Monitor - 02.09.2010, Page 14

Monitor - 02.09.2010, Page 14
1Hver lék Kattarkonunaí Batman Returns? 2Hvað heitir ofbeldisfulla 11 árastelpan í myndinni Kick-Ass? 3Hver lék Brúðurina í KillBill-myndunum? 4Við hvaða ófreskju barðist ClariceSterling sem leikin var af Jodie Foster? 5Í hvaða kvikmyndum lék LindaHamilton hina svaðalegu Söru Connor? 6Hver lék aðalhlutverkið í myndinniThelma & Louise á móti Susan Sarandon? 7Hver leikstýrði Hurt Locker ogvarð fyrsta konan til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir leikstjórn? 8Hvað heitir persónan semSigourney Weaver leikur í Alien-myndunum? 9Hvaða þeldökka skvísasló í gegn í blaxploitation- myndinni Foxy Brown árið 1974 og lék einnig aðalhlutverkið í Tarantino- myndinni Jackie Brown? 10Hver lék Trinity í Matrix-myndunum? Hvað veistu um... kvenhetjurnar? kvikmyndir Hæð: 191 sentímetri. Besta hlutverk: Frank the Tank í Old School. Frábær gamanmynd þar sem Ferrell fer á kostum. Skrýtin staðreynd: Árið 2007 valdi tímaritið Autograph hann verstan af öllu frægu fólki í að gefa eiginhandaráritanir. Eitruð tilvitnun: „Það er bara eitthvað sem mér finnst fyndið við það að æpa.“ 1967Fæðist 16. júlí íKaliforníu-fylki. 1995Leikur í sinnifyrstu mynd, Bucket of Blood, sem var gerð fyrir sjónvarp. 1995Ráðinn inn íSaturday Night Live-þættina og er valinn fram yfir Steve Carell. Eftir fyrsta árið hans lýstu því margir yfir að hann væri einhver versti leikari þáttanna fyrr og síðar. 2000 Kvænist sænsku leikkonunni Vivecu Paulin. Þau eiga þrjá syni, Magnus, Mattias og Axel. 2002Segir skilið viðSaturday Night Live og á einn glæstasta feril þáttanna frá upphafi. 2003 Leikur í myndinni Old School sem nýtur mikilla vinsælda og seinna sama ár er kvikmyndin Elf frumsýnd, en hún malaði gull. 2005Tilnefndur tilRazzie-skammar- verðlauna fyrir myndirnar Bewitched og Kicking & Screaming. 2007Setur á laggirnargrínvefinn Funny or Die ásamt Adam McKay, leikstjóra The Other Guys. 2009Þreytir frumraunsína á Broadway í sýningu þar sem hann leikur George Bush, en hann lék Bush margsinnis í Saturday Night Live. Will Ferrell FERILLINN 14 Monitor FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 Frumsýningar helgarinnar The Other Guys Leikstjóri: Adam McKay. Aðalhlutverk: Will Ferrell, Mark Wahlberg, Samuel L. Jackson, Dwayne Johnson og Michael Keaton. Lengd: 107 mínútur. Dómar: IMDB: 7,0 / Metacritic: 6,4 / Rotten Tomatoes: 76% Aldurstakmark: Bönnuð innan 10 ára. Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó. Danson (Johnson) og Highsmith (Jackson) eru hörðustu og heitustu löggurnar í New York. Félagar þeirra, Gamble (Ferrell) og Hoitz (Wahlberg), eru algjör andstæða þeirra. Þeir eru engar hetjur, þeir eru „hinir“ gaurarnir. En allar löggur eiga sinn dag og Gamble og Hoitz lenda í ótrúlegu máli sem engin annar vill koma nálægt. Þetta er tækifæri lífs þeirra, en hafa þeir hreðjar í að klára verkefnið? Popp- korn Gróa á Leiti tók eftir því um daginn að Reese Witherspoon hafi hugsanlega bætt örlitlu á sig. Fór fólk þá strax að velta því fyrir sér hvort hún væri ófrísk af barni umboðs- mannsins Jim Toth sem hún hefur verið að hitta í nokkra mánuði. Talsmaður leikkonunnar vísar því þó algerlega á bug. Witherspoon hefur því líklega bara gerst svo djörf að stelast í einn eða tvo hamborgara. Myndasöguhöfundurinn Mark Millar hefur staðfest að framhald verði gert af kvikmyndinni Kick Ass og mun sú mynd heita Kick Ass 2: Balls to the Wall. Þá er stefnt að því að fá stórstjörnur