Ísfirðingur


Ísfirðingur - 12.12.1990, Side 17

Ísfirðingur - 12.12.1990, Side 17
ÍSFIRÐINGUR 17 Ur þjóðsögum Jóns Arnasonar Þuríður sundafyllir Hólsá kemur upp í Tungudal í Bolungarvík, rennur skammt og kemur til sjóar í miðri víkinni. Efst í víkinni norðan við ána er Tunga, vel húsaður bær, sumir segja Þjóðólfs- tunga. Þuríður sundafyllir átti bróður þann er Þjóðólfur hét. Hann bað Þuríði að fá sér land í Bolungarvík, en hún leyfði honum svo mikið land sem hann gæti girt fyrir á dag. Hann fer til og leggur garð frá Stiga og vildi girða fyrir Hlíðardal og Tungudal, en komst ekki lengra en á miðjan Tungudal um daginn og sjást þess merki enn hvar hann lagði garðinn. Þjóð- ólfur kallaði sér báða dal- ina, en Þuríður þóttist eiga þann dalinn er eigi var girt fyrir til fulls og varð so að vera sem hún vildi. Þetta líkaði Þjóðólfi stórilla og hugðist að hefna sín og stela yxni sem Þuríður átti á Stigahlíð. Þuríður varð vör við er hann gekk á hlíð- ina og fór þegar á eftir honum, en hann tók yxnið og vildi leiða heim. Þau mættust þar sem nú heitir Ófæra, innst á hlíðinni. Hún réð þegar á hann og vildi taka yxnið en fékk eigi atgjört. Varð hún þá so reið að hún lagði það á hann að hann yrði að steini þar sem flestir fuglar á hann skiti, en hann lét það um mælt á móti að hún yrði að standa þar sem vindur nauðaði mest á og stendur hún nú efst á norðurhorn- inu á Óshlíð. Þjóðólfur varð að kletti og valt fram í sjóinn og lenti á klöpp sem upp úr stóð. Sá klettur var jafnan alþakinn af fuglum og stóð þar þangað til 1836 um haustið, hvarf hann í logni og ládeyðu eina nótt svo enginn vissi hvað af varð. Allir muna Bolvíkingar eftir Þjóðólfi og vissu gjörla hvar hann stóð, því hann var stakur og róið fram hjá honum í hvurt sinn er á sjó var farið, og fullyrða allir í einu hljóði að so sé grunnt allt í kring- um klöppina sem hann stóð á að hann geti þar hvurgi legið, en segja hann fyrir því hafa horfið að þá hafi verið úti álögutíminn. Gjörla sást merki hvar hann stóð á skerinu og hef- ur hann verið rúmra fimm faðma á þann veginn sem niður hefur snúið... Sunnan megin árinnar er Landa-Leifur fram í Tungudal. Neðar með ánni er Hóll, norðan undir Ern- inum. Bærinn stendur á háum og víðum hól, það segja menn að héti fyrrum Lynghóll. Á þann hól er sagt að Þuríður sundafyllir létu reka kýr sínar. Það er og sagt að jafnan er henni varð litið til hólsins sýndist henni sem ljós brynni þar. Það lagði hún fyrir siða- skiptum og fékk af því so mikinn óþokka á hólnum að hún lét ekki framar þangað beita kúm sínum og er mælt að hún léti sam- stundis drepa eina af kúm sínum sem óvart komst á hólinn og kasta út slátrinu. Ovættur í Látrabjargi Á dögum Guðmundar biskups góða var Látra- bjarg í Barðastarandar- sýslu til engra nytja eigend- um þess sökum meinvætta er héldu bjargið. Kærðu þeir vandræði sín fyrir biskupi þá er hann eitt sinn var á ferð um Vestfirði og báðu hann liðsemdar. Biskup hét að hlutast hér til. Fer hann í bjargið að forvitnast um hvað vand- ræðunum mundi valda. Þá er hann hefur litast þar um sér hann kall einn lfkari tröllum en mennskum mönnum. Biskup verpur orðum á hann og spyr hvort hann banni bændum bjarg- nytjarnar, og kvað hann það satt vera. Biskup deilir á hann um siíkt og biður hann burt fara. Þá mælti kallinn: „Einhvers staðar verða vondar kindur að vera; ef ég skal burt úr bjarginu þá hljótið þér að ákveða mér hæli annars staðar. En vita skulið þér það herra biskup að ég er ekki smáþægur um slíkt, því margt fólk er á búi með mér. Ég hefi tólf skip fyrir landi og tólf menn á hvorju, hafa þeir með að fara tólf skutla hvor og fyrir hvorjum skutli farast tólf selar. Hvorn sel sker ég í tólf lengjur og hvorja lengju í tólf stykki og er þá einn maður um stykki hvort og tveir um totann.“ Biskup hlýddi tölu kalls og leist honum vandhæfi að ráða honum bústað. Leyfði hann honum síðan nokk- urn hluta af bjarginu og heitir sá hluti þess Heiðna- bjarg og eru þar tvær gjár eða hellar sem Jötunsaugu heita; þókti þar löngum kenna reimleika. Liðu svo aldir fram að engir áræddu vaðsig í Heiðnabjargi, því óhöpp fylgdu jafnan viðburðum þeim. Þess er getið að einu sinni fór maður vaðsig í bjarg þetta og sem hann var kominn ofan í bjargið fundu þeir sem vaðnum héldu að laus var og drógu upp. Vaðurinn varþríþætt- ur og skornir allir þættirnir Fóru þeir með vaðinn heim að Látrum og sögðu sem gjörst hafði. Kall blindur var þar á Látrum og biður hann þeir sýni sér vað- skurðinn; þeir gjöra sem kallinn beiddi og þuklar hann og þefar af hvorjum þáttarenda sér í lagi og segir: „Einhvors konar ókind hefur skorið tvo þættina, en mennskur mað- ur hefur skorið hinn þriðja. Má vera að maðurinn sjálf- ur hafi það gjört og farið því með festi á bjargið og hleypið niður í sama stað.