Morgunblaðið - 03.05.2010, Qupperneq 2
2 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
BILIÐ milli „stóru“ liðanna og
þeirra „smærri“ í kvennafótbolt-
anum er greinilega að minnka ef
marka má úrslitaleik Vals og Fylkis
í deildabikarkeppni kvenna,
Lengjubikarnum, í Kórnum í gær.
Valur hafði betur, 2:0, skoruðu
fyrra markið í fyrri hálfleik og það
síðara með næstsíðustu spyrnu
leiksins. Valsliðið var sterkari að-
ilinn í leiknum og sigurinn verð-
skuldaður, en Fylkir lék vel og fékk
tvívegis gullið færi til að skora,
maður á móti markverði, en mis-
tókst.
„Ég er aldrei sáttur við að tapa.
Við lögðum leikinn þannig upp að
vera þéttar til baka og leyfa Val að
vera með boltann og sækja síðan
hratt á nokkrum leikmönnum. Það
gekk ágætlega og við fengum fín
færi sem við náðum ekki að klára,“
sagði Björn Kristinn Björnsson,
þjálfari Fylkis eftir leikinn.
„Stefnan er að sjálfsögðu sett á
það að taka allt sem er í boði í sum-
ar og þetta er fyrsta skrefið í því,“
sagði Katrín Jónsdóttir, fyrirliði
Vals eftir leikinn. Hún játaði þó að
leikurinn hefði hæglega getað end-
að öðruvísi. „Fylkir er með þrusu-
gott lið. Þær eru hættulegar fram á
við, sækja hratt á nokkrum leik-
mönnum og María bjargaði okkur
með því að loka á þær þegar þær
sluppu í gegn hjá okkur,“ sagði
Katrín.
Hún og Dóra María Lárusdóttir
voru sterkar á miðjunni og Pála
Marie Einarsdóttir örugg í vörninni
og María Björg Ágústsdóttir örugg
í markinu. Aðrar áttu fína spretti í
leiknum en ljóst er að Valur getur
leikið betur en liðið gerði í gær.
Hjá Fylki var Björg Björnsdóttir
frábær í markinu og varði meðal
annars vítaspyrnu undir lok leiks-
ins. Lidija Stojkanovic er gríð-
arlega sterk í vörninni og Anna
Björg Björnsdóttir var dugleg.
Annars lék liðið ágætlega, var
lengstum vel skipulagt og baráttan
var í góðu lagi.
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirliðar Katrín Jónsdóttir, fyrirliði Vals, og Laufey Björnsdóttir, fyrirliði Fylkis, í harðri baráttu í úrslitaleiknum í gær.
Bilið milli liða minnkar
Valur varð deildabikarmeistari kvenna Stefna ótrauðar að því að vinna allt í
sumar Fylkir lék vel og átti möguleika Stórleikur hjá Björk í markinu
Kórinn, deildabikar kvenna, Lengju-
bikar, úrslitaleikur, sunnudaginn 2.
maí 2009.
Skilyrði: Eins og þau gerast best í
Kórnum.
Skot: Valur 16 (6) – Fylkir 3 (1).
Horn: Valur 8 – Fylkir 3.
Lið Vals: (4-4-2) Mark: María
Björg Ágústsdóttir. Vörn: Embla
Grétarsdóttir, Pála Marie Ein-
arsdóttir, Málfríður E. Sigurð-
ardóttir, Thelma Björk Einarsdóttir.
Miðja: Rakel Logadóttir, Katrín
Jónsdóttir (Helga S. Jóhann-
esdóttir 89.), Dóra María Lár-
usdóttir, Hallbera Gísladóttir (Andr-
ea Ýr Gústavsdóttir 80.). Sókn:
Kristín Ýr Bjarnadóttir, Björk Gunn-
arsdóttir (Dagný Brynjarsdóttir
60.)
Lið Fylkis: (4-5-1) Mark: Björk
Björnsdóttir . Vörn: Tinna B. Berg-
þórsdóttir, Ragna B. Einarsdóttir,
Lidija Stojkanovic, Fjolla Shala
(Hanna María Jóhannsdóttir 89.).
Miðja: Hrafnhildur H. Eiríksdóttir
(Kristrún Kristinsdóttir 74.), Laufey
Björnsdóttir, Fjóla D. Friðriksdóttir,
Ruth Þ. Þórðardóttir, Anna B.
Björnsdóttir (Margrét Magnúsdóttir
88). Sókn: Íris Dóra Snorradóttir.
Dómari: Leiknir Ágústsson – von-
andi ekki hans besti leikur.
Áhorfendur: Tæplega 200.
Valur – Fylkir 2:0
„ÞETTA er bara frábært. Ég er búin að spila
ein 8 ár hérna í Svíþjóð og hef aldrei unnið
Umeå, þannig að þetta er mjög góð tilfinning,“
sagði Erla Steina Arnardóttir knattspyrnu-
kona sem lék óvænt í marki Kristianstad þegar
liðið vann 3:1 sigur á stórliði Umeå í sænsku
úrvalsdeildinni í gær. Til marks um styrkleika
Umeå komst liðið í undanúrslit Meist-
aradeildar Evrópu fyrir skömmu en liðið átti
litla möguleika í gær.
„Það var eiginlega ekkert að gera. Ég held
að það hafi komið eitt skot á mig, þegar þær
skoruðu, þannig að þetta var bara létt,“ sagði
Erla sem leikur vanalega sem miðvörður eða
varnartengiliður en var óhrædd við að taka við
markmannshlutverkinu eftir að eini markvörð-
ur liðsins fékk heilahristing í síðasta leik.
