Ísfirðingur


Ísfirðingur - 27.10.1978, Side 2

Ísfirðingur - 27.10.1978, Side 2
2 ÍSFIRÐINGUR Wimipr VSÓKNAKMANNA i VESTFJAJZÐAKJÓltDAiMI Utgefandi: Kjördœmissamb. Framsóknarmanna í Vestfjarðakjördœmi. Ritstjórar: Halldór Kristjánsson og Jón Á. Jóhannsson, áb. Afgreiðslumaður: Guðmundur Sveinsson, Engjavegi 24, simi 3332. Verð árgangsins kr. 6uu. Vilja stjórna fyrir fólkið og með fólkinu Á fundi í sameinuöu Alþingi fimmtudaginn 19. þ.m. flutti Ólafur Jóhannesson, forsætisráöherra, stefnuræðu ríkisstjórnar sinnar. í ræöu sinni, sem var mjög ítarleg, sagöi forsætisráöherrann aö ríkis- stjórnin teldi þaö höfuðverkefni sitt á næstunni, aö ráöa fram úr þeim vanda sem viö er aö fást í atvinnu- og efnahagsmálum þjóöarinnar, sem og stefnumörkum og undirbúningur þjóöhags- og framkvæmdaáætlunar til nokkurra næstu ára, og í því sambandi fjallaði hann um helstu þætti þjóö- málanna. Lokaorö ráöherrans voru þessi: ,,Ég býst viö því, aö flestir stuöningsmenn þeirra flokka, sem aö stjórn þessari standa, ætlist til þess, aö ríkisstjórn þessara flokka sé umfram allt fram- farastjórn. Og vissulega vill þessi ríkisstjórn vera framfarastjórn, svo sem mörg ákvæöi stefnuskrár- innar bera vitni. Hlutverk þessarar stjórnar verður þó fyrst í staö, að mínum dómi, fyrst og fremst þaö aö vera viönáms- og aðhaldsstjórn. En ég held ég geti sagt, án þess aö þaö séu innantóm orö, aö viö viljum stjórna fyrir fólkið og meö fólkinu. Gengi þessarar stjórnar er því ekki hvaö síst undir því komið, aö henni takist aö fylgja þeirri leiöarstjörnu. Og menn geta spurt sjálfa sig: Ef þessari stjórn tekst þaö ekki — hvaö þá? Þaö segir sig sjálft, aö þessi ríkisstjórn, eins og raunar aörar, hefur störf sín meö þeim ásetningi aö koma góöu til leiðar. En þrátt fyrir aö ýmsu leyti hagstæöar ytri aöstæöur og þrátt fyrir þaö, aö viö ættum aö standa sæmilega aö vígi, þó aö eitthvaö kunni aö blása á móti, þá er því ekki aö neita, aö viö ýmis vandamál er aö fást, sum sprottin upp í heimahogum, en önnur utanaökomandi og síður á okkar valdi. Á bak viö margt leiti bíður óvissa. Þaö er því ekki á mínu færi aö spá um framtíðina. Þess vegna fer best á því viö upphaf ferðar aö stilla öllum fullyrðingum í hóf. Þessi ríkisstjórn ætiar sér ekki þá dul aö gera alla ánægða. Ákvaröanir ríkisstjórnar byggjast á samanburöi og mati á hagsmunum og valkostum, aö sjálfsögöu innan ramma laganna. Þessi ríkis- stjórn vill ööru framar líta á hagsmuni heildarinnar án þess þó aö setja frjálsræöi einstaklingsins og athafnaþörf skoröur fram yfir þaö, sem þjóöarhag- ur krefst. Auðna hlýtur oft aö ráöa, hversu til tekst í framkvæmd og aö hve miklu leyti góö áform verða aö veruleika. En aö sjálfsögöu er þaö von ríkis- stjórnarinnar aö geta stuölaö aö því aö bæta samfélagið og lífsskilyröi innan þess á ýmsa lund, þannig að íslenskt þjóöfélag megi veröa öörum til fyrirmyndar á sem flestum sviöum. Þess vegna vill ríkisstjórnin treysta á skilning og velvilja þing- manna og þjóöarinnar." Sextugur: Guttormur Sigurbjörnsson GUTTORMUR Sigurbjörnsson, Sunnubraut 10 Kópavogi, forstj. Fasteignamats ríkisins varð sextugur 27. f.m. Hann er fæddur að Hallormsstað í Suður-Múlasýslu 27. sept- ember 