Morgunblaðið - 03.05.2010, Qupperneq 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MAÍ 2010
RAGNHEIÐUR Ragnarsdóttir úr KR og
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr SH sópuðu til
sín verðlaunum á alþjóðlegu móti í Braun-
schweig í Þýskalandi um helgina þar sem yfir
650 sundmenn voru saman komnir.
Ragnheiður vann til tvennra gullverðlauna,
í 100 metra og 50 metra skriðsundi, en Hrafn-
hildur vann sigur í 100 og 200 metra bringu-
sundi. Auk þess náði Hrafnhildur í silf-
urverðlaun í 50 metra bringusundi en þar atti
hún kappi við Evrópumeistarann Jane Schäf-
en og var aðeins 2/10 úr sekúndu á eftir
henni.
Hrafnhildur synti 50 metra sundið á 32,78
sekúndum, 100 metra sundið á 1:10,60 mínútu
og 200 metra sundið á 2:35,07 mínútum, og
setti hún mótsmet í 100 metra sundinu. Ragn-
heiður setti einnig mótsmet
í 100 metra skriðsundi þar
sem hún kom í mark á 56,72
sekúndum, og hún kom í
mark á 26,20 sekúndum í 50
metra sundinu.
Ingibjörg Kristín Jóns-
dóttir úr SH nældi sér svo í
bronsverðlaun í 100 metra
skriðsundi á 59,32 sek-
úndum.
Þetta er í 25. sinn sem
mótið í Braunschweig fer fram. Keppendur
þar eru flestir frá Þýskalandi en yngri iðk-
endur frá Rússlandi, Litháen, Póllandi, Dan-
mörku, Noregi og Íslandi voru einnig á meðal
þátttakenda. sindris@mbl.is
Sóttu gullverðlaun til Þýskalands
Ragnheiður
Ragnarsdóttir
RORY McIlroy frá Norður-Írlandi lék frá-
bært golf á lokadegi Quail Hollow meist-
aramótsins á PGA-mótaröðinni í gær.
McIlroy lék á 62 höggum eða 10 höggum und-
ir pari og er það vallarmet. Samtals var hann
á 15 höggum undir pari en Phil Mickelson frá
Bandaríkjunum varð annar á 11 höggum und-
ir pari. Þetta er fyrsti sigur hans á PGA-
mótaröðinni og fyrir sigurinn fékk hann um
150 milljónir kr. McIlroy verður 21 árs gamall
á fimmtudag. Hann er sá yngsti sem sigrar á
PGA-móti frá því að Tiger Woods sigraði á
sínu fyrsta móti árið 1996. McIlroy var fjór-
um höggum á eftir Billy Mayfair fyrir loka-
daginn.
McIlroy hefur ekki komist í gegnum nið-
urskurðinn á síðustu tveimur mótum, og þar á
meðal Mastersmótinu þar
sem hann lék á 74 og 77
höggum. Hann var á einu
höggi yfir pari eftir tvo
fyrstu keppnisdagana á
Quail Hollow.
„Ég var í mínum eigin
heimi og ég vissi ekki
hvort ég var 8, 9, eða 10
höggum undir pari. Ég
ætlaði mér að sigra og það
var það eina sem ég hugs-
aði um,“ sagði McIlroy sem hefur sigrað á
einu móti á Evrópumótaröðinni og einu á
PGA-mótaröðinni. Á þriggja ára atvinnuferli
hefur hann unnið sér inn um 800 milljónir kr.
í verðlaunafé. seth@mbl.is
Rory McIlroy sýndi snilldartakta
Rory
McIlroy
1:0 43. Jordao Diogo sendilanga fyrirgjöf frá vinstri
kantinum og á fjærstönginni var
Björgólfur Takefusa sem lagði bolt-
ann fyrir sig og skoraði af öryggi.
2:0 45. KR-ingar fengu horn-spyrnu í uppbótartíma
fyrri hálfleiks. Hana tók Óskar Örn
Hauksson sem sendi boltann á koll
Mark Rutgers sem skallaði knöttinn
í netið.
