Ísfirðingur - 27.10.1978, Síða 4
Ályktun
í síðasta blaði voru birtar
ályktanir sem samþykktar
voru á aðalfundi Vestfirska
náttúruverndarsamtaka 2.
september s.l. Ein ályktunin
féíl niður og birtist nún hér
með:
„Aðalfundur V.N. 1978
hvetur sveitarfélög á Vest-
fjörðum til þess að beita sér
fyrir stofnun Náttúrufræði-
stofu Vestfjarða, sem síðar,
er fram liðu stundir, yrði,
ásamt öðrum söfnum á Vest-
fjörðum, hluti af Safnastofn-
un Vestfjarða.
Verkefni stofnunarinnar verði
m.a. að annast fræðslu og
heimildasöfnun um náttúru
fjórðungsins og að koma upp
í því sambandi sýningarsafni
náttúrugripa og að standa að
farsýningum.
t Einnig verði að því stefnt
að stofan geti annast nátt-
úrurannsóknir og vinna að
nátturuvernd og skyldum
verkefnum m.a. í þágu opin-
berra aðila. Við það ætti að
miða að stofan komi að not-
um fyrir skóla á svæðinu og
verði því einnig leitað sam-
vinnu við forráðamenn
þeirra um að koma henni á
fót.“
Al-
manna*
varnir
Á fundi almannavarna-
nefndar ísafjarðar 26. sept.
s.l., en á fundinum voru
einnig mættir tveir fulltrúar
frá Almannavörnum ríkisins,
kom m.a. eftirfarandi fram:
Kynntar voru hugmyndir
Almannavarna ríkisins um
tengingu almannavarna við
dreifbyli, þar sem gert er ráð
fyrir, að Almannavarna-
nefnd ísafjarðar tengist
Súðavíkurhreppi, Ögur-
hreppi, Reykjafjarðarhreppi,
Nauteyrarhreppi og Snæ-
fjallahreppi. Jafnframt verði
tengsl við sérstakar almanna-
varnanefndir á Suðureyri,
Flateyri, Þingeyri, Mýra-
hreppi og Auðkúluhreppi.
Rætt var um snjóflóð og
snjóflóðavarnir. Stefnt er að
því, að Almannavarnir ríkis-
ins sendi hingað sérfræðinga
á þessu ári til að ráðgast við
heimamenn um snjóflóð og
snjóflóðavarnir.
Lögtaksúrskurður
VEGNA VANGREIDDRA GJALDA
TIL RÍKISSJÓÐS
í fógetarétti ísafjarðar hinn 9. okt. var
kveðinn upp lögtaksúrskurður fyrir eftir-
töldum gjöldum til ríkissjóðs:
Tekju- og eignaskattur ásamt tekju- og
eignaskattsviðauka, skyldusparnaður,
sjúkratryggingagjald, launa-
skattur, iðnaðargjald, iðnlánasjóðs- og
iðnaðarmálagjald, byggingariðnaðar-
sjóðsgjald og gúmgjald. Gjald af bifreið-
um og bifhjólum, sölugjald af vörusölu,
þjónustu, skemmtunum og innfluttum
vörum og launaskattur skv. skýrslum.
Vörugjald af innlendri framleiðslu, inn-
fluttum vörum og af flutningí svo og
jöfnunargjald.
Miðagjald til Menningarsjóðs, skemmt-
anaskattur, fiugvallargjald, þungaskattur
skv. ökumælum, bifreiðaskattur, skoðun
og skráningargjald ökutækja, lestagjald,
skipaskoðunargjald, vitagjald, prófgjald
bifreiðastjóra og iðnnema.
Verðjöfnunargjald raforku, skipulags-
gjald, útflutningsgjald, verðjöfnunargjald
af veiðarfærum, búnaðarmálasjóðsgjald,
fóðureftirlitsgjald, sektir og upptækar
vörur, afgjöld ríkisjarða, öryggiseftirlits-
gjald og vextir og dráttarvextír.
Má lögtak fara fram, þegar átta dagar
eru liðnir frá birtlngu þessa úrskurðar,
fyrir gjöldunum og kostnaði við gerðirnar
Bæjarfógetinn á ísafirði
Sýslumaöur ísafjarðarsýslu.
Aflabrögð á Vestfjörðum
í september 1978
Gæftir voru fremur stirðar
í september og afli orðinn
verulega tregari heldur en
fyrr á sumrinu. Gátu færa-
bátar lítið verið að veiðum
og hættu flestir í byrjun
mánaðarins, en stærri línu-
bátarnir hófu margir róðra á
ný eftir miðjan mánuðinn.
Togararnir voru einnig
margir frá veiðum hluta
mánaðarins vegna þorsk-
veiðibanns sjávarútvegsráðu-
neytisins og notuðu tímann
til viðgerða, en sumir héldu
á aðrar veiðar.
f september stunduðu 100
(108) batar botnfiskveiðar
frá Vestfjörðum, 65 (70) með
handfæri, 14 (22) réru með
línu, 12 (10) með botnvörpu,
5 (4) með dragnót og 4 (2)
með þorskanet.