“ Þeir gjöra sem hann bauð og sem festin var niður hlaupin var maðurinn þar fyrir og batt sig í hana, en þeir drógu upp. Sagði hann þá þann atburð að óvættur í bjarginu hefði skorið á festina og sundur tvo þætt- ina. Kvaðst hann þá hafa séð að sá eini þátturinn sem hélt mundi ekki þola þunga sinn og því hefði hann skor- ið hann. Síðan var ekki tilraun gjörð að síga í Heiðnabjarg fyrr en Björn bóndi á Látr- um byrjaði það um alda- mótin 1800. Tröllin á Vestfjörðum A fyrndinni voru þrjú tröll á Vestfjörðum sen tóku sig til og ætluðu að moka sund á milli Vestfjarða og hins landsins nálægt því sem það er mjóst, milli Gils- fjarðar og Kollafjarðar. Þó höfðu þau annan tilgang um leið: Þau ætluðu sumsé að búa til eyjar af því sem þau mokuðu úr sundinu. Að vestanverðu gekk moksturinn miklu betur, enda var Breiðafjörðurinn allur grynnri en Húnaflói og þeim megin tvö tröllin, karl og kerling, og mynd- uðu þau af mokstrinum all- ar eyjarnar sem eru eins og berjaskyr á Breiðafirði. En að austanverðu fór allt miður úr hendi þeirri einu tröllkonu sem þar var, því bæði er aumt eins liðið og Húnaflói miklu dýpri og varð því flest allt að blind- skerjum sem hún mokaði og leið næsta óhrein og skerjótt um flóann. Tröllin voru að moka alla liðlanga nóttina og gættu ekki að sér fyrr en dagur var kominn á háa- loft. Þá tóku vestantröllin til fótanna og hlupu svo hart sem þau gátu komist austur og norður yfir Steinadalsheiði og ætluðu að fela sig í Kollafirði. En þegar þau komu ofan á sjávarbakkann kom sólin upp og urðu þau þar bæði að steinum sem síðan heita Drangar. Standa þeir hvor hjá öðrum í svokallaðri Drangavík nálægt Kolla- fjarðarnesi. Er annar drangurinn allur meiri um sig ofan og mjókkar niður, það er karlinn, en hinn er uppmjór en gildnar allur niður svo sýnist móta fyrir maga og niðurhlut og jafn- vel lærum á honum, það er kerlingin. En frá kerlingunni sem mokaði að austanverðu er það að segja að hún varð of naumt fyrir og gáði sín ekki fyrr en birta fór. Hún stökk þá norður yfir Steingríms- fjörð og staðnæmdist hjá klettabelti einu fyrir norð- an fjörðinn sem malarhorn heitir, þegar sólin skein á hana. Hún var svo reið að hún náði ekki upp í nefið á sér af því að hún hafði ekki getað látið standa upp úr Húnaflóa nema fáeina varphólma á fjörðum og nokkur smásker. Rak hún þá rekuna í grellsköpum í Hornið svo fast að úr því sprakk ey sú sem enn er á Steingrímsfirði og Grímsey heitir. Er það eina stóreyj- an sem tröllkonu þessari tókst að mynda. Og segja menn að grjótlagið sé allt það sama í eynni sem í Mal- arhorni of sé það auðséð að af því bergi sé hún brotin. Rétt við eystri eyjarend- ann er klettur einn líkur nauti að lögun; hann er hár og hnarreistur þeim megin sem frá eynni snýr enda er hann kallaður Uxi og er hnarreisti endinn á honum svipaður kirkjuturni, og áttu það að hafa verið horn uxans. Þann uxa átti kerl- ing og stóð hann á eynni þegar hún sprakk fram á fjörðinn, en dagaði þar uppi eins og fóstra hans. Síðan hefur enginn ráðist í að búa til eyjar á Breiða- firði eða Húnaflóa né held- ur reynt að moka sundur landið milli meginlands og Vestfjarða. Kálfatindur Efsti tindur á Hornbjargi heitir Kálfatindur og á nafnið að vera komið þann- ig til: Frændur tveir bjuggu á Horni, næsta bæ við Hornbjörg. Var annar kathólskar trúar, en annar lútherskrar trúar; þrættust þeir mjög um hvor trúin væri betri; því hver hélt með sinni trú. Kom þeim að lokum saman um að reyna kraft trúarinnar þannig: Þeir áttu báðir ali- kálfa og fóru með þá upp á efstu gnípu bjargsins, beiddust þar fyrir. Hinn lútherski beiddi guð þríein- an að bjarga kálfi sínum en hinn beiddi Maríu og alla helga menn að varðveita sinn kálf. Varsíðan kálfun- um báðum hrundið ofan fyrir bjargið. En þegar að var gáð var kálfur lútherska mannsins lifandi að leika sér í fjörunni, en hinn týnd- ist svo ekki sáust eftir nema blóðslettur. Játaði þá hinn kathólski að Lútherstrú væri betri og sncrist til hennar.

x

Ísfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.