Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.02.1989, Side 13

Skólablaðið - 01.02.1989, Side 13
Inspector, rector, consules et magistra in caduca Casa Scholæ Reykjavicensis Við í nefndinni vildum nú reyna að fara út í ein- hverjar meiri aðgerðir og æsktum samstarfs kennara. Varð úr að þrír kennarar, þau Guðfinna Ragnars- dóttir, Guðbjartur Kristó Fersson og Ragnheiður Torfadóttir voru fengin í eins konar samstarfshóp með okkur. Þá gengum við á fund Jónatans Þórmundsson- ar, forseta nemendasambands M.R. (sem í eru allir eldri nemendur M.R.) og er skemmst frá því að segja að Jónatan tók okkur afar vel og sat upp frá þessu í sam- starfshópi okkar og kennaranna. Astæða þess að við lögðum svo ríka áherslu á að fá Jónatan til liðs við okkur var sú að við vildum reyna að ná til alls þess fjölda stúdenta frá Menntaskólanum i Reykjavík sem gegnir ábyrgðarstöðum í þjóðfélaginu og getur lagt sínum gamla skóla lið. Einnig vissum við sem var, að það væri auðvelt að afgreiða nemend- ur skólans sem fávísa skólanemendur. Með málsmet- andi fólk í okkar röðum álitum við að meira mark yrði a okkur tekið. Með þetta í huga var ákveðið að efna til undirskriftasöfunar meðal eldri nemenda skólans. Við vissum að of mikið fyrirtæki yrða að ná til allra eldri nemenda og leituðum því eingöngu til fyrrver- andi inspectora og fyrrverandi forseta framtíðarinnar. Skólafélagið unnu sameiginlega að þessari söfunun og lögðu margir nemendur þar hönd á plóginn. Söfnunin tókst prýðilega og skrifuð 70 stúdentar undir áskorun um að þegar yrði fundin framtíðarlausn á húsnæðis- vanda skólans, sá elsti frá árinu 1917. Þessi áskorun var birt í öllum blöðum 1. desember og auk þess helg- aði MORGUNBLAÐIÐ Menntaskólanum í Reykjavík heila opnu þann dag. Vakti þetta nokkra athygli fólks og áreiðanlega athygli þeirra sem mestu ráða; fjár- málaráðherra taldi ekki getað skrifað undir stöðu sinnar vegna, menntamálaráðherra var erlendis en forsætisráðherra skrifaði undir. Nú vorum við þeirrar skoðunar að næsta skrefið yrði að vera það að virkja hinn almenna nemanda. Lengi vel var stefnt að því að hafa útifund eða mótmæla- göngu þann 17. febrúar en veðurfar gerði allt slíkt afar óráðlegt. Ástæða þess að rætt var sérstaklega um 17. febrúar, var sú að þann dag fyrir 40 árum hélt Eysteinn Jónsson þáverandi menntamálaráðherra ræðu á alþingi þar sem hann lýsti húsnæðisvanda Menntaskólans í Reykjavík. Það er athyglisvert að þessa ræðu gæti núverandi menntamálaráðherra, Sva- var Gestsson, allt eins flutt nú; hin fjörutíu ára gamla Eysteins gæti svo hæglega átt við núverandi ástand. Annað sem rætt hafði verið var að bjóða ráðherrum í skólann, leiða þá um skólahúsnæðið svo þeir sæju með eigin augum hvernig ástandið er. Það er nefnilega ekki hægt að lýsa því með orðum, menn verða að koma og sjá. Eftir tveggja mánaða þref tókst að fá þá þrjá í skólann, sem mestu um málið ráða, þá Steingrím Hermannsson, Ólaf Ragnar Grímsson, og Svavar Gests- son. Þeir voru leiddir um skólann undir stjórn rektors og í fylgd fjölmiðlahers. Þá afhenti inspector þeim áskorun nemenda með nokkrum vel völdum orðum. Þegar þetta er skrifað er ekki enn vitað hver árangur hefur orðið af þeirri heimsókn. Enn er ekki getið heimsóknar okkar til fjárveitinga- nefndar alþingis, sem varð til þess að fjárveiting ríkis- ins til viðhalds á skólahúsum Menntaskólans var Ég og hamingjan skildum aldrei hvort annað og eflaust má kenna það vestfirzkum framburði mínum. Aðalsteinn Kristmundsson (Steinn Steinarr)

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.