Monitor - 24.06.2010, Qupperneq 15
fílófaxið
15FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010 Monitor
DREKKTU BETUR
Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46
17:00 Þetta langlífasta Pub Quizlandsins er nú haldið í
363. sinn og hefur verið haldið á hverjum
föstudegi í á áttunda ár. Athugið að vegna
heimsmeistaramótsins í knattspyrnu hefst
keppnin klukkan 17 en ekki 18 eins og
venjulega. Spyrill dagsins er Jón Proppé.
KVISS BÚMM BAMM
Celtic Cross
20:00 Það eru bjartir tímarframundan hjá listahópnum
Kviss búmm bamm en þríeykið sem að
honum stendur mun frumsýna tvö verk í
haust. Eina skuggann sem ber á er að þær
eru með yfirdrátt hjá bankanum en nú biðla
þær til vina og velunnara sinna og halda
fjáröflunarpartí á Café Ólíver. Aðgangseyrir er
500 krónur en ýmsar uppákomur verða, svo
sem tombóla og leynigestur auk þess sem Dj
Gorbatsjov þeytir skífum.
JÓNSVÖKUTÓNLEIKAR
Nasa
21:00 Tónleikar á vegum Jónsvökuþar sem hljómsveitirnar
Foreign Monkeys, For a Minor Reflection,
Mammút, Agent Fresco, Seabear og Ensími
koma fram. Aðgangseyrir er 1.500 krónur en
armband á alla þrjá tónleika Jónsvöku um
helgina kostar 2.900 krónur.
LED ZEPPELIN TRIBUTE
Græni hatturinn, Akureyri
21:00 Í tilefni þess að 40 ár erusíðan hljómsveitin Led
Zeppelin hélt tónleika í Laugardalshöll hélt
hljómsveitin Dúndurfréttir tvenna vel sótta
tónleika í Borgarleikhúsinu fyrr í vikunni.
Nú eru þeir komnir í
höfuðstað Norðurlands
og bjóða upp á veislu.
MOJITO-KVÖLD
Regnbogasalur Samtakanna 78
21:00 Q félag samkynhneigðrastúdenta býður í
föstudagshitting og að þessu sinni er Mojito-
kvöld þar sem drykkurinn góði verður á
sérstöku tilboðsverði. Allir velkomnir.
VARSJÁRBANDALAGIÐ
Kaffi Rósenberg
22:00 HljómsveitinVarsjárbandalagið sérhæfir
sig í austur-evrópskri tónlist, gyðingatónlist
og öðru sem rekur á fjörur sveitarinnar.
SILFUR
Hressó
22:00 Hljómsveitin Silfur telur inní kvöldið fyrir áhorfendur en
þegar þeir hafa lokið sér af tekur Dj Elli við.
BERMUDA
Vélsmiðjan, Akureyri
23:30 Hljómsveitin Bermuda leikurfyrir dansi á Akureyri, tvö
kvöld í röð þessa helgina. Tilvalið tækifæri
fyrir Akureyringa og nærsveitunga til að
bregða undir sig betri
fætinum.
föstudagur
fimmtudagur
24
júní
LISTAHÓPAR HINS
HÚSSINS
Lækjartorg
13:00 Þrír listahópar, semhafa verið valdir til að
starfa á vegum Hins hússins, koma fram
á Lækjartorgi á milli 13 og 14. Þeir eru
Ritsveinar Reykjavíkur, sem skrifa og lesa
smásögur, Vagga, sem fæst við tón- og
textasmíðar og flytur lög, og Með fullt í
fangi, hópur sem starfar við tónlistargerð og
ljósmyndun.
OPNUNARHÓF JÓNSVÖKU
Hitt húsið
15:00 Listahátíðin Jónsvaka verðursett en hún mun standa
alla helgina. Fjöldi listviðburða verður í
boði, meðal annars myndlistasýningar og
tónlistarviðburðir. Í opnunarhófinu mun
meðal annars tónlistarmaðurinn Snorri
Helgason stíga á stokk auk þess sem boðið
verður upp á tónlistargjörning í flutningi
Mukkaló og Júníuss Meyvants.
CELLOPHANE
Iðnó
20:00 Einleikurinn vinsæli eftirBjörk Jakobsdóttur hefur nú
verið þýddur yfir á ensku og er það leikkonan
Þórunn Lárusdóttir sem fer með hlutverk
hinnar langt leiddu húsmóður sem lendir
í ógöngum þegar hún reynir að standast
kröfur nútímasamfélags til kvenna. Tilvalið
fyrir þá sem þurfa að hafa ofan af fyrir
erlendum gestum eða vilja bara skella sér á
bráðfyndna sýningu á ensku.
LED ZEPPELIN TRIBUTE
Græni hatturinn, Akureyri
21:00 Í tilefni þess að 40 ár erusíðan hljómsveitin Led
Zeppelin hélt tónleika í Laugardalshöll, hélt
hljómsveitin Dúndurfréttir tvenna vel sótta
tónleika í Borgarleikhúsinu fyrr í vikunni.
