Monitor - 02.09.2010, Blaðsíða 3
Yoyo er glæný ísbúð
á Nýbýlavegi 18 sem býður upp
á jógúrtís í tugum mismunandi
bragðtegunda. Þú
útbýrð þinn
ís sjálfur en
svo er hann
vigtaður
og greitt
eftir vigt. Þú
þarft ekki að
spara ísinn því
hann er fitulaus
og verðið kemur líka á óvart.
Frú Berglaug er
nýlegur veitingastaður
á Laugavegi 12 þar
sem lagt er upp
úr gamaldags-
stemningu,
t.d. með
þernubúningum
þjónustu-
stúlknanna. Þar er
bæði hægt að sitja og
spjalla yfir kaffibolla eða
fá sér almennilega í svanginn. T.d.
hrefnusteik eða plokkfisk.
Engrish.com hefur
að geyma hundruði fyndinna
þýðingarvilla sem sést hafa á
ýmsum skiltum eða varningi frá
Asíu. Þar má
finna margt
sem kitlar
hlátur-
taugarnar.
Monitor
mælir með
Í MAGANN
Í MAGANN
Sunnudagurinn 29. ágúst 2010 var mikillsorgardagur í sögu íslensku þjóðarinnar.
Þá greindi Bubbi Morthens frá því að hann
ætlaði að taka sér hlé frá Facebook. Þetta
þýðir að landsmenn munu ekki geta haldið
áfram að ylja sér og gleðjast yfir óborganlegum
stöðuuppfærslum Bubba. Oft hefur Bubbi verið
kallaður kóngurinn og Facebook er sannarlega
ríki hans.
Lesendur Monitor hafa væntanlega tekiðeftir því að Bubbi hefur verið tíður gestur í
liðnum Vikan á Facebook hér til hliðar. Bubbi
hefur raunar átt 19 stöðuuppfærslur í þeim 20
blöðum sem hafa komið út til þessa, en það er
heimsmet. Brotthvarf hans frá Facebook er því
mikil blóðtaka fyrir Monitor og að sjálfsögðu
alla íslensku þjóðina.
Monitor biðlar til Bubba aðendurskoða ákvörðun
sína og koma aftur á Facebook.
Íslenska þjóðin þarfnast þín.
3
fyrst&fremst
Ritstjóri: Björn Bragi Arnarsson (bjornbragi@monitor.is) Umbrot og hönnun: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is) Sími: 569-1136
Blaðamenn: Haukur Johnson (haukurjohnson@monitor.is), Gunnþórunn Jónsdóttir (gunnthorunn@monitor.is) Forsíða: Ernir Eyjólfsson
Myndvinnsla: Hallmar F. Þorvaldsson Grafík: Elín Esther Auglýsingar: auglysingar@monitor.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent
FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 Monitor
Feitast í blaðinu
Vala Grand er flutt
til foreldra sinna í
Keflavík og er farin
að deita á
fullu. 4
Gói var laminn
fyrir að vera
leikhúsnörd þegar
hann var
krakki.
Sjóðheitir
sjónvapsþættir sem
eru væntanlegir
í haust
skoðaðir.
8
Hjörvar Hafliðason
knattspyrnumaður
og sjónvarpsstjarna
þreytir
Lokaprófið. 15
Stíllinn tekur fyrir
pin-up tískuna
og skoðar nýja
skólínu hjá
Einveru. 12
Efst í huga Monitor
6
Bubbi Morthens
ER FARINN Í FÉSBÓKAR PÁSU
KVEÐ ALLA MEÐ ÞÖKK FYRIR
Sunnudagur 29. ágúst kl. 15:59
Á VEFNUM
Bubbi
Morthens Mold
Mold Mold
áburður sól sól
hjólburur sviti
lykt af súrefni Lífið.
30. apríl kl. 10:48
Bubbi
Morthens
Sólin kisti mig í
morgun ég tók
hana í fangið
og hvíslaði pabbi elskar þig
hún horfði á mig brúnum
augum brosti og sagði at Búið
5. apríl kl. 08:28
Bubbi á...
Bubbi
Morthens Lífið
kom til hans í
þessum Fyrsta
andardrætti sem
skilur á milli? 10. júní kl. 21:53
Bubbi
Morthens
Öllum má vera
það ljóst að það
er munur á ljósi
og ljósi. 8. júní kl. 07:30
Bubbi
Morthens Að
reina sannfæra
mann um að
Guð sé ekki
til er álíka að Reyna drekka
sand. 20. júní kl. 21:57
Bubbi
Morthens
Standa á
bekknum
umvafin grænni
birtu með heiðina á móti sér
heiðinn þakin blómum og
berjalyngi áin niðar. Grænblár
Þungur straumurinn ber með
sér orð frá liðnum tíma og allt
er gott. 9. ágúst kl. 19:36
Guðmundur Reynir Gunnarsson er
einn af lykilmönnum KR í Pepsi-
deildinni í knattspyrnu, en hann
kann fleira en að tækla menn í spað
í þverröndótta búningnum. Í næstu
viku gefur hann út sína fyrstu plötu
undir gælunafni sínu, Mummi.
