Monitor - 25.11.2010, Síða 9

Monitor - 25.11.2010, Síða 9
Var draumurinn alltaf að stofna reggíhljómsveit? Í rauninni ekki en ég var með öðruvísi áherslur í þessu en margir aðrir. Ég hef alltaf metið gæði ofar hljóðstyrk og hef ekki gaman af öskrandi rokki. Ég til dæmis fílaði aldrei Metallica, annað en allir á mínum aldri. Þá var ég bara að hlusta á einhverja karlakóramúsík. Ég var búinn að læra á saxófón og blokkflautu en þegar ég fermdist fór ég að sjálfsögðu að læra á gítar. Um svipað leyti var ég farinn að glamra aðeins á píanóið. Í kringum bílprófsaldurinn hugsaði ég svo með mér: Ég verð að spila á Hammond orgel og verð ekki í friðnum fyrr en ég fæ mér eitt slíkt. Hlustaðirðu aldrei á 2 Unlimited? Ég komst ekki hjá því reyndar en sú tónlist var ekki beint af mínu sauðahúsi. Ég kann samt að meta mjög vítt spektrúm í tónlist, ég hlusta ekki bara á reggí. Ef það er gott skal ég gefa því sjéns, ef það er drasl má það bara vera heima hjá sér. Hvernig kom nafnið Hjálmar til? Það kom upp á Reykjanesbrautinni eins og svo margt. Á þeirri leið koma upp frábærar hugmyndir eins og Rúnar Júlíusson samdi lag um. Við vorum á leiðinni í einhverja upptöku- sessjón fyrir fyrstu plötuna og köstuðum á milli okkar einhverjum nöfnum og römbuðum einhvern veginn á nafnið Hjálmar. Hin nöfnin var ekki einu sinni vert að muna. Hvernig kunnirðu við þig á Jamaíka? Mjög vel. Við vorum þarna í tíu daga og unnum í fimm daga. Hina dagana vorum við bara að tjilla. Þetta er ofboðslega falleg eyja en þar er mjög mikil örbirgð, svo þetta var bæði æðislegt og hræðilegt. Mér fannst margt mjög skylt með Jamaíka og Íslandi. Eins og hvað? Þetta eru báðar eyþjóðir og eyjaskeggjar virtust hafa mikinn áhuga á umhverfinu, annað en til dæmis Bandaríkjamenn sem ég hitti á Ítalíu sem vissu ekki hvar Ísland væri. Eldgamall maður í stúdíóinu sem virtist vera nær dauða en lífi spurði hvaðan við værum og sagði svo: Já, er ekki mikil efnahagskreppa þar um þessar mundir? Var þetta pílagrímsferð reggítónlistarmannsins? Auðvitað. Það var ótrúlegt að sjá staðina sem við vorum að taka upp á því sagan er uppi um alla veggi þarna. Bob Marley var að syngja á þessum stöðum. Myndirðu vilja vinna við eitthvað annað en tónlist? Ég væri til í að rækta grænmeti og vera með hænsn. Eitthvað svona lítið. Ég væri ekki til í að vera með kindur heldur bara garð þar sem ég get ræktað mitt eigið. Þá gæti ég sinnt tónlistinni á kvöldin og vökvað á daginn. Þú hefur verið þekktur fyrir gríðarsítt skegg. Hvað varstu lengi að safna því? Skeggið kemur og fer eins og hárið. Ég held ég hafi byrjað að safna þegar mér byrjaði að vaxa skegg. Það tekur alveg lúmskt langan tíma að safna löngu skeggi, jafnvel hátt í tvö ár. Myndböndin af Hjálmum á YouTube sýna skeggið og þróun þess vel. Finnurðu fyrri auknum áhuga hjá kvenþjóðinni eftir að Hjálmar slógu í gegn? Ég veit ekki með það en ég heyrði einhverja tölfræði um daginn sem fullyrti að 75% af þeim sem kaupa plötur á Íslandi séu húsmæður yfir fertugu. Af minni reynslu hefur konan yfirleitt fjárráðin svo ég gæti kannski túlkað góða plötusölu sem aðdáun kvenna á mér. Hjálmalagið Ég vil fá mér kærustu sló í gegn á sínum tíma. Ertu loksins kominn með kærustu? Já, það gerðist einmitt fljótlega eftir að lagið kom út. Við erum búin að vera saman í einhver fimm ár og eigum von á milli-jóla-og-nýárs-barni. Mun barnið verða yngsta manneskja á Íslandi til að fá dredda? Það held ég nú ekki. Ég er ekki einu sinni sjálfur með svoleiðis. Hjálmar fengu viðurkenningu á degi íslenskrar tungu nýverið. Var það markmiðið allan tímann? Reyndar ekki en við tókum samt meðvitaða ákvörðun um að syngja bara á íslensku þegar við fórum af stað. Finnst þér pirrandi þegar íslenskar hljómsveitir syngja á ensku? Mér finnst það ekkert meira pirrandi en að fólk sé að gera drasl yfir höfuð. Fyrir mér þýðir þetta samt ekki neitt því ég veit að þessir menn eru Íslend- ingar og þeir eru bara að búa til eitthvað sem mér finnst alltaf vera einhver meikfílingur í. Kæmi þá ekki til greina að skipta yfir í enskuna, skíra hljómsveitina Helmets og reyna að meika það úti? Ég myndi halda að það yrði orðinn pínu þunnur þrettándi. Hvernig var að alast upp í Njarðvík? Það var rosalega gott. Ég bjó lengst af í Innri-Njarðvík sem er fyrsta byggðin sem þú kemur að eftir Vogana. Ég átti heima alveg niður við sjóinn og það var mjög gott að vera