Morgunblaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 5
Íþróttir 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010
Jamaíkumað-urinn Usain
Bolt virðist til alls
líklegur á þessu
keppnistímabili í
frjálsum íþróttum
en hann hóf tíma-
bilið af miklum
krafti í heimalandi
sínu um helgina
þar sem hann keppti í 200 metra
spretthlaupi og kom í mark á 19,56
sekúndum. Þetta er fjórði besti tími í
200 metra hlaupi frá upphafi og ljóst
að heimsmet Bolts frá því í Berlín í
fyrra, sem er 19,19 sekúndur, er í
mikilli hættu í sumar þegar Evr-
ópumeistaramótið í Barcelona fer
meðal annars fram.
Sigurður Ari Stefánsson átti sinnþátt í því að Elverum tókst að
tryggja sér bronsverðlaun í norsku
úrslitakeppninni í handknattleik á
laugardaginn. Sigurður Ari skoraði
þá fjögur mörk í 27:26 sigri á Öyestad
en Elverum var 12:14 undir í hálfleik.
Fyllingen tryggði sér gullverðlaunin
með sigri á Runar en Andri Stefan
gat ekki leikið með liðinu þar sem
hann er frá keppni með slitin kross-
bönd.
Einar Hólm-geirsson
gerði eitt mark
fyrir liðið sem
hann kveður í
vor, Grosswall-
stadt, þegar það
gerði 23:23 jafn-
tefli við Göpp-
ingen í þýsku 1.
deildinni í hand-
knattleik í gær. Sverre Jakobsson lék
einnig með Grosswallstadt og lét til
sín taka í vörninni. Grosswallstadt er
nú í 8. sæti deildarinnar en Göpp-
ingen er í því fimmta.
Spænski knattspyrnumaðurinnXavi, besti leikmaður síðasta
Evrópumóts landsliða, á á hættu að
missa af heimsmeistaramótinu í júní
vegna meiðsla sem hann glímir við.
Xavi er lykilmaður í spænska lands-
liðinu en einnig hjá Barcelona sem á í
harðri baráttu um Spánarmeist-
aratitilinn og má illa við því að missa
kappann. Þriggja sentimetra rifa er í
öðrum kálfa Xavi en hann hefur bitið
á jaxlinn í síðustu leikjum að sögn
Pep Guardiola þjálfara Börsunga.
LeBronJames
körfuknatt-
leiksmaður hjá
Cleveland vann
yfirburðasigur,
engum að óvör-
um, í kjörinu á
verðmætasta
leikmanni
NBA-
deildarinnar í gær. James hlaut 116
af 123 atkvæðum sem í boði voru og
hjó nærri meti Shaquille O’Neal sem
árið 2000 hlaut 120 af 121 atkvæði.
„Þetta er mikill heiður. Ég er hrærð-
ur yfir þessu,“ sagði James sem varð
tíundi leikmaðurinn til þess að hljóta
viðurkenninguna tvö ár í röð.
Spænski tennisleikarinn RafaelNadal jafnaði í gær met Andre
Agassi þegar hann landaði sínum 17
meistaratitli með því að sigra landa
sinn David Ferrer í úrslitum Rómar-
meistaramótsins, 7:5 og 6:2. Nadal er
aðeins 23 ára gamall og hefur því
nægan tíma til að bæta met Banda-
ríkjamannsins en Agassi var 34 ára
þegar hann vann sinn síðasta titil.
Inter hélt toppsætinu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu um
helgina með 2:0 útisigri á Lazio.
Roma hafði komist á toppinn með
sigri á Parma en hélt toppsætinu í
einn dag.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
SENNILEGA átti Aron Krist-
jánsson, þjálfari Hauka, drjúgan þátt
í að Valsmenn fengu möguleika á að
tryggja sér sigurinn. Eftir að Haukar
höfðu minnkað muninn í eitt mark,
21:20, þegar ein mínúta var eftir,
hófu Valsmenn sókn, þá tveimur leik-
mönnum færri. Haukar hreinlega
önduðu ofan í hálsmálið á leik-
mönnum Vals sem sennilega hafa eitt
andartak leitt hugann að lokamín-
útum leiksins á föstudaginn þegar
sigurinn gekk þeim úr greipum. Eins
og gefur að skilja gekk Valsmönnum
illa í sókninni
tveimur leikmönnum færri og allt
stefndi í að dæmd væri töf. Í has-
arnum á síðustu mínútunni mótmælti
Aron, þjálfari Hauka, heldur kröft-
uglega að mati dómaranna, og fékk
fyrir vikið gult spjald. Þar með fengu
Valsmenn að byrja sóknina upp á
nýtt, ef svo má segja, án þess að á þá
væri dæmd töf. Þetta nýttu Vals-
menn sér út í hörgul og Arnór Þór
Gunnarsson innsiglaði sigurinn með
22. marki liðsins 12 sekúndum fyrir
leikslok.
Tapið á föstudaginn var mikið áfall
fyrir leikmenn Vals. Þeir létu von-
brigðin ekki hafa áhrif á sig þegar
komið var út í leikinn í gær. Sigur var
þeim nauðsynlegur. Tap hefði þýtt að
Haukar væru komnir með tvo vinn-
inga og að minnsta kosti sjö fingur á
Íslandsbikarinn.