2:1 63. Kári Ársælsson skall-aði boltann í þverslá og rétt
inn fyrir marklínuna eftir góða fyr-
irgjöf frá hægri kantinum.
I Gul spjöld:Elfar Freyr (Breiðabliki) 15.
(brot).
Skúli Jón (KR) 16. (brot).
Jökull I. (Breiðabliki) 56. (brot).
Lars Ivar Moldskred (KR) 88. (töf).
I Rauð spjöld: Elfar Freyr (Breiðabliki) 77.
(annað gula spjald fyrir brot).
Guðmundur Kristjánsson og Al-
freð Finnbogason, báðir úr Breiða-
bliki, tóku út leikbann í leiknum og
voru því meðal áhorfenda í stúk-
unni.
Guðmundur Pétursson Bliki, sem
áður var á mála hjá KR en skipti yf-
ir í Kópavog eftir mikið japl, jaml og
fuður, var með þeim Guðmundi og
Alfreð í stúkunni. Guðmundur
meiddist á hné í leik gegn KR 16.
apríl þegar liðin mættust í riðla-
keppni Lengjubikarsins. Ólíklegt er
að hann geti spilað gegn FH í meist-
arakeppninni annað kvöld.
Rafn Andri Haraldsson, nýliði hjá
Blikum, fór meiddur af velli á 20.
mínútu leiksins eftir að hafa fengið
högg á annað hnéð. Hann kvaðst í
samtali við Morgunblaðið ekki vita
hve alvarleg meiðslin væru en það
kæmi í ljós við skoðun í dag.
Þetta gerðist
í Kórnum
Eftir Sindra Sverrisson
sindris@mbl.is
OFANRITAÐAN langar helst að
nýta þessa grein í lofræðu um frá-
bæra spilamennsku Breiðabliks eftir
úrslitaleik Lengjubikars karla í
knattspyrnu á laugardag. Það er
hins vegar ekki alveg við hæfi í ljósi
þess að liðið tapaði þar 2:1 fyrir KR.
Málið er bara að meistarabraginn
vantaði algjörlega hjá Vest-
urbæingum að þessu sinni, líkt og á
löngum köflum í undanúrslita-
leiknum gegn Val á dögunum.
„Það er útaf fyrir sig jákvætt að
spila illa en vinna samt leikinn. En í
dag hringdu viðvörunarbjöllur og
það er alveg ljóst að við getum ekki
farið í gegnum leiki á einhverju
skokki,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari
KR vel meðvitaður um andleysi
sinna manna í leiknum og þá stað-
reynd að þeir þurfa að koma sér í
mun betri gír áður en alvaran hefst
11. maí. Íslandsmeistaraefni þurfa
að spila betri knattspyrnu.
„Breiðablik er að vísu með mjög
gott og vel spilandi lið sem getur
farið langt í þessu Íslandsmóti en við
getum ekki látið fara svona í gegn-
um okkur hvað eftir annað,“ bætti
Logi við og það eru orð að sönnu.
Blikar léku án þriggja sterkra
byrjunarliðsmanna en virtust ekki
hafa hugmynd um þá staðreynd.
Þeir voru grimmir og sókndjarfir frá
fyrstu mínútu leiksins, spiluðu
hreinlega eins og þeir sem valdið
hafa. Fimm mínútna kafli undir lok
fyrri hálfleiksins reyndist hins vegar
þeirra banabiti en þá gerðu KR-
ingar bæði mörk sín. Seinni hálfleik-
urinn var eign þeirra grænklæddu
sem minnkuðu muninn og komust
oft nálægt því að jafna metin, jafnvel
þó þeir misstu miðvörðinn efnilega
Elfar Frey Helgason af velli með
rautt spjald.
