Monitor - 24.06.2010, Side 4

Monitor - 24.06.2010, Side 4
Monitor FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010 HVAÐ VARÐ UM L ANDSLI Manstu eftir því þegar A ddi Fannar var með dred da, Valur og Íris voru kon ungur og drottning þjóðvegina á rútum troðf ullum af sumarsmellum. Monitor ákvað að taka s töðuna á landsliði Staðan á þér: Ég hef verið töluvert að trúbadorast en svo hef ég unnið hjá fyrirtæki sem heitir S. Guðjónsson í þrjú ár og er þar verslunarstjóri í sýningarsal sem heitir Prodomo. Ég hef líka verið að vinna að sólóefni og við Vignir í Írafár erum búnir að taka upp heila plötu sem við höfum unnið svolítið í, en það er engin pressa. Svo stefni ég á að gefa út sólóplötu á næsta ári og það gæti vel verið að fyrstu tvö lögin komi út í ár. Staðan á hljómsveitinni: Við erum bara í meðvituðu fríi. Við áttum alveg ótrúlega góðar stundir saman frá 1998 til 2003 en fórum svo aðeins að hægja á okkur. Áður en við vissum af þá hittumst við í jólapartíi og vorum ekkert búnir að spila í ár. Við hættum samt aldrei. Það getur vel verið að Land og synir komi með lag á þessu ári og við spilum kannski eitt til tvö gigg í haust, en annars erum við bara voða slakir. Hápunkturinn: Það var alveg klárlega þegar við skrifuðum undir plötusamning hjá Warner Brothers í Bandaríkjunum. Við fengum alveg gífurlega góðan séns á að gera mikið úr okkur, enda var þetta risastór plötusamningur, upp á 350 þúsund dollara. Þá gáfum við út plötu á ensku en fólk var ekki alveg að taka þetta alvarlega hér heima. Það voru samt alveg ótrúleg nöfn sem komu að henni. Svo voru þessi ár auðvitað líka meiriháttar hér heima, að fara hring eftir hring í kringum landið og spila fyrir fólkið. Sérstaða Lands og sona: Kannski bara gleðin. Við lítum á okkur sem góðan vinaklúbb og vorum aldrei að reyna að vera með neinn töffaraskap. Við geystumst bara áfram á lífsgleðinni. Það hefur nú fleytt mörgum liðum vel áfram á HM. Staðan á þér: Ég er ekkert í fríi. Spila bara eins og vitleysingur. Ég er búinn að vera á Akureyri í tvö og hálft ár og er eiginlega búinn að blóðmjólka það og ætla að flytja aftur suður með fjölskyldunni. Nánast búinn að spila í hverju einasta heimahúsi. En nú er ég að undirbúa Bræðsluna sem fer fram 24. júlí, er bræðslustjóri og það gengur mjög vel. Platan mín var svo að koma út í Bandaríkjunum í byrjun mánaðarins en ég reikna ekki með að fara neitt út að fylgja henni eftir. Staðan á hljómsveitinni: Við höfum verið í fríi frá áramótum. Þetta er fyrsta almennilega fríið okkar síðan ég gekk í hljómsveitina 1999. Við gáfum út plötu síðustu jól, sem við vorum tvö til þrjú ár að dunda okkur við og vorum orðnir svolítið lúnir, auk þess sem einn okkar þurfti að fara í aðgerð og huga aðeins að heilsunni. Við ákváðum því að slappa aðeins af. Hápunkturinn: Það voru þarna nokkur ár sem við spiluðum eins og hundar, hvar sem við gátum og fyrir alla sem vildu. Við tókum nokkra páskatúra þar sem við bjuggum í rútu í svona fimm daga og spiluðum alstaðar fyrir fullu húsi. Það var eiginlega hápunkturinn fyrir okkur. Svo höfum við spilað átta sinnum á Þjóðhátíð og þótt við höfum spilað úti um allt og farið níu sinnum til útlanda að spila þá toppar ekkert Þjóðhátíð á góðum degi. Sérstaða Á móti sól: Þegar við byrjuðum vorum við eina ska- hljómsveitin á Íslandi og það er enn helvíti mikið ska í okkur. Það heyrist kannski ekkert á plötunum en við fáum ennþá kikk út úr því að spila gömlu ska-lögin. Staðan á þér: Ég er í BA námi í alþjóðafræði í Háskólanum á Bifröst. Það gæti ekki farið betur saman með hljómsveitarlífinu. Bara unnið um helgar og skólinn á virkum dögum. Bara synd að maður hafi ekki byrjað fyrr, en það er betra seint en aldrei. Staðan á hljómsveitinni: Við erum í fullu fjöri. Það er búið að vera fínt að gera það sem af er þessu ári. Við tókum okkur smá frí í byrjun júní en erum að vinna að nýju efni og verðum að spila mikið í júlí og ágúst. Svo við stefnum á að klára þetta ár með stæl. Hápunkturinn: Gullaldarárin okkar voru líklega frá 1998 til 2000. Þá gáfum við út plötuna Nákvæmlega sem kom okkur upp í hæstu hæðir og gerði okkur að einni af stærstu ballhljómsveitunum. Sérstaða Skítamórals: Það er mjög sérstakt að kjarninn í hljómsveitinni hefur verið sá sami frá því hún var stofnuð 1989. Það er ekki hlaupið að því að finna hljómsveitir sem fjórir einstaklingar hafa verið í frá byrjun. Það hellast yfirleitt einhverjir úr lestinni og nýir koma inn. Góður sauma- klúbbur Blóðmjólkaði Akureyri Ennþá allt á fullu HREIMUR Hljómsveit: Land og synir Starfaði: Frá 1998 en hefur verið í hléi síðustu ár. Helstu slagarar: Lífið er yndislegt, Vöðvastæltur, Dreymir, Ástarfár, Terlín. Hvaðan: Frá Hvolsvelli og sveitunum í kring. Mest selda platan: Alveg eins og þú (1998). MAGNI Hljómsveit: Á móti sól. Starfaði. Frá 1996 og starfar enn. Helstu slagarar: Á þig, Spenntur, Djöfull er ég flottur, Keyrðu mig heim. Hvaðan: Titluð Selfosshljómsveit en meðlimir koma einnig frá Hveragerði og Borgarfirði eystri. Mest selda platan: 12 íslensk topplög (2004). GUNNI ÓLA Hljómsveit: Skítamórall. Starfaði: Frá 1989 og starfar enn. Helstu slagarar: Farin, Myndir, Ennþá. Hvaðan: Selfossi. Mest selda platan: Nákvæmlega (1998). GULLÁRIN LANDSLIÐ ÍSLENSKRA POPPARA VAR ALLTAF MEÐ LÚKKIÐ Á HREINU ROKKSTJARNA MAGNI ÁSGEIRSSON ÞARF EKKERT FRÍ VIRKIR SKÍMÓ ER MEÐ ELDRI POPPSVEITUM EN JAFNFRAMT ÞEIM VIRKARI JARÐBUNDINN HREIMUR ÖRN HEIMISSON GEYSIST ÁFRAM Á LÍFSGLEÐINNI 4

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.