„Þetta er svona píanópopprokk,
ekki ósvipað Coldplay og eitthvað
út í Elton John og Billy Joel,“ segir
Mummi til útskýringar á verkinu, en
hann er sprenglærður píanóleikari.
Platan hefur fengið nafnið Various
Time in Johnny‘s Life. „Þetta er
þemaplata sem fjallar um mitt
fyrra líf. Hún fjallar sem sagt um
persónuna Johnny, sem var ég í
fyrra lífi, og textarnir segja sögu frá
ýmsum atburðum sem áttu sér stað
í því lífi,“ segir Mummi.
Létt skot frá liðsfélögunum
Mummi hefur litlar áhyggjur af því
hvort platan komi til með að njóta
vinsælda, en telur að lög af henni
eigi vel heima í útvarpinu. „Ég hef
fengið ágætis viðbrögð frá þeim sem
hafa heyrt þetta, en síðan er bara
að bíða og sjá. Ég er fyrst og fremst
að gefa þetta út upp á gamanið fyrir
mig,“ segir Mummi.
Hann kvartar ekki yfir viðbrögðum
liðsfélaga sinna í KR við tónlistinni.
„Þeir taka þessu bara ágætlega. Þeir
eru margir búnir að heyra þetta
og líst bara vel á held ég. Þeir eiga
auðvitað til að skjóta eitthvað á
mig, en það er bara á léttu nótun-
um,“ segir Mummi, en neitar því
að lög hans séu mikið spiluð í
búningsklefanum. „Það hefur komið
fyrir, en þetta er kannski ekki beint
tónlist til þess að koma sér í gírinn
fyrir leiki.“
Ólympíufari í stærðfræði
Mummi hóf nám í hagfræði við
HÍ síðasta vetur og segir að stefnan
sé að ljúka því ef hann flytur
heim frá Svíþjóð, en þar er hann
samningsbundinn félaginu GAIS
frá Gautaborg og er aðeins hjá KR
í láni. Mummi er nefnilega ekki
bara að gera það gott í boltanum
og tónlistinni, heldur er hann
fantagóður námsmaður. Hann
útskrifaðist sem semídúx frá
MR og hefur þrívegis keppt fyrir
Íslands hönd á Ólympíuleikunum í
stærðfræði erlendis.
„Mér gengur vel í skóla, við
skulum bara orða það þannig,“
segir Mummi hógvær þegar blaða-
maður Monitor vill stimpla hann
undrabarn og ofurheila. Hann segir
stemninguna í kringum stærðfræði-
keppnirnar og knattspyrnuna
talsvert ólíka. „Það er óhætt að segja
að fótboltamennirnir séu aðeins
steiktari. Það er fínt að skipta á milli
hópa, maður getur ekki hangið með
sömu gaurunum alla daga.“
En hvað ætlar hinn fjölhæfi
Mummi að verða í framtíðinni?
„Fótboltinn er í fyrsta sæti núna,
en eftir það veit ég ekki hvað tekur
við,“ segir hann rólegur.
Lítið spilaður í
búningsklefanum
Mynd/Eggert
Kóngurinn kveður Fésið
INFÓ
Guðmundur Reynir Gunnarsson
Gælunafn: Mummi.
Fyrstu sex: 21.01.89.
Hverfi: Seltjarnarnes.
Menntaskóli: MR.
Fílar í tónlist: Coldplay, Elton
John og Radiohead koma fyrst
upp í hugann. Uppáhaldsplatan
mín er OK Computer með
Radiohead.
Fílar í boltanum: Ég er
Liverpool-maður. Gerrard og
Torres eru flottir saman.
Fílar í stærðfræðinni:
Rúmfræðin er frábær og
Pýþagoras er í algjöru
uppáhaldi!
KR-ingurinn Mummi gefur út sína fyrstu plötu, Varous Times in Johnny‘s Life
FÓTBOLTAMENN
Í TÓNLIST
Mummi er ekki eini
knattspyrnumaður
Pepsideildarinnar sem
er á kafi í tónlistinni.
Ingó úr Veðurguðunum
spilar á miðjunni hjá
Selfyssingum og Jón
Jónsson, sem gaf
nýverið út lögin Lately
og Kiss in the Morning,
varð bikarmeistari með FH á dögunum.
Nú er bara að bíða eftir því að þeir
þrír rotti sig saman og stofni bandið
Sparktónar. „Ég er klár hvenær sem
er,“ segir Mummi og hlær.
GREATEST HITS
facebook.com/mummimusic
Það eru sjö myndir af Bubba Morthens á þessari blaðsíðu.