Leikmenn Vals mættu afar
ákveðnir til leiks. Þeir léku sína fínu
vörn áfram og líkt og áður áttu Hauk-
ar fá svör við henni né stórleik Hlyns
Morthens í marki Valsliðsins. Valur
komst í 5:0 áður en Haukar skoruðu
sitt fyrsta mark eftir 8 mínútur og 50
sekúndur.
Þótt Haukar næðu að minnka mun-
inn þá lánaðist þeim aldrei að jafna
metin í fyrri hálfleik. Í stöðunni 10:9
fyrir Val fengu Hafnfirðingar tvö
tækifæri til að jafna áður en Vals-
menn náðu að auka forskot sitt á nýj-
an leik.
Valur var þremur mörkum yfir í
hálfleik, 14:11. Lengst af síðari hálf-
leik voru Valsmenn sterkari. Haukar
voru miður sín. Þeim lánaðist ekki að
brjóta á bak aftur vörn Vals og mark-
vörð. Þegar 43 mínútur voru liðnar af
leiknum hafði Valur sex marka for-
skot, 20:14. Þá var sem Valsmenn
misstu flugið. Haukar náðu að loka
vörn sinni betur en áður og í fram-
haldinu að skora eitt og eitt mark.
Skyndilega var forskotið uppurið að
mestu og óvænt spenna hlaupin í leik-
inn. En að þessu sinni náðu Vals-
menn að halda sjó þótt litlu hafi mun-
að.
Áfram er járn í járn í
kapphlaupinu um titilinn
Gult spjald á þjálfara Hauka 20 sek. fyrir lok reyndist dýrt Varnarleikur Vals
veldur Haukum erfiðleikum Á ný missti Valur flugið Tvö mörk á 17 mínútum
Litlu munaði að Haukar endurtækju í
gær leikinn frá fyrstu viðureign sinn
við Valsmenn um Íslandsmeistaratit-
ilinn frá því á föstudaginn. Eftir að
hafa verið undir allan leikinn komu
Haukar sterkir inn í leikinn á enda-
sprettinum og höfðu nærri því jafnað
metin. Að þessu sinni lánaðist Vals-
mönnum að standast álagið og tryggja
sér sigur, 22:20, en litlu munaði að
Haukar næðu að jafna metin og krækja
í framlengingu.
Morgunblaðið/Kristinn
Í dauðafæri Orri Freyr Gíslason hefur snúið á vörn Hauka og er í þann mund að skora annað marka sinna í gær.
Vodafone-höllin við Hlíðarenda, úr-
slitakeppni Íslandsmóts karla í hand-
knattleik, N1-deildarinnar, annar leikur
sunnudaginn 2. maí 2010.
Gangur leiksins: 5:0, 5:3, 6:3, 7:6,
10:9, 11:10, 13:10, 14:11, 14:12, 16:12,
20:14, 21:15, 21:20, 22:20.
Mörk Vals: Arnór Þór Gunnarsson
6/3, Fannar Þór Friðgeirsson 6/1, Sig-
urður Eggertsson 3, Elvar Friðriksson
2, Orri Freyr Gíslason 2, Gunnar Ingi
Jóhannsson 1, Ingvar Árnason 1, Sig-
fús Páll Sigfússon 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 19 (þaraf
8 til mótherja), Ingvar Guðmundsson
1/1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson
11/5, Einar Örn Jónsson 2, Pétur Páls-
son 2, Björgvin Þór Hólmgeirsson 1,
Elías Már Halldórsson 1, Freyr Brynj-
arsson 1, Guðmundur Árni Ólafsson
1/1, Heimir Óli Heimisson 1.
Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 7
(þaraf 2 til mótherja). Birkir Ívar Guð-
mundsson 6/1 (þaraf 2 til mmótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svav-
ar Pétursson, mistækir.
Áhorfendur: 1.100.
Valur - Haukar 22:20
kjavíkur
ri í sundk-
Sundfélag
fa sundk-
eikurinn á
kur um tit-
kemmti-
KR betur,
gerði hvort
fyrir SKR
tefán Karl
stján Guðna-
den Te-
ku liðin vin-
G Dragor
b
8:2 og SH
tari í sundknattleik
Morgunblaðið/Kristinn
EIÐUR Smári Guðjohnsen leikur
sem kunnugt er með Tottenham í
Englandi. Engu að síður hefði hann
getað orðið franskur bikarmeistari í
gærkvöldi. Eiður er í láni frá Móna-
kó og liðið lék í gærkvöldi til úrslita
við PSG í frönsku bikarkeppninni.
PSG hafði betur 1:0 þannig að Eiður
Smári missti af þeim titli.
Eiður Smári lék með Mónakó í 64
liða úrslitum bikarsins og skoraði þá
í vítaspyrnukeppninni á móti Tours,
en hann kom ekkert við sögu í næstu
umferð þegar Mónakó sló Lyon út.
Mónakó hefur fimm sinnum orðið
bikarmeistari, síðast fyrir 19 árum,
en þetta var í áttunda sinn sem PSG
fagnar bikartitlinum. skuli@mbl.is
PSG bikar-
meistari í
Frakklandi