Morgunblaðið - 03.05.2010, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/Kristinn
UM helgina fór fram í Fossvogsdalnum árlegt
knattspyrnumót Víkings fyrir 7. flokk en mót-
ið hefur aldrei verið umfangsmeira.
Metfjöldi tók þátt í mótinu, 600 strákar léku
á baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Alls voru 60
lið sem léku í strákaflokknum.
Stelpuliðin léku í gær og þar voru 400 kepp-
endur frá 37 félögum.
Tilþrifin voru glæsileg hjá krökkunum á
nýjum gervigrasvelli þeirra Víkinga. Mótið
ber nafnið KFC-mótið en það á sér nokkuð
langa sögu sem spannar yfir tæplega tvo ára-
tugi.
Kristinn Ingvarsson og Haraldur Guð-
jónsson, ljósmyndarar Morgunblaðsins, voru í
Víkinni um helgina og tóku þessar myndir.
Fleiri myndir frá mótinu eru í myndasyrpu
sem finna má á íþróttavef mbl.is.
Flott tilþrif á KFC
fótboltamóti
Víkings í Fossvogi
8 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010