Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1989, Page 9

Skólablaðið - 01.02.1989, Page 9
Skemmst er þess að minnast að Ronald Reagan lét af embætti forseta Bandaríkja Norður- Ameríku eftir að hafa um átta ára skeið verið einn valdamesti maður heims. Vart þarf að fjölyrða um gjörðir hans á því tíma- bili svo ferskar sem þær eru í minni flestra. En hver er bakgrunur hans, og hvernig kom það til að hann forframaðist svo mjög sem raun ber vitni? Ronald Wilson Reagan fæddist hinn 6. febrúar 1911 í Tampico, Illinois. Hann var yngri sonur hjónanna Nelle Wilson og John Edward Reagan. Fyrstu æviár Ronalds þvældist fjölskyldan frá einum stað til annars en árið 1921 settist hún loks að í Dixon, sem er í 100 mílna fjarlægð frá Chicaco. Vart er hægt að segja að smér hafi dropið af strái hverju á Reagan-heimilinu þar eð farandskósalinn faðir Ronalds taldi sínum fáu aurum betur varið til áfengiskaupa en til að fæða fjöl- skylduna. Ronald lagðist þó ávallt eitthvað til og hóf hann, fjórtán ára að aldri, að vinna hvert sumar til að safna fyrir skólagjöldum í háskóla. Ekki dugði það og þá var siður. Einnig höfðu menn á orði að hann væri málglaður úr hófi fram. Er hann lauk námi 1932 fór hann að leita sér vinnu við útvarp, sem lá beint við vegna fyrrnefnds eiginleika, en þetta var mikið blómaskeið útvarpsmenningarinnar og leituðu þar margir framagjarnir menn fanga. Eftir nokkuð þóf fékk hann vinnu við lestur auglýsinga og annað slíkt en fékk fljótlega góða stöðu við að lýsa íþróttakappleikj- um. A þeim fjórum árum sem hann starfaði hjá útvarps- stöðinni lýsti hann hornabolta- og rugbyleikjum svo hundruðum skipti. Varð hann fljótt vinsæll og þótti standa sig með mestu prýði. Einhverju sinni elti Reagan íþróttalið til California til að lýsa mikilli úrslitakeppni og datt í hug að reyna að fá vinnu við kvikmyndaleik fyrst hann var svo nærri Hollywood. Ekki þarf að orðlengja það að honum var boðinn sjö ára samningur hjá Warner Brothers með tvö hundruð dali í vikukaup. Þeim þótti hann svo æðislega sætur. Að sjálfsögðu hikaði hann ekki við þó til en hann fékk styrk frá skólanum vegna góðrar frammistöðu í íþróttum. Einnig var honum útveguð kvöldvinna við að vaska upp á heimavistinni. Þetta gerði honum kleift að hefja nám í hagfræði með leik- list sem aukafag í Eureka College 1928 þar sem hann varð einnig mjög virkur í félagslífi og leikritum. A þessum árum var Reagan bezt lýst sem ungum manni á uppleið enda var hann ákveðinn í að segja skilið við fátækt og volæði. Hann var bráðmyndarleg- ur að áliti skólasystra sinna en þó háðu sífelld blank- heit honum og var hann því yfirleitt ófær um að bjóða vinstúlkum sínum í kvikmyndahús eða á ölstofu eins að taka boðinu enda var um hærri laun að ræða en honum höfðu nokkurn tíma boðizt áður. Ekki var til setu boðið þar heldur var hann drifinn í förðunardeild- ina þar sem útliti hans var breytt þannig að skiptingin í hárinu var færð frá miðju út á hlið eftir nýustu tízku, einnig var hann sviptur hornspangagleraugum sínum og honum tjáð að hann þyrfti ekkert að sjá. Reagan undi þessu illa en spinna rættist þó úr með tilkomu „contact-linsanna“ í júnímánuði 1937 lék Reagan í fyrstu mynd sinni, „Love is on the air“. Vart er hægt að segja að kvikmynd þessi hafi verið mjög merkileg en hann lék aðalhlutverkið og var þetta því ágæt byrj- Einu tónleikarnir sem farandi er á eru alltaf haldnir í baðkörum. Gregory Stevenson

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.