Ísfirðingur


Ísfirðingur - 11.12.1991, Síða 13

Ísfirðingur - 11.12.1991, Síða 13
ÍSFIRÐINGUR 13 „í hlíðina er komið býsna stórt gat og þar liggur leiðin inn í fjallið. sapian gerð einbreiðra og tví- breiðra ganga hér. Fram til þessa hafa fyrst og fremst verið reiknað- ar stærðir í því dæmi. GENGIÐ í HAMARINN Steypusprautun er lokið borun undirbúin og við göngum í bergið eins og þursarnir gerðu forðum. Pað er þó líklega ekki rétta samlík- ingin því við ökum inn á skúffubíl sem er alsettur kösturum og lýsir vel upp göngin. Þau eru annars svo myrk og eins og gleypa alla birtu, að illt er að koma við ljósmyndun svo gagn sé að. Göngin eru ótrú- lega víðáttumikil. í loftinu liggur sver stokkur og Björn segir það vera loftbiástur inn, til að endur- nýja stöðugt loftið og veitir vafa- laust ekki af. Nú er ryklaust og hreint loft. Fljótlega sjáum við Ijós innar í fjallinu. Bílnum er lagt, hjálmum hagrætt á höfðinu og við leggjum land undir stóru stígvélin í ljósi ennislugtar á hjálmi Björns. með úðabrúsa hvar útlínur næsta borsvæðis liggja, markað af rauða Ijósþræðinum vinstra megin. Við stjáklum þarna í kring um stund, fylgjumst með vinnu mannanna og forðum okkur áður en byrjað er að bora, en því fylgir ærandi hávaði að sögn. „BEINN OG BRFJÐUR VEGUR“ Ég tek eftir því í bakaleið hve breið göngin eru og marka það af því hversu lítið pláss skúffubíllinn tekur úti undir vegg. Hér á reyndar eftir að leggja veg, setja skilti út frá veggjunum og margt fleira er ógert áður en þetta verður viður- kennd þjóðbraut. Mér verður hugsað til margra ferðalaga minna um Breiðadals- og Botnsheiðar að vetrarlagi, akandi eða gangandi. Hér þarf ekki að kvíða snjóflóðum eða skafbyl. Hér þarf hvorki að standa í snjómokstri eða ganga fyrir bílnum vegna blindu. Hér verður fært allan ársins hring og hraun. Þetta var „tippurinn", grjótmulningurinn sem út úr göng- unum kemur. Björn sagði mér að keyrt hefði verið ofan á veginn í dalnum fyrst í haust, og væri það u.þ.b. hálfnað, en líklega yrði safnað á tippinn fram undir vorið, þegar snjóa leysti, en þá á að byggja veg í Skutulsfirði, frá Hauganesi yfir að Skipeyri og styttir það nokkuð leiðina á flug- völlinn. Björn Harðarson rýnir í gögn sín. Þarna eru líka heilmikil mann- virki, skemmuroggámarogeinnig allstórt tveggja hæða skrifstofu- húsnæði að ógleymdum vinnuvél- um af margvíslegum gerðum. í hlíðina er komið býsna stórt gat og þar liggur leiðin inn í fjallið. Jafn- framt því sem það gladdi hugann Björn vlð borvagninn. að sjá þessi áþreifanlegu merki um langþráðar framkvæmdir varð mér hugsað til gönguferðar á þessar slóðir fyrir rúmu ári. Umskiptin eru gífurleg og tímabundið rask er mikið. Ég hristi þetta af mér, minnugur þess að hér verður geng- ið frá aftur í verklok og hvað sem öðru líður er jafnfallegt og fyrr að líta niður Tungudalinn í átt til bæjarins. Ég staðfesti þetta með myndatöku af tippnum. Það verð- ur stórkostleg aðkoma að bænum hér, hvort heldur er sumar eða vetur. UNNIÐ DAG OG NÓTT Það er verið að ljúka við sem- entshúðun og stendur til að undir- búa borun. Við hinkrum á meðan verið er að skipta um bíl, sprautu- vagninn fer út og borvagninum er komið fyrir innst í göngunum. Nú er búið að bora 400 metra og verk- ið hefur gengið vel. Björn fræðir mig um hringrás vinnudagsins í fjallinu. Stálið í þessum göngum er um átta og hálfur metri á breidd og um átta metra hátt, því alltaf er sprengt ívíð stærra en hönnunar- þversniðið segir til um. Með bor- vagninum eru boraðar % holur, sem eru 4.5 m langar hver. Bor- vagninn borar með þremur borum í einu og holurnar eru síðan hlaðn- ar sprengiefni jafnóðum á meðan borað er. Mest hefur verið notað dýnamit af ýmsum gerðum, en út við jaðrana er notað vægara sprengiefni, svokallaðar