Skólablaðið - 01.02.1989, Qupperneq 16
Quid novi ?
Á skólafundi 25. 2. sl lagði Þórir Auðólfsson, inspec-
tor scholæ, fram lagabreytingatillögu er varðaði lög-
bindingu á skipan svk skemmtinefndar. Aldrei þessu
vant var málið afgreitt með handauppréttingu. Hugs-
anlega hefur ofurlítis klausa í lögum Skólafélagsins
gleymzt: „Lagabreytingar þurfa 2/3 atkvæða í skrif-
legri atkvæðagreiðslu, svo fram nái að ganga“
Þess má geta að nú í vor bauð enginn sig fram í
Skemmtinefnd
í 4.bekk Z í vetur var Halldór Narfi að flytja fyrirlest-
ur um Voltaire. Þá átti eftirfarandi samtal sér stað:
Haukur sögukennari: Halldór Narfi! Hvað átti Volta-
ire við þegar hann sagði að menn ættu að rækta garð-
inn sinn?
Löng þögn.
Halldór Narfi: Eh, átti hann ekki við að menn ættu
að stunda búskap?
Frá öndverðu hefur sú venja ríkt að að loknum vorpróf-
um haldi ö.bekkingar í einhvers konar ferðalag, oftast
með þau orð á vörum að tilgangurinn sé að styrkja
vináttuböndin er myndazt hafi á liðnum árum og að
létta sér upp eftir erfiðan vetur. Lengi vel nægði Island
íslenzkum Menntaskólanemum, en hin síðari ár hafa
þeir þótzt eiga brýn erindi að reka á sólarströndinni
Ibiza. Hefur hinum yngri nemum skólans oft leikið
hugur á að vita hver þau erindi kynnu að vera. Til
að gefa dæmi um skemmtan íslenzku unglinganna þyk-
ir rétt að nefna það, er nemendur eðlisfræðideildar I,
tóku sér fyrir hendur sl sumar. Hófst skemmtan þess-
ara unglinga venjulega í býtið hvern morgunn. Var
þá haldið niður til strandar þar sem and- og veraldleg-
ur leiðtogi hópsins stjórnaði aðgerðum. Piltur þessi
hafði þá sérstöðu að vera frönskumælandi, en ekki er
þess getið að sú fötlun hafi háð honum að ráði. Eftir
að gleðifólk þetta hafði buslað um stund fór leikur að
æsast og fötum að fækka. Olmuðust hnokkar þessir
og hnátur daglangt, unz að því kom að sómakærar
innfæddar húsmæður skökkuðu leikinn.
Á sama tíma og Augusto Pinochet hélt frjálsar kosn-
ingar í Chile var haldinn skólafundur í Menntaskólan-
um. Þar átti að afgreiða tillögu fjölmargra 6.bekkinga
um breytingar á stjórn íþróttamála í skólanum. Þegar
að kosning var þegar hafin og margir því gengnir af
fundi, lagði inspector fram frávísunartillögu og lagði
um leið til að hann skyldi skipa nefnd er fjalla skyldi
um „breytingar á stjórn íþróttamála“. Urðu ýmsir
hvumsa og þótti annarlegt að leggja fram frávísunartil-
lögu við tillögu er þegar væri farið að greiða atkvæði
um.
Skólafélagið og „Framtíðin“ hafa hvort um sig haft
þann sið að nefna skrifstofu sína „kompu“. Er ekki ráð
að taka upp ólíkt hljómmeira nafn og tala um kytru?
Nú er svo komið að dansskólar höfuðborgarinnar
leggja upp laupana, hver á eftir öðrum. Að sögn kunn-
ugra hafa hinir stöðugu danstímar í Menntaskólanum
orðið til þess að fáir hafa séð ástæðu til að kosta sig
í dansskóla. Aðspurður segir Haukur að ástæða þessar-
ar aukningar danstíma í Menntaskólanum sé sú stefna
að kynna mönnum flest það sem þeir ekki kunna fyr-
ir. Er nú búizt við að á vetri komanda verði tekin upp
tónlistarkennsla í leikflmi, leirkeragerð verði stunduð
í efnafræðitímum, og einnig standa vonir til að jarð-
fræðitímar geti nýtzt fyrir kennslu í félagsfræðum.
Útgefandi er sá maður sem skilur kornið frá hisminu - og prentar síðan hismið
Adlar Stevensen