Monitor - 30.09.2010, Blaðsíða 14

Monitor - 30.09.2010, Blaðsíða 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2010 Kvikmyndin Come and See í leikstjórn Elem Klimov er algert meistarastykki. Hún gerist í seinni heimstyrjöldinni í Hvíta-Rússlandi. Ég hef horft á hana nokkrum sinnum og er alltaf eftir mig. Stríðsmyndirnar frá Hollywood komast ekki með tærnar þar sem þessi hefur hælana. Sjónvarpsþátturinn Ég var að klára bresku zombieþættina Dead Set. Ég hef mjög gam- an af zombiemyndum og þessi sería gefur þeim bestu ekkert eftir. Shawn of the Dead og Dead Set sýna og sanna að Bretarnir eru bara með þetta. Bókin Ég hef alltaf verið nörd í mér og les mik- ið af fantasy bókum. Serían A Song of Ice and Fire eftir George R.R.Martin stendur þar upp úr. Ofboðslega vel skrifuð, margslung- ið plott og magnað persónugallerí. Skyldulesning fyrir nörda. Platan Elephant með The White Stripes er ein af fáum plötum sem ég get hlustað á frá byrjun til enda án þess að hoppa yfir lag. Vefurinn Google Maps. Ótrúlegt að það sé hægt að skoða hvaða stað sem er í heiminum úr lofti. Staðurinn Ætli ég verði ekki að segja Næsti bar. Kósí stemning, gott að spjalla og frábært starfsfólk. Síðast en ekki síst » Hilmir Jensson, leikari, fílar: LOKAPRÓFIÐ skólinn | 30. september 2010 | skór 10.990.-

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.