rör- hleðslur. Hver hola er 45 mm í þvermál, en í miðjuna eru svo bor- aðar fjórar holur, sem eru þrjár tommur í þvermál. Þær eru ekki hlaðnar sprengiefni, heldur opnast fyrstu sprengingarnar inn í þær ef svo mætti segja, því sprengt er með samtengdum hætti eftir ákveðnum reglum, fyrst í miðju og síðan áfram út til jaðarholanna, sem sprengdar eru síðast. Borun, hleðsla og sprengingar taka um þrjá tíma ef allt gengur vel, síðan verður að gera smáhlé, á meðan reykur og eiturgufur hverfa út. Venjulega fara menn í kaffi á meðan. Síðan tekur við hreinsun og útmokstur. Lítil beltavél mokar á þrjá vörubíla sem aka grjótinu á tippinn. Þessi þáttur tekur einnig um þrjá tíma. Næst er svo athugað hvort þurfi að styrkja bergið og ennþá hefur í flestum tilvikum verið sprautað steypu strax á veggi og í loft. Þá kemur steypubíll neðan úr Steiniðju með steypu, sem er úr fljótharðnandi sementi og blönduð litlum málmflísum, sem styrkja hana þannig að hér er Borvagninn er eins og kolkrabbi. í raun um járnbenta steypu að ræða. Steypubíllinn hellir steyp- unni í sérstakan sprautubíl og steypunni er sprautað. Þetta eru svokallaðar vinnustyrkingar, um þriggja sentimetra þykkt lag af steypu. Þessi þáttur tekur um einn og hálfan tíma og þá kemur bor- vagninn aftur inn á stafninn og byrjar að bora og allt endurtekur sig. 10 METRAR Á SÓLARHRING Tímasetningar í framangreindri lýsingu eru að sjálfsögðu háðar því að allt gangi eins og það á að ganga. Þeir sem kunna lögmál Murphys vita vel að það er síður en svo gefið. Mest er hægt að Ijúka þremur umferðum eins og lýst að framan á sólarhring, en til jafnaðar hafa skilað sér um tvær og hálf að undanförnu og þykir góður gangur;skilarendaum lOmetrum. Margt getur tafið, bilanir, raf- magnsleysi og margt fleira, sem ekki er hægt að sjá fyrir. Unnið er á vöktum í þrjár vikur, með einum frídegi í viku, en síðan er 12 daga frí. Björn sagði að undanfarnar vikur hefðu klárast 60-65 m á viku og væru menn mjög ánægðir með þann árangur, ekki síst miðað við það hve þversnið ganganna væri stórt. Áætlanir gerðu ráð fyrir um 50 m á viku. Bergið hefur verið fremur gott fram að þessu og ekk- ert óvænt komið upp. Einnig hefur verið mjöglítið vatn ígöngunum. Vegagerðin hefur aldrei fyrr gert svo breið göng og menn eru stöðugt að læra á þessar nýju að- stæður, t.d. hversu miklar styrk- ingar þarf til viðbótar o.fl. Að sögn Björns skapast við þetta reynsla, sem gerir menn hæfari til að bera „HÚMIÐ LJÓSRÁK SKER...“ Örmjór rauður Ijósþráður sker myrkrið og Björn varar mig við því að horfa mikið í ljósið. Þetta er sjálfur áttavitinn. lazergeisli sem ræður stefnunni inn í fjallið. Mér dettur rétt í hug að það yrðu meiriháttar leiðindi ef geislinn bognaði og göngin mættust ekki eins og til stæði. En það gerist víst ekki og þetta verður vafalaust í lagi. Eftir stutt ferðalag fer að njóta birtu frá borvagninum og við erum komnir að endastálinu. Bergvegg- urinn er furðu sléttur og mjög lit- skrúðugur, sem mér er sagt að lýsi rauðleitum gjallkarga ofarlega í berglagi. Borvagninn er eins og kolkrabbi, sem teygir arma sína fram í átt að stálinu. Borarmarnir eru enn ekki teknir til starfa en á einum arminum er karfa á enda- num og maður í henni. Karfan er á stöðugri ferð um endastálið, það er mælt með málbandi og merkt má sigla „beggja skauta byr.“ Þessari heimsókn er lokið. Ég fer með Birni niður í „kálfinn" góða, skila hjálminum og stígvél- unum, kveð hann og þakka góða leiðsögn. Það fer lítið fyrir skúffubílnum í göngunum. Þetta er góður draumur og nota- legt að sjá hann vera að rætast, sannarlega ljós í myrku svarta- gallsrausi sem hæst ber þessa dag- ana um málefni okkar Vestfirð- inga.

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.