Skólablaðið - 01.02.1989, Page 39
Alt er í heiminum hverfult !
Um langa hríð hefur það verið regla að Menntaskól-
inn sigri, eða sé amk í fremstu röð, í innbyrðis keppni
íslenzku framhaldsskólanna. Iþróttamenn Mennta-
skólans hafa ætíð hlaupið hraðar en Verzlingar,
Menntaskólinn hefur sigrað eða næstum því sigrað í
spurningakeppni framhaldsskólanna, og bikarinn í
„Morfís“ er hartnær okkar þinglýsta eign. Félagslíf
Menntaskólans hefur ár hvert hafizt á því að Mennta-
skólinn hefur sigrað Verzlunarskólann í hlaupum og
ræðumennsku. Síðan hefur ræðuliðið unnið auðvelda
sigra á öðrum skólum, unz það hefur í úrslitum unnið
annan hvorn fjölbrautaskólanna ; Garðabæjar eða
Hamrahlíðar. En strax um haustið 1988 varð séð að
ekki yrði margt um fína drætti. Nýnemar vóru inn-
vígðir af vítaverðri linkind og þó tekizt hafi að merja
sigur á Verzlingum í krembrauðaáti og ræðumennsku
sáu hlauparar Menntaskólans einungis reykinn aftan
úr Verzlunarskólamönnum, og Þórir Jökull inspector
reið ekki feitum hesti í vélritunarkeppni við forseta
Verzlinga. (Skylt er þó að taka fram að í stúlknaflokki
hlupu ungmeyjar Menntaskólans mammonshnáturnar
af sér, eins og lög gera ráð fyrir). Ræðulið Menntaskól-
ans náði þeim einstæða árangri að falla úr keppni strax
í annari umferð „Morfís“, og þó sveitir Menntaskólans
á ýmsum öðrum vettvangi geti kvartað yfir reynslu-
leysi er ekki sama að segja um ræðumenn. Forseti og
gjaldkeri „Framtíðarinnar" voru í liðinu, ásamt ungum
og efnilegum nýnema.
Um skeið hafa nemendur framhaldsskólanna keppt
sín á milli í stærðfræði. Alla jafna hafa níu af tíu efstu
sætunum komið í hlut nema Menntaskólans. í ár voru
sigurvegar neðra stigs úr Harmahlíð, þá kom akur-
eyringur og þá náungi úr Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti. Sá er þetta ritar hefur ekki lyst á frekari upptaln-
ingu.
Sú var tíð að Skólablaðið var flaggskip frjórrar hugs-
unar innan íslenzku framhaldsskólanna. Vart þarf að
fjölyrða um hvert Skólablaðið er komið. Fáum dettur
í hug að skrifa í það og litlu fleiri lesa það.
Vissulega hafa margir sýnt þann árangur sem náðist
í vetur. Ekki tjóir þó að skella skuldinni eingöngu á
þá er hafa reynt að verja heiður skólans víða vega.
Ein helzta ástæða hrakfara vorra manna er sú að æ
stærri hópur manna telur sitt hlutverk í félagslífinu
eingöngu vera hlutverk gagnrýnandans. Slíkt þarf að
leiðrétta.
Og þó sumir segist sjá vísbendingar þess að ein-
hverjir séu að vakna er ljóst að Menntaskóli landsins
getur ekki látið bjóða sér svipaðar trakteringar næsta
vetur. Nemendur Menntaskólans verða að sína félags-
lífinu snefil af áhuga þannig að þeir er keppa fyrir
hönd hans sjái eitthvað annað en hálftóma sali og
hrópandi fjölbrautaskólamúg.
Eina siðferðisreglan sem nokkru sinni hefur gert vöxt
þróaðrar siðmenningar mögulegan var reglan um
frelsi einstaklingsins.
Friedrich A. von Hayek