1918. Foreldrar hans eru hjónin Gunnþóra Gutt- ormsdóttir og Sigurbjörn Snjólfsson Gilsárteigi Eiða- þinghá. Guttormur lauk prófi frá Héraðsskólanum á Eiðum 1938 og búfræðinámi frá Hvanneyri 1941. Hann lauk íþróttakennara prófi 1942 og prófi frá íþróttaháskólan- um í Osló 1951. Hann stundaði nám í endurskoðun í Málmey í Svíþjóð og lauk aðan prófi. Jafnframt tók ann þátt í námskeiðum í endurskoðun og skattarétti í Osló, Stokkhólmi og Málm- ey á árunum 1956—1958. FÍann var kennari við barna- skólann á Eskifirði og íþróttakennari hjá Ung- menna- og íþróttasambandi Austurlands á árunum 1942—1944. Á árunum 1945—1955 átti Guttormur heima á ísa- firði, eða í 10 ár. Hann var forstjóri Sundhallar ísafjarð- ar 1945—1952, en á því ári var hann skipaður skattstjóri á ísafirði og því starfi gegndi hann þar til hann flutti úr bænum vorið 1955, eins og M. Bernharðsson Skipasmíðastöð hf. Verslun sími 3139 Járnborar H.sp. borar 2-20 mm. Steinborar 3-20 mm. Tréborar 3/8” -13/8- PVC piastslöngur 5/16” - 3/8” -1 /2” - 5/8” - 3/4” Vinnuskyrtur — Verð frá kr. 2.500 Vinnusloppar — Verð frá kr. 6.300 Samfestingar úr bómull og nylon, verð frá kr. 10.600 Kuldaúlpur — Verð 17.800 KosanteA — Auglýsið í ísfiröingi Guttormur Sigurbjörnsson að framan greinir. Á árun- um 1954—1955 var hann bæjarfulltrúi fyrir Frams- óknarflokkinn á ísafirði og jafnframt bæjarráðsmaður og varaforseti bæjarstjórnar. Að margskonar félags- og íþróttamálum vann Gutt- ormur mjög mikið hér í bæn- um á ísafjarðarárum sínum. Formaður Skíðafélags ísa- fjarðar var hann 1946—1949 og formaður íþróttabanda- lags Isfirðinga 1951 —1955. Hann tók mikinn þátt í sönglífi bæjarins, söng með Karlakór 'ísafjarðar árum saman, og einnig 1 kvartett, sem á þeim árum söng oft á samkomum i bænum. Hann var einn af aðalhvatamönn- um að stofnun Framsóknar- félags ísfirðinga og að stofn- un blaðsins ísfirðiongs 1949. Ritstjóri blaðsins var hann þar til hann flutti úrbænum. Vegna áhuga og dugnaðar Guttorms var mjög ánægu- legt að vinna með honum að félagsmálum. Um það munu margir ísfirðingar eiga góðar minningar. Síðan Guttormur flutti frá ísafirði hefur hann við marg- vísleg störf fengist. Erind - reki Framsóknarflokksins í Reykjavík var hann 1955—1957. Deildarstjóri hjá Skattstofu Reykjavíkur um tíma og skattstjóri í Kópavogi 1958—4962. Bæjarritari í Kópavogi var hann um skeið og hann hefur átt sæti í nokkrum opinberum nefndum. Frá ár- inu 1974 hefur hann verið forstjóri Fasteignamats ríkis- ins. Eiginkona Guttorms er Aðalheiður Guðmundsdótt- ir, Björnssonar fyrrv. kaup- manns á ísafirði. Þau eiga einn son, Ingva Kristján. Ég og kona mín sendum Guttormi og fjölskyldu hans bestu hamingjuóskir í tilefni afmælisins og þökkum ágæt kynni. Undir þær óskir hygg ég að margir góðkunningjar hans á ísafirði vilji taka. Jón Á. Jóhannsson Til sölu örbylgjutæki, Lava- yette HA- 600 A Bylgjusvið frá 0,4-30 mhz. Svart hvítt sjón- varpstæki14” Hithachi Rúm úr furu, 1V2 breidd Barnavagn og barnastóll Tvö gólfhátalara- box, Goodmanns 60 Wött 8 ohm, 9 hátal- arar í hvoru boxi Þilofn 1500 Wött Glamox VÖLUNDUR DANÍELSSON Skólastíg 8, Bolungarvík Vinnusími 7351

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.