Heildaraflinn í september
var 4.134 lestir, en var 3.431
lest í september í fyrra. Er
heildaraflinn á sumarvertíð-
inni þá orðinn 28.885 lestir,
en var 23.791 lest á síðustu
sumarvertíð. Á sumarvertíð-
inni er öllum fiski landað
slægðum og miðast allar
þessar aflatölur við slægðan
fisk, en sumaraflinn jafngild-
ir 33-34 þús. lestum af ó-
slægðum fiski. Aflinn á síð-
ustu vetrarvertíð var 32.627
lestir af óslægðum fiski, en
það var mesti vertíðarafli til
þessa. Aflinn á sumarvertíð-
inni er því mesti afli, sem
borist hefir á land á Vest-
fjörðum á einni vertíð og
þykir tíðindum sæta, þegar
sumaraflinn er orðinn meiri
heldur en aflinn á vetrarver-
tíðinni. Afli togaranna í
september var 3.243 lestir og
er afli þeirra á sumarvertíð-
inni þá orðinn 19.793 lestir
eða 68,5% heildaraflans, en á
vetrarvertíðinni var togara-
aflinn 49% heildaraflans.
Aflinn í hverri verstöð:
Patreksfjörður:
Guðm. í Tungu tv. 273,7 3
Maríajúlía 1. 24,9 4
Gylfi tv. 20,2 1
15 færab. 74,7
4 dragnótab. 32,4 16
Tálknafjörður:
Tungufell 1 (ósl.) 55,7 16
Tálknf. (ósl.) 46,3 15
Bíldudalur:
Birgirl. 74,3 2
Flug-
leiðir hf.
Eins og frarn hefur komið
í fjölmiðlum hafa undanfar-
ið staðið yfir viðræður milli
forráðamanna Vængja h.f.,
og Flugleiða um möguleika
á sameiginlegum rekstri á-
ætlunarfiugs þessara tveggja
félaga á innanlandsflugleið-
um.
Þessar samræður og at-
huganir sem þeim hafa fylgt,
hafa leitt til þeirrar niður-
stöðu að við réttar aðstæður
geti verið hagkvæmt að starf-
rækja áætlunarflug þessara
tveggja félaga sameiginlega.
Hinsvegar blasir við sú stað-
reynd að bæði innanlands-
fiug Flugleiða og Vængja er
rekið með verulegum halla,
er að mestu stafar af rangri
stefnu í verðlagsmálum.
Með tilliti til þessa, sam-
þykkti stjórn Flugleiða á
fundi sínum 12. október s.l.
að hætta viðræðum við for-
ráðamenn Vængja h.f., um
sameiginlegan rekstur eða
kaup á félaginu.
Fyrirliggj-
andi er
togvír fyrir
rækjubáta
9,10 og
12 mm.
Netagerð
Vestijarða hf.
Sími 3413 - ísafirði.
Steinanes 1. 29,9 12
2 dragnótab. 15,7 9
Þingeyri:
Framnes 1 tv. 338,0 3
Flateyri:
Gyllir tv. 221,9 2
Vísir 1. (ósl) 26,0 12
Ásgeir Torfas. 1. 13,5 9
Suðureyri:
Elín Þorbjd. tv. 370,9 3
14 færab. 65,1
Bolungarvík:
Dagrún tv. 272,5 3
Heiðrún tv. 141,3 3
Páll Helgi n. 89,7 20
14 færab. 53
Flosi 1. 15,4 7
Isafjörður:
Páll Pálls. tv. 394,6 4
Guðbjörg tv. 383,7 3
Guðbjartur tv. 297,9 3
Júlíus Gerims. tv. 288,9 3
Orri 1. (ósl.) 47,5 10
Engilráð n. 46,8
Víkingur III. (ósl.) 38,5 8.
Silfá dr. 32,5
Sólrún n. 24,7
Guðný 1. (ósl.) 23,4 5
10 færab. 39,9
Súðavík:
Bessi tv. 259,2 4
Hólmavík:
4 færab. 14,0
Drangsnes:
1 færab. 10,0
Framanritaðar aflatölur
eru miðaðar við slægðan fisk
m/haus, nema þar sem
annað er tekið fram.
Afiinn í hverri verstöð í sept-
ember:
1978 1977
Patreksfjörður
Tálknafj.
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarv.
ísafj.
Súðavik
Hólmavík
Drangsnes
426 ( 342)
85 ( 76)
120 ( 0)
234 ( 201)
259 ( 436)
436 ( 405)
582 ( 545)
1.709 (1.130)
259 ( 212)
14 ( 80)
10 ( 0)
Maí/ágúst
4.134 (3.431)
24.751 (20.360)
28.885 (23.791)
Skelfiskveiðar
Þröstur frá Bíldudal
stundaði skelfiskveiðar í
Arnarfirði og afiaði 15,6 lest-
ir í september. Frá ísafirði
stunduðu tveir bátar skelfisk-
veiðar, Kristrún aflaði 30,0
lestir og Bára 20,0 lestir.