Monitor - 24.06.2010, Blaðsíða 14
kvikmyndir
Hæð: 178 sentimetrar.
Besta hlutverk: Happy Gilmore í
samnefndri kvikmynd. Sandler
hefur aldrei verið fyndnari.
Skrýtin staðreynd: Þótt margar
kvikmyndir hans hafi fengið
arfaslaka dóma fá þær jafnan
mjög góða aðsókn. Tímaritið
Forbes reiknaði út árið 2007
að fyrir hvern dollara sem
hann hefur fengið greiddan
fyrir kvikmyndir sínar, hafa 9
dollarar komið í kassann.
Eitruð tilvitnun: „Mér líður ekki
vel í kringum of mikið af fólki.
Ég kann illa við að fara út á
meðal almennings.“
1966Fæðist 9.september í
Brooklyn í New York.
1989
Leikur í
sinni fyrstu
kvikmynd,
Going
Overboard.
Myndin er
vægast sagt
hræðileg og á IMDB.com er hún
í 53. sæti yfir verstu myndir allra
tíma með 1,9 í einkunn.
1990Fær vinnu semhandritshöfundur
fyrir Saturday Night Live og
verður meðlimur í þáttunum
ári síðar.
1993Gefur útsinn fyrsta
gríngeisladisk, They‘re All
Gonna Laugh At You! Platan
nýtur mikilla vinsælda og
hefur selst í meira en tveim
milljónum eintaka.
Adam
Sandler
FERILLINN
14 Monitor FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010
Frumsýningar
helgarinnar
Grown Ups
Leikstjóri: Dennis Dugan.
Aðalhlutverk: Adam
Sandler, Kevin
James, Chris Rock,
David Spade, Rob
Schneider, Salma
Hayek, Maria Bello og
Maya Rudolph.
Lengd: 102 mínútur.
Dómar: Engir dómar
komnir.
Aldurstakmark: Leyfð öllum.
Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó.
Gamanmynd um fimm æskuvini sem
eru komnir á fullorðinsár. Þegar gamli
körfuboltaþjálfarinn þeirra deyr ákveða þeir
að hittast og eyða þjóðhátíðardagshelginni
saman í sumarhúsi nokkru. Nú eru þeir
komnir með konur og börn, en þótt þeir
séu orðnir eldri þýðir það ekki að þeir hafi
þroskast mikið.
Popp-
korn
Í tilefni af Feðra-
deginum, sem var haldinn í
Bandaríkjunum
síðastliðinn
sunnudag, hefur
kvikmynda-
tímaritið Total
Film valið
bestu feður
kvikmyndasögunnar. Á
listanum eru pabbar á borð
við Emperor Zurg úr Toy Story
2, pabbinn úr American Pie og
faðir Indiana Jones, Henry. Besti
pabbi kvikmyndasögunnar er
hins vegar Big Daddy úr Kick-
Ass sem var eftirminnilega
leikinn af Nicolas Cage.
M. Night Shyamalan
frumsýnir nýjasta verk sitt,
hasarævintýramyndina The
Last Airbender,
í júlí. Hann er
hins vegar þegar
byrjaður að
vinna að nýrri
kvikmynd og
herma fregnir að
Bruce Willis sé líklegastur til að
leika aðalhlutverkið. Þetta yrði
þriðja Shyamalan-myndin sem
Willis leikur í, en áður var hann
í Sixth Sense og Unbreakable.
Þau Gwyneth Paltrow og
Bradley Cooper hafa einnig
verið nefnd sem líklegir leikarar
í nýju myndinni.
Ryan Murphy, skapari
sjónvarpsþáttanna Glee, segir
að það sé ekki í kortunum
að gera kvikmynd byggða á
þáttunum. Slúðurbloggarinn
Perez Hilton
greindi frá því að
helstu leikarar
þáttanna væru
samningsbundnir
um að gera þrjár
Glee-kvikmyndir.
Murphy segir hins vegar að
slíkt tal sé ótímabært. Glee-
þættirnir njóta mikilla vinsælda
hérlendis, en það verður
einhver bið á því að aðdáendur
sjái Matthew Morrison, Lea
Michele og félaga á hvíta
tjaldinu.
VILTU
VINNA
MIÐA?
Monitor ætlar að gefa
nokkrum heppnum
lesendum miða á
Grown Ups. Þú
þarft bara að fara
inn á Facebook-síðu
Monitor og velja LIKE
á kvikmyndaþráð
vikunnar. Á mánudag
drögum við svo út
nokkra vinningshafa og
sendum þá í bíó.
facebook.com/
monitorbladid
ÞAÐ KALDHÆÐNISLEGA ER AÐ ÞEIR MÆTTU
ALVEG ÓVART Í NÁKVÆMLEGA SAMA KLÆÐNAÐI
A Nightmare
on Elm Street
Leikstjóri: Samuel Bayer.
Aðalhlutverk: Jackie Earle
Haley, Rooney Mara, Kyle
Gallner, Thomas Dekker og
Kellan Lutz.
Lengd: 102 mínútur.
Dómar: IMDB: 5,4 /
Metacritic: 35% / Rotten
Tomatoes: 13%
Aldurstakmark: Bönnuð
innan 16 ára.
Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka og
Sambíóin Akureyri.
Endurgerð á klassískri hrollvekju frá árinu
1984. Freddy Kruger er sannkölluð ófreskja
sem ásækir unglinga í martröðum þeirra og
reynir að myrða þá. Í fyrstu virðast morðin
vera handahófskennd en svo kemur í ljós að
fórnarlömbin eru öll tengd atviki í fortíðinni.
1995Rekinn úr SaturdayNight Live ásamt Chris
Farley.
1995Skrifarhandritið að
og leikur aðalhlutverkið
í kvikmyndinni Billy
Madison og ári síðar í
myndinni Happy Gilmore. Báðar
fá slæma dóma en njóta mikilla
vinsælda og Sandler
verður einn vinsælasti
gamanleikari
heims.
1999
Stofnar eigið
framleiðslufyrirtæki,
Happy Madison Productions,
sem heitir í höfuðið á kvikmynda-
persónunum Happy
Gilmore og Billy
Madison.
2003Kvænistnúver-
andi eiginkonu sinni,
Jackie Sandler. Þau
eiga tvö börn. Hún
hefur leikið aukahlutverk í nokkrum
mynda hans.