Nú eru þeir komnir í höfuðstað Norðurlands
og bjóða upp á Zeppelin veislu á Græna
hattinum.
JÓNSVÖKUTÓNLEIKAR
Nasa
21:00 Tónleikar á vegum Jónsvökuþar sem hljómsveitirnar
Útidúr, Árstíðir, Rökkurró, Ólafur Arnalds, Sin
Fan og Hjálmar koma fram. Aðgangseyrir er
1.500 krónur en armband á alla þrjá tónleika
Jónsvöku um helgina kostar 2.900 krónur.
EVRÓPUSINNAR FAGNA
B5
21:00 Sterkara Ísland - samtökEvrópusinna á Íslandi
boða til fagnaðar í tilefni þess að nú hefur
aðildarumsókn Íslands að ESB verið sam-
þykkt. Fögnuðurinn hefst kl. 21 og stendur
fram eftir kvöldi.
TRÚBADORAR
Hressó
22:00 Trúbadorarnir Böddi ogDavíð spila frá klukkan 22
til lokunar.
LJÓÐ OG LÖG
Á JÓNSMESSU
Hallgrímskirkja í Saurbæ
22:00 Kammerkór Akranessbýður upp á tónleika undir
yfirskriftinni Ljóð og lög. Á efnisskránni
verður tónlist úr
samnefndum söngheftum
sem Þórður Kristleifsson safnaði saman og
gaf út á árin 1939 til 1949. Þarna heyrast gull-
molar sem flestir þekkja en sjaldan heyrast.
INGÓ VEÐURGUÐ
Café Oliver
22:00 Veðurguðinn hann Ingómundar gítarinn fyrir alla þá
er vilja heyra.
HAMINGJUNÁMSKEIÐ
Á JÓNSMESSUNÓTT
Hafnarfjarðarkirkja
23:00 Hamingjunámskeið verðurhaldið í Hafnarfjarðarkirkju
á Jónsmessunótt frá klukkan 23 til 1. Farið
verður í gegnum 10 reyndar leiðir til að auka
lífshamingjuna og endað á slökun og íhugun.
JÓNSVAKA
Alla helgina
Tíminn til að
vera úti að
leika sér
„Það hefur sýnt sig að Reykjavík má alveg við
því að hafa eina stóra hátíð í hverjum mánuði
af því það er svo mikið í boði. Svo fannst mér
að það ætti að gera meira á sumrin þar sem
þetta er eini tíminn sem fólk getur verið úti
að leika sér,“ segir Hildur Maral Hamíðsdóttir,
skipuleggjandi listahátíðarinnar Jónsvaka,
sem fram fer í fyrsta sinn um helgina. Hátíðin
miðar að því að gefa ungum listamönnum
á mismunandi sviðum lista tækifæri til að
sýna verk sín og verða ýmsir gjörningar og
listasýningar í gangi út um allan bæ.
„Það er lykilatriði að mæta á sem flesta
viðburði vegna þess að fæstir hafa séð
þessa listamenn áður. Ég hef til dæmis ekki
séð neina þeirra sjálf þannig að ég er mjög
spennt,“ segir Hildur, en upplýsingar um alla
viðburði helgarinnar má finna á Jonsvaka.is.
Þær hljómsveitir sem fram koma á tónleikum
Jónsvöku á Nasa á fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld eru hins vegar flestar
vel þekktar og má þar nefna bönd eins og
Hjaltalín, Hjálma, Bloodgroup, Mammút,
Seabear, Sudden Weather Change og svo
mætti lengi telja. Armband inn á alla tónleika
helgarinnar kostar 2.900 krónur en 1.500
kostar á staka tónleika. Ókeypis er á alla aðra
viðburði Jónsvöku.
Mynd/Ernir
25
júní
laugardagur
26
júní sunnudagur
27
júní
POPUP VERSLUN
Hafnarhúsið
10:00 Í tilefni af listahátíðinniJónsvöku verður PopUp
verslun í Hafnarhúsinu frá klukkan 10 til
17. Þar mun fjöldinn allur af íslenskum
hönnuðum selja hönnun sína.
ALÞJÓÐLEGT
ORGELSUMAR
Hallgrímskirkja
12:00 Tónleikar í tónleikaröðinniAlþjóðlegt orgelsumar 2010
þar sem Jessica Buzbee leikur á básúnu og
Hörður Áskelsson á orgel. Á efnisskránni er
meðal annars að finna verk eftir J.S. Bach
og Guilmant. Tónleikarnir standa í um hálfa
klukkustund og er miðaverð 1.000 krónur.
Miðasala fer fram við inngang.
SUMARDJASS
Jómfrúin
15:00 Á fjórðu tónleikum sumar-tónleikaraðar veitinga-
hússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu
kemur fram Danska jazzsöngkonan Cathrine
Legardh. Með henni leika þeir Sigurður
Flosason á saxófón, Eyþór Gunnarsson á
píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og
Erik Qvick á trommur.
