Monitor - 24.06.2010, Síða 3
Í þessu blaði tekur Monitor púlsinn
á popplandsliðinu sem réði lögum
og lofum í sveitaballageiranum
um og fyrir síðustu aldamót. Af
því tilefni verða allir að kanna
þekkingu sína í sveitaballafræðum
með þessu lauflétta sjálfsprófi.
1 Hvað heitir Buttercup lagiðsem inniheldur textabrotið:
„Til hvers að lifa hér án þín? Til
hvers að fara á fætur?“
a) Án þín. b) Endalausar nætur.
c) Langar að deyja.
2 Í hvaða kaupstað er BirgittaHaukdal fædd og uppalin?
a) Sauðárkróki. b) Húsavík
c) Kattarfirði.
3 Hvað kölluðu Land ogsynir sig þegar þeir fóru til
Bandaríkjanna að meika það?
a) Beaten Bishops. b) Land of Sons.
c) Shooting Blanks.
4 Hvaða poppsveit gaf út EP-plötuna Klám árið 1996?
a) Sóldögg. b) Buttercup.
c) Skítamórall.
5 Hver var söngkona Írafárs íupphafi? a) Íris Kristinsdóttir.
b) Anna Reynisdóttir. c) Rakel Sif
Sigurðardóttir.
6 Hvaða meðlimur Skítamóralser hálfbróðir Einars Bárðar-
sonar? a) Einar Ágúst. b) Addi
Fannar. c) Sigurbjörn Bárðar.
7 Af hverju þarf að keyra Magnaheim í laginu Keyrðu mig heim?
a) Hann er fótbrotinn. b) Hann er
bensínlaus. c) Hann er fullur.
8 Meðlimir hvaða hljómsveitarfengu sér einkanúmer með
nafni sveitarinnar? a) Meðlimir
Skítamórals. b) Meðlimir Lands og
sona. c) Meðlimir Sóldaggar.
Svör: 1 – b. 2 – b. 3. – c. 4 – a.
5 – a. 6 – b. 7 – c. 8 – a.
7-8 stig Þú ert Einar Bárðarson.
Konungur sveitaballapoppsins!
5-6 stig Þú fórst að gráta þegar
Valur og Íris hættu saman, en það
er greinilega meira en ár síðan
þú skelltir plötunni Buttercup.is í
spilarann.
3-4 stig Þú syngur með í laumi
þegar partígítarleikarinn spilar
Vöðvastæltur, en þú keyptir
greinilega aldrei Herbergi 313.
1-2 stig Til háborinnar skammar! Þú
kæmist aldrei inn á ball í Njálsbúð.
„Er stelpuhúmor öðruvísi en strákahúmor?“ eða
„eru strákar fyndnari en stelpur?“ eru spurningar
sem þær Margrét Erla Maack og Þórdís Nadia
Semichat, meðlimir í stelpnauppistandshópnum
Uppistöðufélaginu, fá oft. „Já, það er alltaf spurt
um það sama og það er frekar pirrandi,“ segir
Margrét en bætir við að hugsanlega bjóði þær
svolítið upp á það. „Við tölum oft um þannig
hluti og eigum það til að fara út í eitthvað mjög
persónulegt.“
Uppistöðufélagið hefur vakið mikla athygli
á stuttri ævi en það var Þórdís Nadía sem átti
frumkvæðið. „Ég planaði kvöld þar sem ég og
fjórar aðrar stelpur ætluðum að láta reyna á
þetta. Þetta var stressandi. Ég borðaði ekki í þrjár
vikur og hugsaði ég hvað í andskotanum ég væri
búin að koma mér út í,“ segir Þórdís Nadia sem
er öllu sjóaðri í dag. „Ég bjóst við í mesta lagi 60
manns en það komu um 200.“
Enginn þorði
„Ég er ótrúlega hamingjusöm með að það sé
loksins komin uppistandsmenning hérna og
smá samkeppni,“ segir Margrét Erla sem er líka
ánægð með að nú sé þetta komið á það stig að
uppistandarar séu farnir að leiðbeina hvorum
öðrum. „Þetta hefur breyst mikið á stuttum tíma.
Vinur minn, þekktur uppistandari sem hafði
meðal annars hitað upp fyrir Conan O‘Brien,
kom til landsins í fyrra að
skemmta og það var bara
vesen að finna einhvern
til að hita upp,“ segir hún
en nú sé staðan allt önnur.
“Þetta myndi aldrei gerast í
dag. Fólk myndi slást um að
fá að hita upp.“
Margrét segir uppistandið
ekki eins erfitt og margir
halda. „Ef maður er með
ákveðna míkrófónagreddu
eða finnst gaman á sviði þá
er þetta mjög auðvelt,“ Þá
segist hún hafa skilið fólk
sem stundar AA mun betur
eftir fyrsta kvöldið. „Maður
stendur fyrir framan fólk og miðlar sögum
byggðum á einhverjum sannleik um eitthvað
sem er aulalegt eða erfitt. Og það er gott að fá
viðbrögð. Fólk hlær oft frekar af því það skilur
eitthvað heldur en að það sé svo brjálæðislega
fyndið. Það myndast einhver ný tenging í
hausnum á fólki.“
Spari-Margrét í sjónvarpið
Landsmenn, sem margir þekkja
Margréti Erlu af Rás 2, munu þó fá
enn fleiri tækifæri til að fylgjast
með henni því hún hefur brátt
störf í Kastljósi Sjónvarpsins. „Ég
er mjög spennt, alveg að bilast,“
segir hún um nýja starfið en
reiknar ekki með að Kastljósið
verði eitt grín í hennar meðförum.
