Austri - 21.01.1977, Síða 6
6
AUSTRI
Egilsstöðum, 21. janúar 1977.
CJfiitiliir sngnir
í jólablaði Austra 1975 var grein
eftir Helga Gíslason, fyrrverandi
bónda og fræðimann á Hrappsstöðum
með fyrirsögninni "Veðurvitinn á
Vakursstöðum". Er þar réttilega
minnst á Jarðþrúði Kristjánsdóttur
(Þrúðu) sem var á Vakursstöðum
mestan hluta æfi sinnar. Var hún
eins og Helgi segir skyggn, og sagði
oft fyrir gestkomur og ýmsa ókomna
hluti. Heyrði ég færðar fyrir því
margar ótvíræðar sannanir, en því
miður mun mikið af því vera gleymt
og hvergi skráð.
í sambandi við veðurvitann, kon-
una á hálsbrúninni sem hristi úr
svuntunni sinni, sem var fyrirboði
fyrir vondu veðri, minnist Helgi á
þegar Ingibjörg Indriðadóttir varð
úti 2. janúar 1878, á hálsinum á milli
Lýtingsstaða og Vakursstaða
En það er einmitt í sambandi við
það dauðsfall sem mér datt í hug að
bæta við frásögn sem ég heyrði föð-
ui' minn oft segja frá. Hann var
dóttursonur Jóns Jónssonar þá
hreppsstjóra og bónda á Vakursstöð-
um. Faðir minn var fæddur og upp-
alinn á Vakursstöðum, 19 ára þegar
þetta skeði, og mátti því vel muna
þennan atburð.
Hálsinn á milli Vesturdals og Sel-
árdals, sem Ingibjörg varð úti á, er
um 5 km. breiður. Þar er mikið flóa-
land með ávölum hriggjum á milli.
Á þeim árum var venja að halda fé
af Vesturdalsbæjum á flóunum fram-
an af vetri eins lengi og hægt var
vegna snjóa, því þar er betra land
en niðri í dalnum, og þá var alltaf
reynt að nota beit eftir því sem
mögulegt var, því heyöflun var erfið
og hey oftast í kortara lagi.
Þegar kom fram á vetur var alltaf
venja að ganga við féð daglega, þvi
annars fór það í heiðina, og svo
þurfti að vera hægt að ná því með
litlum fyrirvara ef veðurútlit versn-
aði, því norðanveðrin eru hörð á
hálsinum, en mikil fannahætta í
brúnunum ef fé hrekur ofan af háls-
inum.
Ingibjörg átti heima á Lýtings-
stöðum og var orðin einstæðingur.
Var hún í góðum kunningsskap við
Vakursstaðafólk og taldi pabbi að
hún hefði oft komið þangað og
dvalið nokkuð á ferðum sínum.
Jón hreppsstjóri og börn hans
sem þá bjuggu á Vakursstöðum og
lengi síðan (sama ættin býr þar enn)
voru talin sérstaklega greiðasöm og
gestrisin, og það ekki síður við þá
sem minna máttu sín, en sleppum
því.
Þennan vetur eða á jólaföstu 1877
er unglingspiltur Sigurður Finn-
bogason þá til heimilis á Vakurs-
stöðum að ganga við fé á hálsinum
á milli Vakursstaða og Lýtingsstaða.
Þegar hann kom heim sagði hann
þau tíðindi að Lngibjörg væri vænt-
anleg, hann hefði séð hana á háls-
inum og hafði hún stefnu sem leið
lá í Vakursstaði.
Svo leið dagur að kvöldi, að ekki
kom Ingibjörg. Var þá álitið að hún
hefði breytt um stefnu og farið á
brúna fyrir utan eða framan Vakurs-
staði. Var síðan spurst fyrir um
ferðir Ingibjargar og hafði hún ekki
komið á neinn bæ í dalnum í þetta
sinh. Seinna upplýstist að Ingibjörg
var heima á Lýtingsstöðum þennan
dag.
Var nú farið að hlýða Sigurði
nákvæmar yfir sýn þessa, og stríða
honum á bölvaðri vitleysunni, að
þykjast hafa séð til ferða Ingibjarg-
ar. En Sigurður var ákveðinn og
gaf sig ekki. Hann hélt hann þekkti
göngulagið hennar Ingibjargar. Hún
hefði gengið eins og hún væri vön
út á hlið sitt á hvað, en það hafði
verið venja hennar, og var hún af
þeim ástæðum oft kölluð Ingibjörg
tillitá. Síðast sagðist hann hafa séð
hana hverfa ofan af svonefndum
Selhrygg hjá heystæði sem hann til-
nefndi, en þau ei'u mörg á þeim
hrygg.
Leið svo fram yfir áramót eða
eins og Helgi segir til 2. janúar 1878.
Þá leggur Ingibjörg á stað frá Lýt-
ingsstöðum og ætlaði í Vakursstaði,
en náði ekki til bæja.
Veður þennan dag hafði farið
versnandi, gekk í norðaustan hríð þó
ekki alveg stórhríð í það minnsta
niðri í Vesturdal. Vissara hafði þó
Injórinn
Nú undanfarið hefur verið á norð-
an og norðaustan hér á Héraðinu
og hefur sett niður allmikinn snjó,
a.m.k. um Úthérað og Miðhéraðið.
