Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1989, Page 14

Skólablaðið - 01.02.1989, Page 14
hækkað úr 3,1 milljón í 8,1 milljón . Það skal viður- kennt, að þegar við hófum að kynna okkur þetta mál í haust, héldum við að það yrði mun einfaldara við- fangs en raun varð á. Okkur, nemendunum í þessum skóla, finnst nefnilega svo sjálfsagt að stjórnmála- mönnum sem öðrum mönnum blöskri ástandið svo mjög að þeir hlaupi til og færi allt til betri vegar. Því miður er það ekki svo einfalt. Þeir segjast hafa í mörg horn að líta, nefna alls skyns skóla um allar jarðir, sjúkrahús og barnaheimili, en gleyma því að Mennta- skólinn í Reykjavík hefur mátt bíða í tugi ára. Þeir gleyma því að á meðan framhaldsskólahallir hafa risið í hverjum dal og hverjum firði hafa nemendur Mennta- skólans í Reykjavík stundað nám í gömlum fatahengj- um og salernum í ýmis konar bráðabirgðahúsnæðum á víð og dreif um Þingholtin. Sums staðar við aðstæð- ur sem vart eru boðlegar fólki. Því finnst okkur M.R.-ingum hlægilegt þegar nefndir eru til tíu-tuttugu ára gamlir skólar og að þar sé ástandið svo slæmt að úr verði að bæta. Við efumst ekki um að ástandið geti líka verið slæmt annars stað- ar en teljum einnig að nú hljóti röðin að vera komin að okkur. - Við viljum ekki bíða í 40 ár enn. Kristrún Heimisdóttir Asta Kristjana Sveinsdóttir Jónatan Þórmundsson mættur á svæðið ásamt Þóri Einarssyni, Þóri Auðólfssyni inspector scholæ, ofl Ég hef ekki gaman af neinum kvennaíþróttum, nema þá helzt leðjuslag. Kristinn Tryggvi Þorleifsson

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.