„Nei, það verður Spari-Margrét
sem fer í Kastljósið. En ég er að
leysa Ragnhildi Steinunni af svo
ég fæ að sinna skemmtilegu
málunum.“
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Sími: 569-1136
Blaðamenn: Haukur Johnson (haukurjohnson@monitor.is), Vigdís Sverrisdóttir (vigdis@monitor.is) Forsíða: Ernir Eyjólfsson
Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Grafík: Elín Esther Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
Skjoldur
Eyfjord er að
missa sig heima
með danstónlist
að 100 get ekki
setið kjurrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr
22. júní kl. 20:23
Hemmi Gunn
Brassarnir
smám saman
að finna
sambataktinn
og þá fer að verða gaman!
Nú fer keppnin að verða
skemmtilegri með degi
hverjum og “bestu” liðin verða
nú að sýna hvað þau geta!
20. júní kl. 21:18
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010 Monitor
Monitor
mælir með
Konfekt er gaman-
þáttur sem var stjórnað
af Barða Jóhannssyni og félögum
hans á Skjá
Einum fyrir
nokkrum
árum. Hægt
er að finna
nokkra
sketsa úr
þáttunum
á YouTube,
en segja má að
Barði hafi verið skrefinu á undan
Íslendingum í gríni. Sérstaklega má
mæla með sketsinum Tussuduft.
Shalimar er
lítill staður í Austurstræti
þar sem hægt er að
fá hrikalega góðan
indverskan og
pakistanskan mat.
Staðurinn hefur
mikinn sjarma og
þar er jafnan boðið
upp á fjölbreytt tilboð.
Það er óhætt að mæla
með Tandoori- kjúkling og hvítlauks
naan-brauði sem er himneskt.
Bókakaffihúsin eru
málið í dag. Í veðurblíðunni er
yndislegt að kíkja. Í Eymundsson
er tilvalið að grípa blöð og bækur
til að lesa yfir kaffinu. Tilvalinn
sunnudagsviðburður fyrir tísku-
þyrstar stúlkur
að líta yfir
helstu glans-
tímaritin
og fá sér
gott kaffi.
Vikan á...
Feitast í blaðinu
Gamla popplands-
liðið. Hvað eru
Hreimur, Birgitta,
Íris og félagar
að gera í dag? 4
Tobba í viðtali.
Hún var að gefa út
bók og ætlar sér að
gera sjón-
varpsþátt.
Hver klæddist
flíkinn best? Og
ýmislegt fleira
úr heimi
tískunnar.
8
Fílófaxið tekur
saman helstu við-
burði helgarinnar
á einum
stað. 15
HM með augum
hálfvitans! Mynda-
veisla frá því sem
gerist utan
vallarins. 12
Á NETINU
VEITINGASTAÐUR
KAFFIHÚS
Sigríður
Klingenberg
AÐ DEYJA
VÆRI VESEN
OG VANDI--TIL
ÞESS ER ÉG EKKI Í NÓGU
OG GÓÐU STANDI--SVO
LÍFIÐ EG TEK MEÐ TRUKKI-
--OG DÁLÍTIÐ AF FUKKI..
17. júní kl. 02:10
Efst í huga Monitor
Margrét Erla Maack og Þórdís Nadia Semichat eru í stelpnauppistands-
hópnum Uppistöðufélaginu sem er stórveldi í íslensku uppistandi
MARGRÉT ERLA OG ÞÓRDÍS NADIA
DJÓKA ÚR SÉR LÍFTÓRUNA
Vala Grand
er að versla
undirföt eins
og mofo 86
nyjar nærbuxur
sem er komnar i skpáinn
ahhahahah tala um að missa
sig á undrifataverslun
23. júní kl. 02:10
Sveitaballa-Quiz
Mynd/Ernir
6
STRAX KOMNAR
Á HVÍTA TJALDIÐ
Á föstudaginn verður heimildarmynd
um stelpurnar, Uppistandsstelpur,
forsýnd í Háskólabíói. „Ég fylgdist
með þeim alveg frá því þær hittust
og ræddu stofnun uppistandshóps,
því þeim fannst vanta stelpur í
uppistand,“ segir Ása Einarsdóttir,
leikstjóri myndarinnar. „Svo er ég
búin að fylgjast með ferlinu og
þetta hefur gengið svona rosalega
vel,“ segir hún en sýningin hefst
klukkan 20 og eru allir velkomnir.
Bubbi
Morthens Að
reina sannfæra
mann um að
Guð sé ekki
til er álíka að Reyna drekka
sand.
20. júní kl. 21:57
Míkró-
fóna-
gredda
hjálpar