Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1989, Síða 37

Skólablaðið - 01.02.1989, Síða 37
Er lífið Hann vaknar upp úr ljúfum draumi. Hann hafði dreymt, að hann væri staddur í leikfimisal. Hann stökk yfir hesta, sveiflaði sér í köðlum og fór margföld heljar- ®tökk. Allt þetta var svo létt, svo auðvelt. I enda salar- Uis stóðu nokkrar stúlkur og störðu á hann bergnumd- ar- Hann naut athyglinnar, og hnyklaði vöðvana svo- lítið. Já, nú áttar hann sig á því. Draumurinn á auðvit- að að minna hann á tímann sem hann á pantaðan í líkamsræktinni í kvöld. Hann hafði næstum verið bú- lI}n að gleyma honum. Hann fer fram úr, og í sturtu, eins og hann gerir alltaf á morgnana. Hann tekur sér Soðan tíma og lætur vatnið renna lengi niður vöðva- stæltan líkaman og ímyndar sér að hann sé að leika í gosdrykkjarauglýsingu. Loks lætur hann þvottinum |okið og þurrkar sér vel og lengi fyrir framan spegil- lan. Síðan blæs hann hárið og greiðir af kostgæfni. Hann er líka vanur að lesa Morgunblaðið á meðan hann snæðir morgunverðinn. Lesturinn tekur ekki |angan tíma, enda les hann bara myndasögurnar og ^þróttasíðuna. Annað kemur honum ekki við, póíitík °g annað slíkt sem hann hefur hvort sem aldrei þotnað r Þegar hann er ferðbúinn, stekkur hann upp í þýska sportbílinn og ekur af stað í vinnuna. Hann er rólegur yfirvegaður við aksturinn, allt óðagot er honum fjarri. Hann kveikir á útvarpinu, sem fyrir slysni er aUtaf stillt á Ríkisútvarpið. Það eru auglýsingar: „Ein- 'lagi afnotagjalda Ríkisútvarpsins er í dag“ „Eindagi afnotagjalda,“ hugsar hann með sér, „hvað er nú það?“. leikfimi ? Hann stoppar við gangbrautarljós. Börn með skólat- öskur á bakinu ganga yfir götuna í skjóli rauða ljóss- ins. Skyndilega slær niður í huga hans gömlum minn- ingum, óþægilegum minningum. Hann minnist þess tíma þegar hann var í skóla. Honum hafði aldrei geng- ið vel, hvorki innan skólaveggja né annars staðar. Það eina sem honum hafði fundist skemmtilegt í skóla var leikfimi. Þar hafði hann alltaf verið fremstur í flokki. Gula ljósið var farið að blikka svo hann spólaði af stað, svona til að losa um spennuna sem hann hafði snöggvast fundið fyrir. Hann fer að fikta í útvarpstæk- inu til þess að dreifa huganum. Þetta er dýrt og full- komið tæki. Að vísu hefur ekki tekist að læra almenni- lega á það. Táknin á sumum tökkunum eru honum framandi og notagildið því óljóst. En það skiptir svo sem ekki öllu máli. Hann fiktar bara þangað til hann fær sínu framgengt. Nú er hann næstum kominn á leið- arenda. Það eru engin bílastæði laus í næsta nágrenni við vinnustaðinn, svo hann verður að leggja bílnum langt frá. „Ég hef bara gott af því að ganga“ hugsar hann með sér þegar hann yfirgefur bílinn og röltir af stað. Framundan sér hann að búið er að grafa skurð þvert í gegnum gangstéttina. Hann tekur tilhlaup og stekkur fimlega yfir skurðinn. Að vísu hefur verið lögð göngubrú yfir skurðinn miðjan, „en hún er bara fyrir börn og gamalmenni“ hugsar hann, og röltir áfram á vit sinnar einföldu tilveru. Sem sagt lífið er leikfimi L.M Kæru vinir! Beztu óskir um gleðileg jól, gott og farsælt nýtt ár. Þakka liðið, Helgi og fjölskylda. Jólakveðja í Rikisútvarpinu 23.12.1988 (Ats. ritn. Taki þeir til sín sem eiga.)

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.