Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1989, Qupperneq 12

Skólablaðið - 01.02.1989, Qupperneq 12
A minn herra vin ? - af starfi Húsnæðisnefndar í vetur í byrjun þess vetrar, sem nú er liðinn, boðaði inspec- tor til fundar í Cösu. Ræða skyldi húsnæðisvandræðin og var rektor fenginn til að rekja sögu málsins og hver staðan væri. A fundinum spunnust nokkrar um- ræður og var samþykkt ályktun þar sem skorað var á stjórnvöld að kaupa hús Isafoldarprentsmiðju við Þingholtsstræti. Einnig var ákveðið að inspector skyldi skipa nefnd nemenda um málið. I þessa nefnd voru síðan fengnar Kristrún Heimisdóttir, Auður Loftsdóttir og Asta Kristjana Sveinsdóttir. Nefnd þessi var þó frá upphafi afar óformleg, eiginlega fremur áhugahópur en virðuleg nefnd. Við urðum fljótt sammála um að nauðsynlegt væri að vinna að málinu af þrautseigju, þ.e. reyna að beita stjórnvöld jöfnum og stöðugum þrýstingi í stað þess að blása srax í herlúðra og marsera í mótmælagöngu. Þetta mál væri nefnilega gamalt og yrði ekki unnið á einni nóttu með einni mótmælagöngu. ( Af hverju að ganga á nóttunni? Innsk. ritn.) Við hugðumst læra af sögunni. Arið 1972 voru slík þrengsli í Menntaskólanum í Reykjavík að annað eins hefur ekki þekkst fyrr né síðar. Þá fóru nemendur og kennarar í mótmælagöngu með miklum látum, afhentu ráðherrum áskoranir og buðu þeim í skólann, er árang- urinn varð sáralítill. Við vildum því ekki gera neitt nema að vel athuguðu máli, byrja rólega en herða róðurinn smátt og smátt. Við gerðum okkur ljósan vanmátt okkar, að við sem eyðum aðeins örfáum árum í skólanum, gætum ekki þekkt allar hliðar málsins, hefðum ekki reynslu ýmissa annarra. En við þekktum líka styrk okkar. Við vissum að reynsla getur einnig deyft baráttuanda og trú á það að menn fái nokkru breytt. Að það væri kannske ein- mitt reynsluleysi okkar og unggæðingsháttur sem gerði það að verkum að lagt yrði út í einhvers konar aðgerðir. Við urðum að fá alla þá er málið snerti í lið með okkur og fyrst áttum við fund með stjórn kennarafé- lagsins. Sá fundur varð síðan til þess að aðalfundur kennarafélagsins ályktaði um málið og sendi fréttatil- kynningu til fjölmiðla. Sú fréttatilkynning birtist í flestum dagblöðum og varð til þess að fjallað var nokk- uð ítarlega um málið á STÖÐ 2. A fyrrnefndum aðal- fundi kennarafélagsins kom einnig fram að ekki voru allir jafn hrifnir af ísafoldarhúsinu því menn óttuðust að um yrði að ræða enn eina bráðabirgðalausn á vand- anum, það sem sem þyrfti væri framtíðarlausn. Ráðherrar í sturtu. Hver dáð sem maðurinn drýgir er draumur um konuást. Stefán frá Hvítadal.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.