Monitor

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Monitor - 02.09.2010, Qupperneq 15

Monitor - 02.09.2010, Qupperneq 15
15FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2010 Monitor Kvikmyndin Ég er sjúk í Coming to America með Eddie Murphy enda er það klárlega ein skemmtilegasta gamanmynd fyrr og síðar. Hún inniheldur ódauðlegar línur á borð við: „When you think of trash, think af Akeem!“ Mynd sem allir verða að eiga. Snilld á sunnudögum! Sjónvarpsþátturinn Arrested Develop- ment er tóm gleði. Þættirnir voru sýndir um stuttan tíma hér á landi en eru ekki lengur framleiddir, þó von sé á bíómynd eftir þeim. Snillingar á borð við unglinginn George Michael sem vinnur við að selja frosna banana og er skotinn í frænku sinni eiga sér engan líka. Bókin Algjört Æði eftir Esther Blum er snilldar píubók með upplýsingum um nánast hvað sem er. Kynlíf, mat og útlit! Vissu þið að hörfræ eru góð fyrir konur sem eiga erfitt með að blotna? Platan Animal með Miike Snow. Er búin að hlusta hana í allt sumar og get ekki fengið leið á henni. Ég heyrði einhverstaðar að hann komi kannski á Airwaves. Vá þá pissa ég sko í mig af gleði! Vefurinn Klárlega baggalutur.is til að hlæja og ellahelga. blog.is til að slefa, en það er dásamalegt og heilsusamlegt matablogg. Staðurinn Prikið. Dásamleg þjónusta, enn betra rauðvín og gott pláss til að spila. Þar sitjum við vinirnir oft og spilum og hlæjum fram á kvöld. Síðast en ekki síst » Tobba Marínósdóttir, fjölmiðlaprinsessa, fílar: LOKAPRÓFIÐ | 2. september 2010 | skólinn BIGGIBIX OG SING FOR ME SANDRA Sódóma 21:00 Biggibix og Sing for meSandra leiða saman hesta sína á tónleikum á Sódómu. Miðaverð er 1.000 krónur. MELCHIOR Rosenberg 21:30 Hljómsveitin Melchiorfagnar því að allar gömlu vínylplötur koma nú út í stafrænu formi. Gestasöngkona er engin önnur en Helga Möller. DRAUMHVÖRF OG FÉLAGAR Faktorý 22:00 Hljómsveitirnar Draumhvörf,Mikado og Two tickets to Japan halda tónleika á Faktorý. Húsið opnar klukkan 21 en tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22. fílófaxið fimmtudagur 2sept föstudagur 3sept laugardagur NORÐLENSK TÓNLISTARVEISLA Menningarhúsið Hof, Akureyri 20:00 Nokkrar hljómsveitir ættaðarað norðan koma saman á tónleikum. Þær eru Hvanndalsbræður, Helgi og hljóðfæraleikararnir, Heflarnir og Bara- flokkurinn. Miðaverð er 2.400 krónur. HEIMKOMUTÓNLEIKAR Sódóma 22:00 Hljómsveitin Who Knewer komin heim eftir tónleikaferðalag um Evrópu. Að því tilefni halda þeir tónleika á Sódómu ásamt Nolo, Quadruplos og On Jupiters orbit. Miðaverð er 500 krónur. ÞUNGAVIGTARTÓNLEIKAR Faktorý 23:00 Hljómsveitirnar We MadeGod, Wistaria, Moldun og Hylur spila á tónleikum á Faktorý. Húsið opnar klukkan 22 en tónleikarnir byrja klukkan 23. Miðaverð er 500 krónur. BÚDRÝGINDI Venue 23:00 Hljómsveitin Búdrýgindikemur fram á tónleikum í fyrsta sinn um nokkra hríð en ásamt þeim munu Sing for me Sandra stíga á svið. Aðgangur er ókeypis. 4 sept UPPHITUN FYRIR PARTY ZONE Kaffibarinn 14:00 Tuttugu ára afmæli PartyZone verður fagnað allan daginn á Kaffibarnum. Plötusnúðar úr þáttunum munu spila fyrir viðstadda allt til klukkan 20. Aðgangur er ókeypis. ÓLAFUR ARNALDS Havarí, Austurstræti 16:00 Plötubúðin Havaríhefur haldið tónleika á laugardögum síðustu misseri og í þetta sinn er það Ólafur Arnalds sem kemur fram. FÚSI Í 90 ÁR Salurinn, Kópavogi 17:00 BergþórPálsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jónas Ingimundarson heiðra minningu Sigfúsar Halldórssonar sem hefði orðið 90 ára þann 7. september. Miðaverð er 2.900 krónur. GÁMAN TRÍÓIÐ Menningarhúsið Hof, Akureyri 20:00 Hið danska Gámantríó tvinnar saman gamla norræna alþýðutónlist og nýjar tónsmíðar. Hópurinn hefur leikið víða á Norðurlöndunum og vakið töluverða athygli. Miðaverð er 1.000 krónur. PARTY ZONE 20 ÁRA Nasa 22:00 Útvarpsþátturinn Party Zonefagnar 20 ára afmæli sínu í samvinnu við Rás 2, Icelandair og Corona. Fram koma Gus Gus, Rythmdoctor, Margeir & Árni E, Human Woman live og Casanova. Aldurstakmark er 20 ár og miðaverð er 2.500 krónur. ÓKIND Faktorý 23:00 Hljómsveitin Ókind blæs tiltónleika eftir langa fjarveru en gítarleikarinn Jón Þór úr hljómsveitinni Lödu Sport mun hita upp. Húsið opnar klukkan 22 en tónleikarnir hefjast klukkan 23. Aðgangur er ókeypis. Í SVÖRTUM FÖTUM Hvítahúsið, Selfossi 23:00 Hljómsveitin Í svörtumfötum kemur fram ásamt Friðrik Dór á fyrsta haustballi ársins í Hvítahúsinu á Selfossi. Aldurstakmark er 18 ár og tónleikarnir hefjast klukkan 23.

x

Monitor

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.