Skólablaðið - 01.02.1989, Page 35
Frá kosningaskrifstofu Orra Haukssonar.
ins, deildum er oft hafa verið ómannaðar. í tónlistar-
deild náðu kosningu 3 nemar í 4.A og einnig kemur
ný[sjálf|kjörinn inspector instromentorum, Stefán Már
Magnússon úr þeim bekk. Til myndlistardeildar náðu
kjöri Sigríður Heimisdóttir, Eirún Sigurðardóttir og
Anna Jónsdóttir. I myndbandsnefnd náðu kjöri Sigurð-
ur Kjartansson, Ingvar Sverrisson, Bjarni Sigurðsson
og Júlíus Schopka. I fyrra mátti heita að annar hver
nemandi skólans væri í framboði til útvarpsráðs. Nú
bar svo við að aðeins fjórir gáfu kost á sér. Þar af þrír
3. bekkingar, Konráð Garðar Aðalmundsson, Sveinn
Zoga, og Guðný Isaksen auk Björns Birgissonar,
ð.bekk.
I fyrsta sinn frá því Birgir einn Armannsson, þá 3.
bekkingur, var kjörinn forseti Framtíðarinnar bárust
fleiri en eitt framboð til þessa embættis. Náði gjald-
keri félagsins, Orri Hauksson, kosningu með um 80
af hundraði atkvæða, en hinn góðkunni Kristinn
Tryggvi Þorleifsson náði rúmlega 11 % atkvæða.
Nokkra athygli vakti að um 5 % nemenda gerðu ekki
upp á milli frambjóðenda og skiluðu auðum seðli. I
stjórnarkjöri sama félags varð Guðmundur Steingríms-
son blaðamaður hlutskarpastur með 229 2/3 atkvæða.
Gjaldkeri var kjörinn Jón Ragnar Örnólfsson með 171
1/3 atkvæða og fyrsti meðstjórnandi Lilja Björk Krist-
insdóttir með 163 1/3. Annar meðstjórnandi verður svo
3.bekkingurinn Dagur Eggertsson, hann hlaut 110 at-
kvæði. Dögg Baldursdótttir hlaut 90 atkvæði. Gunnar
Gylfason var í framboði annað árið í röð en hafði ekki
erindi sem erfiði; hann hlaut 63 2/3 atkvæða. Niður-
stöðurnar geta vart annað en talizt sigur fyrir Guð-
mund Steingrímsson. Hann hlaut að vísu færri at-
kvæði en Orri Hauksson í fyrra og Auðunn Atlason
þar áður, en engu að síður ætti forsetastóllinn að vera
innan seilingar að ári. Jón Ragnar má einnig vel við
sinn hlut una. Þrátt fyrir að hafa hvorki ritað grein í
kosningablað það er dreift var um skólann, eða mætt
á framboðsfund fyrir kosningar (einhv. heyrt minnzt á
framboðsf. eftir kosningar?) náði hann öðru sæti.
Ýmsir piltar skólans áttu auðvelt með að dylja hrifn-
ingu sína yfir því að kvenmaður skyldi kjörin inspec-
tor scholæ. Hið firnaháa hlutfall auðra seðla sem kom
fram í inspectorkjöri verður líklega aðeins skýrt sem
einhverskonar andmæli við kveninspectorinn. Tæpt
var á ,,helgum tradisjónum“, „krosstré falla eins og
aðrir raftar", ,,o tempora o mores“ og saa videre.
Sá er þetta ritar hefur lengi þótzt vera ágætlega
íhaldssamur en getur engu að síður vart séð að alda-
langri sögu skólans sé mikil hætta búin þó nú hafi
kvenmaður náð kosningu. Ekki sízt þar sem á síðustu
11 árum hafa 4 stúlkukindur komizt í inspectorsstól-
inn. Honum hefur þvert á móti sýnzt að með því að
hafna kvenframbjóðanda eingöngu á grundvelli kyn-
ferðis séu menn komnir niður á sama plan og það fólk
er eyðir atkvæði sínu á stjórnmálaflokk vegna kynferð-
is og lítt útskýrðs „reynsluheims" frambjóðenda.
en enginn Magnús.
Hvar hafa dagar lífs þíns lit sínum glatað?
Jóhann Jónsson