Skólablaðið - 01.02.1989, Síða 11
Listasíðan góða
Skelj amaðurinn
Það var Páskaeyjan. Fjara. Maður gengur um og
safnar skeljum. Það er skeljamaðurinn. Hann safnar
margs konar skeljum, gulum og grænum, greindum og
góðum, slöppum og slepjulegum, þykkum og þunnum.
Alls konar skeljum. Af hverju? Stundum hugsar hann
svo mikið um það að safna skeljum að hann gleymir
af hverju hann safnar þeim. Hjálp. Skeljamaðurinn
þarf hjálp. En hver getur hjálpað honum. Kannske
enginn. Kannske allir. Líklega enginn. Skeljamaður-
inn gefur nefnilega öllum skeljar. Margar skeljar, hel-
víti margar skeljar. Allir þurfa skeljar. Þeir vilja eign-
ast skeljar. Samt vilja þeir ekki eignast skeljar. Skelja-
maðurinn hættir aldrei að tína skeljar. Það eru svo
margar skeljar, svo mikil eftirspurn. Komdu þér burt
bölvaði barnamorðingi! Góðan daginn FRÖKEN PET-
ERSEN. Skelfiskur er viðbjóðslegur.
Erlingur II von Afghanistan
(Armenía)
Hraunstreymi
Mannlífið hefur þróazt. Um aldanna raðir. Ekki er
ráð nema í tíma sé tekið. Þegar ekkert er eftir nema
auðn og dauði fer að sneyðast um fjölbreytileika. Hve
snautt er ekki mannlíf á volaðri storð, menn eiga ekki
anda menn eiga ekki orð. Til einskis er að streitast á
móti, örlögin verða ekki umflúin. Þó sakar ekki að
reyna. Það gæti stytt vora hinztu stund ef vjer verðum
heppin. Líklegra er þó að eingungis villi það um fyrir
einföldum sálum. Að vísu eru sálir huglægar og geta
því hvorki verið einfaldar nje tvöfaldar. Því miður.
Styrkár Sveinn Storkur.
Svo ljótur
Ég stóð við gluggann
Ég sá þig
svo ljótan að ég fór á sal
ernið og söng
fýlan minnti mig á þig
Ég skil ekki
nóttina
sem kom svo björt
ó Sveinn
minn hreinn Sveinn
gakktu inn í morguninn
gakktu inn í daginn
og heyrðu vatnið syngja
þú ert dauður
nema...
Hið eina yfirnáttúrulega sem ég hef nokkurn tíma kynnzt,
er mannleg heimska
Georg Brandes