Stærsta hlutverkið í góðri spila-
mennsku Blika spilaði nýr leik-
maður hjá þeim, Jökull I. Elísabet-
arson. Sá var eins og kóngur á
miðjunni allan leikinn gegn uppeld-
isfélagi sínu, dreifði spilinu af stakri
snilld, og þó erfitt sé að slá því föstu
nú á vormánuðum virðast Blikar
hafa náð sér í „feitan bita“ í þessum
26 ára gamla leikmanni. Annars
voru þeir fáir, ef einhverjir, sem
spiluðu ekki vel hjá Blikum á laug-
ardag þó uppskeran hafi verið rýr.
KR er komið með öflugan og há-
væran markvörð í Norðmanninum
Lars Ivar Moldskred og hann stóð
sig vel. Annars er lítið hægt að hrósa
KR eftir þennan leik en ljóst er að
gæðin eru nægilega mikil í leik-
mannahópnum til þess að það komi
ekki að sök.
Morgunblaðið/hag
Sterkur Kantmaðurinn Óskar Örn Hauksson úr KR nýtir hér styrk sinn til að varna því að Blikinn Haukur Baldvinsson nái til knattarins.
Enginn meistarabragur
KR Lengjubikarmeistari eftir nauman sigur á Blikum Viðvörunarbjöllur
klingja hjá Íslandsmeistarakandídötunum Blikar komnir með kóng á miðjuna
Kórinn, deildabikar karla, Lengju-
bikar, úrslitaleikur, laugardaginn 1.
maí 2009.
Skilyrði: Logn í Kórnum, ágæt lýs-
ing og gott gervigras.
Skot: KR 10 (7) – Breiðablik 11 (4).
Horn: KR 5 – Breiðablik 10.
Lið KR: (4-4-2) Mark: Lars Ivar
Moldskred. Vörn: Skúli Jón Frið-
geirsson, Baldur Sigurðsson, Mark
Rutgers, Jordao Diogo. Miðja:
Gunnar Örn Jónsson (Ingólfur Sig-
urðsson 86.), Bjarni Guðjónsson,
Viktor Bjarki Arnarsson, Óskar Örn
Hauksson (Guðmundur Reynir
Gunnarsson 61.). Sókn: Björgólfur
Takefusa (Gunnar Kristjánsson 71.),
Kjartan Henry Finnbogason.
(skiptingar)
Lið Breiðabliks: (4-3-3) Mark:
Ingvar Þór Kale. Vörn: Arnór
Sveinn Aðalsteinsson, Elfar Freyr
Helgason, Kári Ársælsson, Kristinn
Jónsson. Miðja: Jökull I. Elísabet-
arson, Finnur Orri Margeirsson, Ol-
geir Sigurgeirsson (Högni Helgason
89.). Sókn: Haukur Baldvinsson
(Rannver Sigurjónsson 81.), Krist-
inn Steindórsson, Rafn Andri Har-
aldsson (Andri Rafn Yeoman 20.).
Dómari: Þóroddur Hjaltalín jr. – 2.
Áhorfendur: Um 250.
KR – Breiðablik 2:1
„MÉR fannst við
töluvert betra
liðið á vellinum
en þeir verð-
skulduðu þennan
sigur, þeir skor-
uðu fleiri mörk.
Við verðum bara
að svekkja okkur
yfir þessum
tveimur mörkum
á fimm mínútum
í fyrri hálfleik. Þau voru það sem
skildi að,“ sagði Jökull I. Elísabet-
arson, miðvallarleikmaður Blika,
sem var að öðrum ólöstuðum maður
leiksins þrátt fyrir tap gegn KR í
úrslitaleik Lengjubikarsins á laug-
ardag. Jökull gekk í raðir Breiða-
bliks í vetur en hann er uppalinn
KR-ingur og lék á síðustu leiktíð
með Víkingi R.
„Ég finn mig vel í þessu liði og
finnst það mjög vel spilandi. Ég
gæti ekki óskað mér betra liðs til að
vera hjá, það hentar mér mjög vel
og vonandi henta ég því líka.“
Vorum tölu-
vert betri
Jökull I.
Elísabetarson