REGÍNA ÓSK OG
CARPENTERS
Græni hatturinn, Akureyri
21:00 Söngkonan Regína Ósk hef-ur á síðustu vikum haldið
tónleika þar sem hún flytur sín uppáhalds-
lög með hljómsveitinni The Carpenters. Að
þessu sinni sækir hún Akureyringa heim og
kemur fram á Græna hattinum.
DALTON
Hressó
22:00 Hljómsveitin Dalton spilarfyrir gesti Hressó þar til
plötusnúðurinn Dj Elli tekur við og heldur
uppi stemningu fram á nótt.
STÓNS
Hlégarður
22:00 Hljómsveitin Stóns, semkallar sig Rolling Stones
heiðrunarsveit Íslands, blæs til tónleika þar
sem þeir munu flytja öll helstu lögin frá 40
ára starfsferli hinna gamalreyndu rokkara.
Stóns samanstendur af meðlimum Mínuss,
Egó, Motion Boys og Esju en kynnar kvöldsins
verða Dóri DNA og Steindi Jr.
VARSJÁRBANDALAGIÐ
Kaffi Rósenberg
22:00 HljómsveitinVarsjárbandalagið sérhæfir
sig í austur-evrópskri tónlist, gyðingatónlist
og öðru sem rekur á fjörur sveitarinnar. Ekta
Austantjaldsfjör.
SNIGLABANDIÐ
Græni hatturinn, Akureyri
22:00 Sniglabandið fagnar umþessar mundir 25 ára
starfsafmæli og ætla að því tilefni að
líta fram á veginn, en einstaka sinnum í
baksýnisspegilinn, að eigin sögn. Nú bregða
þeir á leik fyrir Akureyringa.
JÓNSVÖKUTÓNLEIKAR
Nasa
23:00 Tónleikar á vegum Jónsvökuþar sem hljómsveitirnar
Hudson Wayne, Sudden Weather Change,
Kimono, Hjaltalín og Bloodgroup koma fram.
SUPERHERO PARTÍ
Barbara
23:00 Þema kvöldsins er tileinkaðofurhetjunum sem
börðust fyrir réttindum samkynhneigðra í
Stonewall-uppreisninni árið 1969. Starfsfólk
verður klætt í ofurhetjubúninga eftir því og
gestir eru hvattir til að taka þátt í gamninu.
Tilboð á barnum til 2:00 fyrir meðlimi Q og
Samtakanna 78.
BERMUDA
Vélsmiðjan, Akureyri
23:30 Hljómsveitin Bermuda leikurfyrir dansi á Akureyri, tvö
kvöld í röð þessa helgina. Tilvalið tækifæri
fyrir Akureyringa og nærsveitunga til að
bregða undir sig betri fætinum.
POPUP VERSLUN
Hafnarhúsið
10:00 Í tilefni af listahátíðinniJónsvöku verður PopUp
verslun í Hafnarhúsinu frá klukkan 10 til
17. Þar mun fjöldinn allur af íslenskum
hönnuðum selja hönnun sína.
ALÞJÓÐLEGT
ORGELSUMAR
Hallgrímskirkja
17:00 Jessica Buzbee, básúna ogHörður Áskelsson, orgel
leika fallega og spennandi efnisskrá, meðal
annars eftir J.S Bach, Guilmant og Huga
Guðmundsson. Tónleikarnir standa í um
klukkustund og er miðaverð 1.500 krónur og
fer miðasala fram við innganginn.
STOFUTÓNLEIKAR
Gljúfrasteinn
16:00 Stofutónleikar verða íGljúfrasteini alla sunnudaga
í sumar og að þessu sinni eru þeir í höndum
píanóleikarans Árna Heiðars Karlssonar,
kontrabassaleikarans Gunnars Hrafnssonar
og slagverksleikarans Mathíasar Hemstock.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og
aðgangseyrir er 1.000 krónur.
FLÓAMARKAÐUR
Hjartagarðurinn
17:00 Lokahnykkurlistahátíðarinnar Jónsvöku
fer fram í Hjartagarðinum (hjá Hemma og
Valda). Graffiti listamaðurinn Maggi Noem
lýkur við veggmynd sína og boðið verður upp
á lifandi tónlist og grill, en auk þess verður
flóamarkaður þar sem hver sem er getur selt
hvaðeina. Það kostar ekkert að taka þátt og
eru áhugasamir hvattir til að senda póst á
ensku á volunteers@jonsvaka.is og staðfesta
komuna og þá verður tekið frá pláss fyrir
viðkomandi.
CELLOPHANE
Iðnó
20:00 Einleikurinn vinsæli eftirBjörk Jakobsdóttur hefur nú
verið þýddur yfir á ensku og er það leikkonan
Þórunn Lárusdóttir sem fer með hlutverk
hinnar langt leiddu húsmóður sem lendir
í ógöngum þegar hún reynir að standast
kröfur nútímasamfélags til kvenna. Tilvalið
fyrir þá sem þurfa að hafa ofan af fyrir
erlendum gestum eða vilja bara skella sér
á bráðfyndna sýningu á ensku. Miðaverð er
3.400 krónur en stúdentar fá miðann á 2.500
krónur.