þarna sem krakki. Hvernig unglingur varstu? Ég var voðalegur prófessor. Ég hafði mikinn áhuga á tónlist frá barnæsku og var mikið að berja pottana hjá ömmu. Ég vissi eiginlega al- veg frá upphafi að ég ætti eftir að verða tónlistarmaður. Æfðirðu einhverjar íþróttir? Nei, mig langaði það aldrei. Ég var mjög mjór og pínulítið brothættur því ég var líka langur. Vöðvamassi og annað fór í að lengjast frekar en að massast upp. Ég var að skoða myndir sem voru teknar af mér fyrir tíu árum síðan og þá var ég ennþá rosalega mjór en núna er ég kominn með smá bumbu. Verandi úr Njarðvíkunum var mikið suðað í mér að koma í körfubolta en ég hafði aldrei mikinn áhuga á því. Það var stungið upp á að ég myndi bara standa undir körfunni með hendurnar upp í loft. Þessir strákar voru alltaf miklu meiri jaxlar en ég. Mér fannst svo vont að standa í þessu. Hefurðu lært mikið í tónlist? Nei, ég get ekki sagt það. Áhuginn vatt upp á sig og einhver náttúrulegur skilningur á framvindunni kom sér mjög vel fyrir mig. Þetta er ekki beint eins og að kubba því þar geturðu séð grunninn og skoðað heildarmyndina. Músíkin flæðir áfram og ef þú ert í C-dúr er lógískt að eftir það komi eitthvað annað. Þegar ég var í tónlistarskóla vildu kennarar bara að ég horfði á nóturnar en ég las titilinn á laginu og vildi frekar reyna að spila eftir eyranu. Ég gafst upp á tónlistarskólanum eins og ég gafst upp á Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Af hverju gafstu upp á fjölbrautaskólanum? Út af leikfiminni. Það átti að skikka mig í leikfimi og ég sagði bara: Hingað og ekki lengra, ég er hættur! Er tónlistin í blóðinu? Pabbi hefur sungið mikið í gegnum tíðina í kórum og í kirkjunni. Mamma er píanókennari og organisti svo það voru alltaf hljóðfæri á heimilinu. Bróðir þinn er einmitt Guðmundur Óskar í Hjaltalín. Keppið þið í tónlist? Verandi stóri bróðir má ég kannski ekki segja margt um það en það er alltaf heilbrigð samkeppni á milli okkar. Við erum rosa góðir vinir og allt það en maður verður að vera á tánum. Það þýðir ekki að láta litla bróður taka fram úr. Hvað er framundan hjá þér? Ein hugmyndin er að fara næsta sumar á túr um Evrópu og taka upp nýja Hjálmaplötu. Tíu lönd, tíu stúdíó, tíu lög. Þetta er samt ennþá bara á teikniborðinu. Hver eru helstu áhugamálin fyrir utan tónlistina? Ég er smá mótorhjólakarl og við ætlum einn daginn að gera mótorhjólarokkplötu og erum komnir með nafnið á plötuna, Bestu keðjur. Hefurðu einhvern tímann slasast á mótorhjólinu? Ég hef einu sinni lent í árekstri og þá var keyrt yfir hausinn á mér. Sem betur fer slapp ég nánast heill og tognaði bara í úlnliðnum. Hvort myndirðu frekar vilja láta henda þér í gryfju með tveimur ljónum eða í vatnstank með hákarli? Að því gefnu að það sé munur á kúk og skít myndi ég reyna að vera í liði með Íslandi, hugsanlega gangandi í ESB og vera gullfiskurinn sem dettur í hákarlabúrið. Hvað er það ógeðslegasta sem þú hefur séð á Inter- netinu? Það hlýtur að vera kallinn í réttstöðulyftunni. Hann var með einhver ógeðslega stór lóð að lyfta og hringvöðvinn hélt ekki. Texti: Sigyn Jónsdóttir sigyn@monitor.is Myndir: Ernir Eyjólfsson ernir@mbl.is 9FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2010 Monitor Langar í hænsn Sigurð Guðmundsson eða Sigga í Hjálmum eins og hann er oft kallaður þarf vart að kynna. Siggi er sólkonungur á Diskóeyjunni, að gefa út jólaplötu, spilar í reggíhljómsveit og á von á milli-jóla-og-nýárs-barni svo það er nóg um að vera hjá honum þessa dagana. Monitor náði þó í skeggið á honum og fékk að forvitnast um tónlistina, Jamaíka, græn- metisræktun og unglingsárin. og að rækta mitt eigið HRAÐASPURNINGAR Fyrstu sex? 150378 Leyndur hæfileiki? Snilldarkokkur. Besti draumur sem þig hefur dreymt? Við skulum ekki tala um það. Uppáhaldsjólasveinn? Stekkjastaur. Ég hef oft leikið hann. Uppáhaldsmatur? Nýr íslenskur þorskur. Besti sjónvarpsþátturinn? Allt David Attenborough safnið eins og það leggur sig. Mesti veikleiki? Ég er pínu meðvirkur. Mest pirrandi hljóð í heimi? Feedback sem kemur þegar einhver vitleysingur fer með míkrófóninn að monitornum. Lélegasta lag sem þú hefur heyrt? Lipurtá með Hauki Morthens. Ég gæti kannski túlkað góða plötusölu sem aðdáun kvenna á mér. Það átti að skikka mig í leikfimi og ég sagði bara: Hingað og ekki lengra, ég er hættur!

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.