Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.04.1961, Qupperneq 15

Skólablaðið - 01.04.1961, Qupperneq 15
151 - "Hvað álítur þu þá um 20.öldina?" Þráinn hugsaði sig dálítið um og sagði: "Það eru tvö sjónarmið, hvort eigi að miða allt við almenna velferð eins og nú er gert, eða styrkja heim- speki og listir með öllum ráðum. Ég hef ekkert á móti því, að fólki líði vel, svo að mór finnst 20. öldin ekki eins bölvuð og sumir vilja vera láta. " "Þu vilt sem se, að byggðar sóu blokkir fyrir alþýðuna, þótt listamenn landsins hafi e.t. v. verri skilyrði þess vegna ? " "Þeir þurfa ekki að háfa verri skil- yrði. Þeir geta búið í blokkunum, "sagði Þrainn og brosti. "Aftur á móti er kúlt- ur 20. aldarinnar ekki eins blómlegur og vænta mætti á því blómlegasta skeiði, sem dunið hefur yfir mannkynið. " "Heldurðu, að ekki mætti ráða bót á því með listfræðslu? " "Ég er á móti því að pesa fögrum listum upp á almenning. Slíkt leiðir að- eins til enn meiri tilgerðar, og er ekki á það bætandi. Bezt er að hver fáist við það, sem hann hefur vit á og gaman af. " "Hvað finnst þer um móralinn, Þrá- inn? " "Ég hef engan móral. Ég meina, ef mer er sagt, að einhver hafi verið á fylliríi og kvennafari, er mór alveg sama, eg hneykslast ekkert á því. Þetta finnst mér allt í lagi, ef maðurinn hefur haft gaman af því, og það skaðar engan. En ástæðan fyrir því, að óg er ekki verri, er sú, að mór finnst það ekki praktískt. Ég meina, - í slíkum málum fer óg eftir því, hvað mer finnst praktískt og hvað ekki. Þetta held ég að só ágæt aðferð til að forðast umburðarleyéi." "Hvað heldur þú þá um siðferðiskenn- ingar ? " "Þegar maður rekur sig á, hvað sið- ferðiskenningar eru mismunandi eftir löndum og tíma sest, að þetta eru engin algild lög, heldur mannasetningar, í upp- hafi sprottnar af praktískum ástæðum, þótt tímar hafi breytzt síðan. Mér finnst því ástæðulaust að trúa blint á þá sið- ferðisskoðun, sem ríkjandi er hverju sinni. Og ekkert angrar mig meira, en þegar fólk er að dæma náungann, - án þess að skilja hormónana. " "Þú álítur þá ekki, að til se algild- ur sannleikur?" "Nei, það held ég ekki. Þess vegna gef eg oft ákaflega loðin svör, þegar eg er spurður um ýmis málefni, því að eg skil sjónarmið beggja. Annars var óg um daginn að undirbúa ritgerð um persónuleika og stjórnmálaskoðanir, og tok þa nokkurs konar skoðanapróf, sem óg fann I enskri bók um sálfræði. Þá kom í ljós, að óg var fasisti. " "En hvað álíturðu þá um ástina? " "Maðurinn, sem sagði: "Ég elska þig af öllum kirtlum, " svaraði þeirri spurningu fyrir mig. " Það var orðið nær aldimmt. Ég hallaði mer aftur í stólnum og horfði út um gluggann. "Hvað segir þú um trúarbrögðin, Þráinn? " "Ég er fæddur á fslandi, og er þess vegna kristinn og prótestant. Ef eg væri fæddur á Indlandi, tryði eg sjálfsagt á beljur. Ég geri mer grein fyrir því , að enginn hefur sína trú að yfirlögðu ráði. - Annars finnst mer kristin trú í rauninni stórmerkileg. Það fylgir auðvitað mörg vitleysan með, en kjarninn, kærleiksboðskapurinn, er aðalatriðið, og hann virðist vera sam- eiginlegur öllum trúarbrögðum. Ég sleppi því að hugsa um himnaríki og allt það, en óg reyni að láta alla menn í friði. Ég held, að það se langheppi- legast og í rauninni það minnsta, sem menn geta gert. Svo geta menn sóð til, hvort þeir lenda í himnaríki Múhameðs eða annars staðar. " "En kirkjan? " "Ég álít, að kirkjan sé nauðsynleg fyrir fólkið. Ef ég væri kirkjunnar maður, væri óg rómversk-kaþólskur. Ég er mjög hrifinn af kaþólsku kirkj- unni. " Þar sem nú var orðið áliðið kvölds stóð ég upp, kvaddi Þráin og gekk út. En þegar ég var kominn niður tröppurnar, heyrði ég að hann kallaði á eftir mér : "Heyrðu, Einar, ætli ég hafi annars ekki móral. " E.M. Þess má geta, að myndin af Þráni Eggertssyni er tekin úr Faunu með góðfúslegu leyfi teiknarans, Kristjáns Thorlacius, og kann blað- ið honum miklar þakkir fyrir.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.