Ísfirðingur - 12.12.1990, Side 6
6
ÍSFIRÐINGUR
Afmæliskveðja:
Olafur Þ. Þórðarson
alþingismaður fimmtugur
Þann 8,. desember s.l. varð
vinur minn, Ólafur Þ. Þórðar-
son, alþingismaðurfimmtugur.
Hann er sonur hjónanna Jó-
fríðar Pétursdóttur frá Laugum
í Súgandafirði og Þórðar Á.
Ólafssonar frá Suðureyri. Þau
hjón eru nú bæði látin fyrir
nokkrum árum. Þau bjuggu all-
an sinn búskap á Stað í Súg-
andafirði og stórbættu þá jörð
til búskapar eins og alkunnugt
er hér um slóðir. Þau voru bæði
af hinni fjölmennu og þekktu
Arnardalsætt. Jófríður móðir
Ólafs var dótturdóttir hins
þekkta bónda í Vatnadal
fremri, Friðberts Guðmunds-
sonar, en til hans geta ótal-
margir Súgfirðingar rakið ættir
sínar.
Ólafur er því af traustu vest-
firsku bergi brotinn og bindur
ekki ávallt bagga sína sem sam-
tíðarmenn hans. Eftir barna-
skólanám á Suðureyri hélt
Ólafur til náms í Núpsskóla.
Þaðan lá leið hans í Bændaskól-
ann á Hvanneyri í Borgarfirði.
Eftir það stundaði hann
kennslu í Biskupstungum og
svo lá leið hans í Kennaraskól-
ann og þaðan lauk hann prófi
1970. Næstu árin gegndi hann
starfi skólastjóra við barna-
skólann á Suðureyri en tók svo
við skólastjórn í Reykholti í
Borgarfirði eða þar til hann var
kjörinn alþingismaður fyrir
Vestfirðinga haustið 1979 og
hefur setið á Alþingi síðan.
Þessi ljóshærði og norræni
Súgfirðingur vakti athygli
margra á ísafirði er hann átti
erindi þangað á uppvaxtarárum
sínum í Súgandafirði, sem
óhjákvæmilega hlaut að gerast
í sambandi við pólitík eða er-
indrekstur í einhverri mynd
innan Framsóknarflokksins.
Skarpar gáfur hans, mælska og
orðfimi í fundarsölum og á
mannfundum vöktu athygli
hinna pólitísku spámanna í
höfuðstað Vestfjarða, ísafirði.
Meðal þingmála er Ólafur
hefur barist á móti er kvótafr-
umvarpið og lögin í núverandi
mynd ásamt skeleggri baráttu
á móti bruggun áfengs öls í
landinu og sölu þess.
Ég held að margt af því and-
streymi er fólkið á landsbyggð-
inni á nú við að glíma hafi
Ólafur Þ. Þórðarson.
Ólafur komið auga á langt á
undan öðrum, en það er gömul
og ný saga að undanfarinn sér
ýmislegt sem sporgöngumenn
sjá ekki. Vonandi fá Vestfirð-
ingar enn um hríð að njóta
verka Ólafs á Alþingi.
Að lokum óska ég Ólafi og
fjölskyldu hans gæfu og gengis
á þessum tímamótum í lífi
hans. Lif heil.
B.T.J.
Blaðstjórn ísfirðings auglýsir eftir fjölhæfum starfsmanni til að vinna við ísfirðing í
vetur.
Helstu verkefni verða: Öflun efnis og auglýsinga í blaðið, frágangur blaðsins til
prentunar, innheimta auglýsinga, og önnur störf í þágu blaðins.
Launakjör eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefur Pétur Bjarnason í síma 94-4684 og vinnus.94-3855. Ennfremur
aðrir blaðstjórnarmenn (sjá blaðhaus).
Blaðstjórn ísfirðings.
VÉLSMIÐJAN ÞÓR HF.
Óskum starfsfólki og viðskiptavinum
gleðilegra jóla, árs og friðar, og
þökkum jafnframt samstarf
og viðskipti á líðandi ári
RÖRVERK HF.
Óskum starfsfólki og
viðskiptavinum gleðilegra jóla,
árs og friðar, og þökkum jafnframt
samstarf og viðskipti á líðandi ári.
Spakmæli:
Best nýtta vatnsaflið í heiminum eru tár konunnar.
Wilson Mizner.
Hvað sem öðru líður skaltu gifta þig. Ef þú eignast góða konu
verður þú hamingjusamur, ef þú eignast slæma konu verður
þú heimspekingur.
Sókrates.
í hjónabandinu hafa báðir aðilar sama hlutverki að gegna: Að gera
eiginmanninum allt til geðs.
Ók. höf.
Vel giftur maður á sjaldan vel gifta konu.
Ók. höf.
Sannleikurinn er það verðmætasta sem við eigum. Við skulum því
fara sparlega með hann.
Mark Twain.
Það kemur fyrir að menn hnjóta um sannleikann, en flestir þeirra
eru fljótir á fætur og hraða sér áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Winston Churchill.
Lengsta ferðin hefst á einu skrefi.
Kínverskt spakmæli.
Að trúa er erfitt, að trúa ekki er ógerlegt.
Victor Hugo.
Ég á auðveldara með að fyrirgefa æskunni þúsund syndir en alls
enga.
Friedrich Hebbel.
Maður er oftast nær eins ungur og manni finnst maður vera, en
sjaldan eins þýðingarmikill.
Ók. höf.
Víst er leiðinlegt að eldast, en það er nú samt eina leiðin til langlífis.
Ók. höf.
Á æskuárunum viljum við breyta heiminum, á elliárunum viljum við
breyta æskunni.
Bob Brown.