Monitor - 24.06.2010, Blaðsíða 5

Monitor - 24.06.2010, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010 Monitor IÐ ÍSLENSKRA PO PPARA? í Buttercup-landi og Birg itta stóð gleitt? Sveitaba llahljómsveitirnar réðu rí kjum og tættu upp íslenskra poppara, nú þe gar um tíu ár eru liðin fr á endalokum sveitaballa menningarinnar Staðan á þér: Eins og flestir aðrir í bandinu er ég búin að stofna fjölskyldu. Við nýttum öll tímann vel og ég held við höfum öll átt barn á einu og hálfu ári. Svo hef ég verið í námi í Danmörku, fór fyrst í söngskóla og svo söngkennaranám. Þannig að ég er búin að vera í tónlistinni þótt ég hafi ekki verið að koma fram síðan ég eignaðist barn. Staðan á hljómsveitinni: Við fórum í frí 2007, það var ekki bara til að segja það. Lífið snérist um bandið og það var alltaf brjálað að gera. Það var tímabært að draga sig í hlé og við sjáum ekki eftir því. En við hlökkum mikið til að koma saman aftur en það er bara spurning hvenær það verður. Það styttist vonandi í það. Hápunkturinn: Það var svo margt alveg geggjað. Það var samt rosalega gaman þegar við gáfum út plötuna Nýtt upphaf. Þá fórum við í tónleikaferð sem hét Íslandstúrinn og var til styrktar Einstökum börnum. Við héldum stóra og flotta tónleika út um allt land og gáfum peninginn. Við erum voðalega stolt af því og það stendur svolítið upp úr. Sérstaða Írafárs: Ég held að við höfum okkar Írafárs-sound. Þegar þú heyrir Írafárslag þá veistu það. Saknarðu gömlu tímanna? Ég fæ alltaf smá straum þegar ég hugsa til baka, þetta var náttúrulega rosalega gaman. Ég myndi samt ekki vilja fara aftur í þetta á nákvæmlega sama hátt. Þetta var barn síns tíma en það þroskast allir og vilja prófa nýja hluti. Staðan á þér: Ég vinn hjá Ölgerðinni, í hráefni fyrir matvælaiðnað með bakarí sem sérgrein, og hef gert í mörg ár, í rauninni síðan hljómsveitin hætti. Ég hef gefið út sólóplötu síðan þá og hef verið að vinna með Vinum vors og blóma svo maður er ekkert hættur. Maður kemur í þetta svona annað slagið en að vera í þessu á fullu er bara lífsstíll. Ég get ekki verið kótilettukall og einhver brjálaður rokkari á sama degi. Staðan á hljómsveitinni: Hljómsveitin er hætt en mun alveg pottþétt koma saman aftur einn daginn. Hápunkturinn: Það var líklega þegar við fengum fyrsta plötusamninginn. Það var gríðarlega flott móment. Svo tókum við Eldborg og Þjóðhátíð á sömu helginni sem var nokkuð stórt. Eldborgarhátíðin verður auðvitað ekki haldin aftur svo það verður ekki leikið eftir! Sérstaða Sóldaggar: Sérstaða okkar var kannski að við vorum mjög góðir „live“. Staðan á þér: Ég er í Kvikmyndaskóla Íslands að læra leiklist og útskrifast þaðan sem leikkona um næstu jól. Ég sem ennþá mikið af textum og hef sem dæmi samið texta fyrir lagahöfundinn Halldór Guðjónsson, meðal annars fyrir lög í Söngvakeppni Sjónvarpsins og ég samdi líka texta við Ljósanæturlagið 2008. Ég og Heiðar, sem var með mér í Buttercup, erum líka svolítið að semja saman. Þetta er eitthvað sem verður alltaf í manni en núna er ég aðallega að einbeita mér að því að verða leikkona - sem var alltaf draumurinn. Staðan á hljómsveitinni: Ég hætti í henni árið 2001 og hún er ekki virk í dag, en ég held hún hafi aldrei formlega hætt. Hápunkturinn: Það var ákveðinn hápunktur að ná í skottið á þessum sveitaböllum sem eru bara liðin tíð núna. Við náðum líka nokkrum flöskuböllum sem enginn veit hvað er í dag nema Þjóðminjasafnið, en það voru böll þar sem fólk mátti koma með eigið áfengi inn á ballið. Saknarðu gömlu tímanna? Þetta var dásamlegur tími og ég hefði aldrei viljað missa af honum, en ég sakna þess ekki. Þá átti ég bara eitt barn en nú á ég þrjú og eitt fósturbarn og er orðin 35 ára. Svo það er aðeins minni orka í gangi. Sérstaða Buttercup: Við vorum eina hljómsveitin þar sem voru strákur og stelpa að syngja saman. Það hafði í rauninni ekki verið síðan Stuðmenn voru. Barnagæfa í bandinu Kótilettukarl á daginn Náði nokkrum flöskuböllum BIRGITTA Hljómsveit: Írafár Starfaði: Frá 2000 en fór í hlé 2007. Helstu slagarar: Fingur, Stórir hringir, Hvar er ég, Allt sem ég sé, Ég sjálf. Hvaðan: Alls staðar að. Mest selda platan: Allt sem ég sé (2002). BERGSVEINN Hljómsveit: Sóldögg Starfaði: Frá 1994 til 2002. Helstu slagarar: Friður, Svört sól, Leysist upp. Hvaðan: Reykjavík. Mest selda platan: Breyt‘ um lit (1997). ÍRIS Hljómsveit: Buttercup. Starfaði með hljómsveitinni: Frá 1999 til 2001. Helstu slagarar: Endalausar nætur, Meira dót, Af hverju, Aldrei. Hvaðan: Vestmanna- eyjum, Ísafirði, Reykjavík og Hafnarfirði. Mest selda platan: Buttercup.is (2000).LÍTIÐ BREYTT ÍRIS KRISTINS- DÓTTIR ER ENN SPRÆK TOPPURINN BERGSVEINN ARELÍUSSON ER ENNÞÁ MEÐ HÖKUTOPP EN HANN ER ORÐINN GRÁR LAGÐI LÍNURNAR BIRGITTA KOM TÓBAKSKLÚTUM OG FLÉTTUM Á KORTIÐ Myndir: Jakob Fannar Sigurðsson, Árni Sæberg, Ómar Óskarsson og Arnaldur Halldórsson 5

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.