, þegar
tekin eru mið af afstöðu þeirra í landhelgismálinu?
Því verða kjósendur að svara í kjörklefunum
þann 25. þ.m.
J.Á.J.
Kannske þeir ætli að telja
fólki trú um, að þeir, efldir
til áhrifa, minnki ríkisbákn-
ið?
2. Næst síðasta setning í
tólftu málsgreininni er rétt
þannig: Albertska er and-
byggðastefna.
Um leið og þetta er hér-
með leiðrétt, er frú Ingibjörg
beðin velvirðingar á mistök-
unum.
JÁJ.