Vegir hafa teppst og er þegar þetta
er skrifað þriðjudaginn 19. jan. ver-
ið að ryðja út frá Egilsstöðum, Eiða-
þinghá, Velli og Fellahrepp. Vegur-
inn til Borgarfjarðar eystri er alveg
tepptur, en í dag fór þangað snjóbíll
með póst. Einangrun Birgfirðinga er
mikil nú, því að eins og fram hefur
komið liggur flug þangað niðri, en
vonandi rætist úr því, á næstunni,
eins og fram kemur annars staðar
í blaðinu. Snjóbílar hafa haldið uppi
ferðum yfir Fjarðarheiði síðustu
dagana, en Fagridalur hefur verið
ruddur og hafa samgöngur til Reyð-
arfjarðar ekki truflast að marki.
Snjósleðarnir eru mikið notaðir þeg-
ar svona viðrar og er ekki ofsagt að
þeir séu ómissandi til sveita og létti
störfin verulega, auk þess sem menn
bregða sér á þeim í kaupstað, og
annað sem fara þarf.
þótt að fylgjast með ferðum Ingi-
bjargar og var sent frá Lýtings-
stöðum í Vakursstaði. Var þá strax
sent á næstu bæi, en hvergi hafði
Ingibjörg komið. Þá var safnað sam-
an mönnum og hafin leit á hálsinum.
Á Vakursstöðum var þá eins og
jafnan síðan tvíbýli og töluvert
karlmannalið. Efst á túninu er hóll,
svonefndur Kvíhóll, þar var skipt
liði og skipulögð leitin. Sigurður
Finnbogason var einn í hópnum.
Hann var dálítið orðhvatur eins og
gengur með unglinga. Hann hélt að
hann yrði nú ekki lengi að finna
hana Ingibjörgu, hann færi bara
beint norður á Selhrygginn hjá hey-
stæðinu.
Þetta gjörði hann og þar var
Ingibjörg örend undir hryggnum,
nákvæmlega á sama stað og hann
hafði áður um veturinn talið sig
sjá hana hverfa ofan af Selhryggn-
um.
Frásögn þessi er að efni til eins
og ég heyrði föður minn Sigurjón
Hallgrímsson segja frá henni, og
hef ég ekki ástæðu til að álíta annað
en að hún sé sönn.
Sigurður Finnbogason var einn af
svonefndum Setbergssystkinum á
Vopnafirði og föðurbróðir Kjartans
Björnssonar nú símstjóra á Vopna-
firði. Hann fór til Ameríku og var
talinn mjög heiðvirður og greina-
góður eins og það fólk yfirleitt.
Friðrik Sigurjónsson.
Flugfélng Austurluods tekuv
flugvél n ÍetQU
Blaðið hafði samband við Guð-
mund Sigurðsson lækni og innti
hann eftir starfsemi Flugfélags
Austurlands. Guðmundur sagði að
félagið hefði nú tekið á leigu eins
hreyfils Chessna flugvél frá Vest-
mannaeyjum og kemur hún hingað
næstu daga, eða þegar viðrar til
flugs austur. Þá mun hún hefja
ferðir á áætlunarleiðum félagsins.
Þessi vél tekur fimm farþega eða
500 kg. af vörum.
Nú er unnið að viðgerð á Chesna
185 flugvél félagsins og kemur hún
í gagnið í vetur. Tveggja hreyfla
Becchraft vélin, sem hlekktist á í
lendingu á dögunum, verður ekki
tekin í notkun aftur. Rekstrinum
verður haldið gangandi fram á vorið
með tveimur fyrrnefndu vélunum, en
athuganir standa nú yfir á lána-
fyrirgreiðslu til þess að endurbæta
vélakostinn og hafa flugfélagsmenn
þá í huga vél af gerðinni Eilander,
en þær vélar hafa reynst mjög vel
við þær aðstæður sem smærri flug-
félögin búa við.
Guðmundur var spurður um blaða-
fregnir um viðræður við Flugfélag
íslands um samstarf. Sagði hann að
rætt hefði verið við Flugfélag Is-
lands síðastliðið haust og síðan hefði
verið í gangi frá þeirra hálfu könn-
un á rekstrargrundvelli félagsins. Sú
könnun er nú alllangt komin en eng-
ar eiginlegar viðræður hafa farið
fram enn sem komið er fram yfir
það sem áður greinir.
J.K.
Viðgerðaþjónusta
Varahlutir
Nýjar bifreiðar
YIÐGERÐAÞJÓNUSTA fyrir LAND - ROVER,
RANGE-ROVER, AUSTIN og MORRIS bifreiðar
VARAHLUTIR í miklu úrvali í LAND-ROVER,
m.a. í drif, gírkassa og motor. Einnig varahlutir í
RANGE-ROVER, AUSTIN og MORRIS bifreiðar
LUCAS rafgeymar í LAND-ROVER og fleiri
bifreiðar, á mjög hagtæðu verði.
SÖLUUMBOÐ á Austurlandi fyrir LAND -
ROVER, RANGE-ROVER, AUSTIN og MORRIS
ATHUGIÐ AÐ VERÐ Á ÞESSUM BIFREIÐUM
ER NÚ MJÖG HAGSTÆTT.
Við veitum upplýsingar og tökrnn við pöntunum.
Bíloréttin 9
Sími 1246 Egilsstöðum