Skólablaðið - 01.04.1961, Qupperneq 22
SPJALLARINN, frh. af bls. 162.
er í blaðið rita, er frarr líða stundir.
Að endingu skal þess getið , að Skólablaðið tekur alltaf við efni, sem skrifað
er af sæmilegri domgreind.
Þorkell
Helga
on
Ungur ítalskur hlaupari hljóp
einn hring á vellinum og
tendraði því næst hinn olympíska
eld. Síðan gengu íþróttamenn
ut af vellinum.
Hiti var mikill fyrstu daga
keppninnar, allt að fjörutíu
stigum í forsælu, og þótti
mörgum nóg um.
Keppni var hörð í flestum
greinum íþrótta. Nýir afreks-
menn koma fram á sjónar-
sviðið, en frægir íþróttamenn
lúta oft í lægra haldi, stundum
öllum á óvart. Einna minnis-
stæðust var mér keppni í lang-
stökki, spretthlaupum og há-
stökki. Úrslit í hnefaleikum
eru mér og minnisstæð. Þau
fóru fram í glæsilegri hring-
laga íþróttahöll, sem var þétt-
skipuð ahorfendum, mestmegn-
is ftölum. ftalir báru sigur
úr býtum í þremur þyngdar-
flokkum. Þegar ítalski þjóð-
söngurinn var leikinn, tóku
allir undir, og hef ég aldrei
heyrt tilkomumeiri söng.
Þá bar einnig svo við, að þeim
þótti dómarar halla réttu máli,
og vildu ekki una úrskurði
þeirra. Blístruðu landsmenn
og púuðu samfleytt í nokkrar
mínútur, svo að ekki heyrðist
mannsins mál, og kafnaði þjóðsöngur sigurvegarans í þessum ærandi hávaða.
Olympíuleikunum var svo slitið hinn 11. september við hátíðlega athöfn.
Nú líður óðum að ferðarlokum. Hver og einn notar tímann til að sjá hið mark-
verðasta í borginni. Við förum í Péturskirkjuna, stærstu kirkju kristinna manna.
Þar er dýrlegt um að litast. Þar getur að líta mörg fögur líkneski. Veggir og
loft eru prýdd helgimyndum, og áletranir eru víða. Golfin eru af marmara
Það er furðulegt, að unnt skuli vera að flétta saman svo mörgum listaverkum á
einn stað. Það er sannarlega aðdáunarvert, enda miklu til kostað. Við förum upp
í turn kirkjunnar og virðum borgina fyrir okkur.
Síðan er borgin kvödd, og við fljúgum heimleiðis. Hin fornfræga Rómaborg
hverfur sjónum okkar. J Ö Þ
Baldur Símonarson.