Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1989, Page 10

Skólablaðið - 01.02.1989, Page 10
un á ferlinum. Síðan fór annasamur tími í hönd hjá Reagan. Hann var látinn leika í hverri myndinni á fætur annarri. Til að byrja með var annað hvort um aukahlutverk eða B-myndir að ræða. Fyrsta áhuga- verða hlutverk sitt fékk Reagan 1938 í myndinni „Brot- her rat“. Einn mótleikara hans í þeirri mynd var Jane Wyman en svo vel fór á með þeim upp úr þessu að þau gengu í hjónaband 27. janúar 1940. Of langt mál yrði að telja allar kvikmyndir Reagans upp hér, enda flestar fallnar í gleymsku. Vert er þó að minnast vinsælla mynda svo sem „Knute Rockne - all American“ (WB-1940), sannsögulegrar myndar þar Rétt er að greina frá upphafi stjórnmálaafskipta Reagans. En enginn skyldi halda að hann hafi leitt þau hjá sér á leikferli sínum. Árið 1938 var Reagan settur í að tala máli nýbyrjaðra leikara í Stéttarfélagi kvikmyndaleikara í Hollywood. Sökum tungulipurðar var hann oft milligöngumaður félagsins og yfirmanna kvikmyndaveranna þegar verkföll og hagsmunaá- rekstrar komu til, enda leið ekki á löngu þar til hann var valinn í yfirstjórn félagsins. Þótt ýmsum kynni að koma það spánskt fyrir sjónir, var Reagan demókrati á yngri árum og heldur frjáls- lyndari í skoðunum en seinna varð, þótt aldrei hafi sem hann lék íþróttakappann George Gipp. „Kings row“ (WB-1941), sem telja má þekktustu mynd Reag- ans, er óvenjulegur smábæjarharmleikur og þótti Re- agan þetta sín skemmtilegasta mynd. Síðan má nefna „Desperate journey" (WB-1942), hressilega stríðsmynd þar sem hann og Errol Flynn taka Þjóðverjana til bæna. Eftir nokkurra ára dautt tímabil náði hann sér á strik með gamanmyndunum „The voice of the turtle“ (WB 1949) og „The girl from Jones beach“ (WB 1949), í harmleiknum „The hasty heart“ (WB-1950) og öðrum gamanleik, „Bed time for Bonzo“ (Universal 1951). Eftir þetta fór kvikmyndaferli Reagans hrakandi, hann lék í færri myndum en áður, og sneri sér í auknum mæli að sjonvarpi sem þá var að verða útbreytt í Bandaríkjunum og stjórnaði þar hinum ýmsu þáttum. Reyndar var síðasta mynd Reagans, „The killers“ (NBC TV-1964) gerð fyrir sjónvarp, en þótti svo hrotta- fengin að Universal dreifði henni aðeins í kvikmynda- húsin. Eins og fyrr var sagt giftist hann Wyman 1940 en samkomuleg þeirra hjóna var ekki með bezta móti og 1947 fór Wyman af heimilinu í fússi og kom ekki aft- ur. Reagan lét þetta ekki á sig fá og giftist Nancy Davis 5. marz 1951. hann beinlínis veifað rauðum fánum. Árið 1962 skipti hann um skoðun og gekk í Repúblikanaflokkinn og bauð sig fram til Ríkisstjóra California fjórum árum síðar. Ekki dró úr fylgi hans að hann átti kunningja á borð við James Cagney og John Wayne. En Reagan sjálfur var ræðuhöldum og því að leika góða karlinn vanur. Leik hans í „The Killers“ var svo lýst í Vari- ety: „Reagan á erfitt með að sannfæra áhorfendur um að hann sé í raun fantur og skepna eftir að hafa verið einstakt góðmenni í óteljandi myndum.“ Hann náði kjöri og gengdi embættinu til 1974. Tveimur árum seinna gaf hann kost á sér til forsetaframboðs Repú- blikanaflokksins en Gerald Ford var valinn í hans stað. Árið 1980 komst Reagan í framboð og nýtti sér til fulln- ustu hæfileika sína til að sameina haldbær rök og leik- ræna tilburði í málflutningi sínum. Til dæmis burstaði hann James Carter í sjónvarpskappræðum og er reynd- ar talinn hafa staðið sig forseta bezt í sjónvarpi. Brynjar Frosti Arnarson. Við ritun greinar þessarar var stuðzt við bókina „The All-Americans“ eftir Robert Parish og Don E. Stanke. B.F.A. Stíg ég á bak og brott ég held beint inn í sólarlagsins eld. Olafur Jóhann Sigurðsson

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.