„Ég fékk að vita þetta á miðvikudaginn
þannig að ég er eiginlega búin að vera frekar
stressuð síðan þá. En síð-
ustu daga er ég búin að vera
á markmannsæfingum og
ég er búin að finna fyrir
miklum stuðningi frá liðs-
félögunum sem var mjög
gott,“ sagði Erla sem hefur
litla reynslu af því að standa
í marki.
„Ég prófaði þetta þegar
ég var lítil í 7-manna bolta.
Þá skiptumst við bara á að
vera í marki en ég hef aldrei fengið neina þjálf-
un í því. En ég spila bara þar sem Beta [El-
ísabet Gunnarsdóttir þjálfari] vill að ég spili.“
Margrét Lára Viðarsdóttir gerði þriðja
mark Kristianstad í leiknum úr vítaspyrnu og
lagði upp annað. Guðný Björk Óðinsdóttir var
einnig í liði Kristianstad. sindris@mbl.is
„Prófaði þetta í 7-manna bolta“
Erla Steina
Arnardóttir
CLEVELAND lagði Boston 101:93 í fyrsta
leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildar
NBA-deildarinnar í fyrrinótt en það lið sem
fyrr vinnur fjóra leiki kemst í úrslit Aust-
urdeildar. Cleveland var um tíma 11 stigum
undir en Mo Williams skoraði 10 stig í röð og
kom Cleveland aftur inn í leikinn. LeBron
James skoraði 35 stig fyrir Cleveland, tók sjö
fráköst og gaf sjö stoðsendingar.
Williams gerði sér lítið fyrir og tróð bolt-
anum í körfuna í hraðaupphlaupi og ætlaði
Paul Pierce að verja skotið frá hinum smá-
vaxna Williams sem er rétt um 1,80 m á hæð
en Pierce er um 2 m á hæð. „Ég áttaði mig á
því að ég var hátt yfir körfuhringnum með
boltann og ég lét bara vaða. Þetta tókst og
tilfinningin var góð, ég viðurkenni það alveg
að mér leið vel,“ sagði Williams en hann hef-
ur aldrei áður troðið í leik með Cleveland.
Rajon Rondo skoraði 27
stig, gaf 12 stoðsendingar
og tók sex fráköst í liði
Boston. Kevin Garnett
skoraði 18 stig fyrir Bost-
on.
James meiddur?
James glímir við verki í
hægri olnboga sem
læknar liðsins hafa ekki
náð að sjúkdómsgreina.
James tók ekki skot á körfuna fyrr en um 20
mínútur voru liðnar af leiknum. „Ég hugsaði
of mikið um olnbogann en ég get ekki notað
þetta sem afsökun. Ég hef verið betri í oln-
boganum en ég verð örugglega búinn að
gleyma þessu fyrir næsta leik á mánudag,“
sagði James.
Cleveland lagði Boston Celtics
LeBron
James
0:1 32. Dóra María lék uppmiðjan völlinn frá miðju og
renndi síðan boltanum inn á Krist-
ínu Ýr Bjarnadóttur. Hún tók bolt-
ann með sér, lagði hann fyrir vinstri
og skoraði með skoti úr miðjum ví-
tateignum.
0:2 90. Dómarinn bætti viðfjórum mínútum og þegar
rúmlega þrjár voru liðnar og Fylk-
ismenn lögðu allt í sóknina, náðu
Valsmenn að sækja snöggt og end-
aði það með því að Dagný Brynj-
arsdóttir var ein á miðjum vítat-
eignum og skoraði af öryggi.
I Gul spjöld:Lidija Stojkanovic (Fylki)
37. (brot), Freyr Alexandersson
(Valur) 37. (mótmæli), Tinna
Bjarndís Bergþórsdóttir (Fylki) 54.
(brot), Fjolla Shala (Fylki) 74. (óljós
ástæða),
I Rauð spjöld: Engin
Fylkisliðið var heppið að missa
ekki Lidiju Stojkanovic af velli á 37.
mínútu. Hún tagaði þá sóknarmann
Vals niður þegar hann var að sleppa
í gegn. Klárlega rautt spjald, en
dómarinn lét gult nægja.
Landsliðskonan Ásta Árnadótir,
sem ætlaði að leika með Val í sum-
ar, en hefur ákveðið að fara til Nor-
egs í sumar, fylgdist með úrslita-
leiknum og fékk gullpening um
hálsinn að leik loknum.
Þetta gerðist í
Kórnum
„ÞETTA er von-
andi bara fyrsti
titillinn af mörg-
um í sumar,“
sagði Freyr Al-
exandersson,
þjálfari kvenna-
liðs Vals eftir að
liðið tryggði sér
deildameist-
aratitilinn í gær.
„Við vorum
dálítið seinar í gang í dag enda vor-
um við að spila við gott lið og við
fundum ekki taktinn alveg strax.
Fylkir gerði það hins vegar. Við
höfum aldrei unnið Fylki stórt og
þær vörðust vel og við þurfum allt-
af að hafa fyrir hlutunum.
Mér fannst við samt alltaf vera
með þennan leik. Við áttum tíu skot
á markið en þær tvö, sluppu tvisvar
í gegn en María las þetta mjög vel,
en þegar staðan er bara 1:0 þá get-
ur allt gerst. Auðvitað hefði ég vilj-
að fá fleiri mörk og það er alveg
ljóst að við getum spilað miklu bet-
ur en við gerðum í dag. Samt sem
áður áttum við fína kafla sem
dugðu til að vinna gott lið Fylkis.
Er það ekki bara fínt að spila ekk-
ert sérstaklega vel og vinna samt?“
sagði Freyr.
Vonandi bara
fyrsti titillinn af
mörgum
Freyr
Alexandersson