til að taka að sér hlutverk vondu kallanna og á meðal annars að ræða við Johnny Depp og Brad Pitt. Shia LaBeouf er sá leikari sem skilar mestum hagnaði til kvikmynda- veranna fyrir hvern dollara sem í hann er eytt, eða alls 81 dollara. Skýst hann þar með fram úr köppum á borð við Johnny Depp og Robert Downey Jr. sem áður hafa toppað þennan lista. Það er svo leikkonan Anne Hathaway sem er næstarðbærasta fjárfestingin. Óþekktaranginn Lindsay Lohan segir í nýlegu viðtali að hún sé komin með nóg af djammlíferninu og vilji nú fá ferilinn sinn aftur. Ef það þýði að hún verði að hætta að fara út að skemmta sér þá sé það samt þess virði. Fyrsta mynd Lohan um nokkurt skeið er væntanleg síðar á þessu ári. Sú mynd nefnist Machete en aðrir leikarar í henni eru meðal annars Robert DeNiro, Jessica Alba og Michelle Rodriguez. Gandálfurinn og stórleikarinn Sir Ian McKellen leiddi gleðigöngu samkyn- hneigðra í Manchester á Englandi um helgina. Ian þótti taka sig vel út í svörtum, opnum sportbíl merktum nafninu Serena McKellan, en hann lét kalla sig það í tilefni dagsins. Future Of Hope Leikstjóri: Henry Bateman. Framleiðandi: Heather Millard. Klipping: Elísabet Rónaldsdóttir. Hljóð: Gunnar Steinn Úlfarsson. Tónlist: Biggi Hilmarsson. Lengd: 75 mínútur. Aldurstakmark: Leyfð öllum. Kvikmyndahús: Smárabíó og Háskólabíó. Heimildarmynd sem ætlað er að veita innsýn í jákvæðar hliðar sem íslenska þjóðfélagið hefur að geyma. Í myndinni eru kynntir til sögunnar einstaklingar sem hafa farið óhefðbundnar leiðir til að komast hjá gjaldþroti og rutt þar með ótroðnar slóðir, öðrum til hvatningar. Myndin er eftir tvo breska kvikmyndagerðarmenn, en var gerð í samvinnu við íslenskt framleiðsluteymi. Ghost Writer Leikstjóri: Roman Polanski Aðalhlutverk: Ewan McGregor, Pierce Brosnan, Timothy Hutton, Kim Cattrall og James Belushi. Lengd: 128 mínútur. Dómar: IMDB: 7,6 / Metacritic: 7,7 / Rotten Tomatoes: 84% Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára. Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni og Akureyri. Rithöfundi (McGregor) er falið það verkefni að ljúka við æviminningar fyrrum forsætisráðherra Bretlands (Brosnan). Rithöfundurinn tjaslar saman handritinu og finnur vísbendingar um að fyrirrennari hans hafi fundið upplýsingar sem tengja Lang við afar vafasöm mál. Rithöfundurinn verður sérlega tortrygginn þegar hann kemst að því að fyrirrennari hans lést í vafasömu slysi. Samuel L. Jackson er 61 árs gamall. L-ið í nafninu hans stendur fyrir Leroy. WILL FERRELL ER TRÚVERÐUGASTA NEW YORK-LÖGGA KVIKMYNDASÖGUNNAR Aulinn ég Leikstjóri: Pierre Coffin og Chris Renaud. Ísl. leikraddir: Pétur Jóhann Sigfússon. Erl. leikraddir: Steve Carell, Jason Segel, Russell Brand og Julie Andrews. Lengd: 95 mínútur. Dómar: IMDB: 7,7 / Metacritic: 7,2 / Rotten Tomatoes: 79% Aldurstakmark: Leyfð öllum. Kvikmyndahús: Smárabíó, Sambíóin Álfabakka og Laugarásbíó. Í vel snyrtu úthverfi er eitt svart hús með dauðum gróðri í kring þar sem hinn óyndislegi Gru býr. Nágrannarnir vita ekki að undir húsinu hans er leynihellir, en Gru hyggur á heimsyfirráð með því að stela tunglinu. Enginn getur stöðvað hann, nema kannski þrjár litlar, munaðarlausar stúlkur sem sjá nokkuð í Gru sem enginn annar sér, föðurímynd. Svör:1.MichellePfeiffer,2.Hit-Girl,3.UmaThurman,4.HannibalLecter(íSilenceoftheLambs), 5.Terminator,6.GeenaDavis,7.KathrynBigelow,8.EllenRipley,9.PamGrier,10.Carrie-AnneMoss.

x

Monitor

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.