Nýr Stormur - 24.09.1965, Page 2

Nýr Stormur - 24.09.1965, Page 2
2 %miur FÖSTUDAGUR 24. september 1965 RANGSNÚINN Framhald af bls i issjóð og sveitarsjóði. Síðan notar hin opinbera fjármála- stjórn, ríkisstjórnin og sveit arstjórnirnar þessa sjóði til að mæta hinum sameiginlegu þörfum þegnanna. Sá, sem bregzt þeirri skyldu að greiða gjald sitt í þessa sjóði ,er að taka til sín fjár- muni, sem honum ekki ber. Magnús Var hann neyddur til að veita skattsvikurum fyrirgefningu? Hann er á grófara máli að fremja þjófnað, sem er refsi. verður á sama hátt og refsað er fyrir rán og innbrotsþjófn- aði. Skattsvik og smygl eru sams konar afbrot. Ai þessu er ljóst, að baeði skattsvik og smygl ganga út á þáð, að hlunnfara ríkissjóð um réttmætar tekjur. Afbrot þessi eru því í eðli sínu þau sömu. Löngum hefur það verið lát ið viðgangast átölulaust, að farmenn hefðu með sér til lands eitthvert góss til eigin nota án þess að greiða af því tolla. Slík framkvæmd laga er sanngjjjrn, ef varningurinn er einungis ætlaður til nota flytj andans eða fjölskyldu hans. Ef hins vegar á að nota góss þetta til sölu á innlendum markaði, er málið komið í allt annan farveg því að þá er fjár gróðinn orðinn aðalforsendan fyrir innflutningnum, Ekki virðist ástæða til að amast við því, þótt ferðamenn kaupi sér í utanferðum ýmsa persónu- lega muni án þess að greiða af þeim toll. Annað væri of ströng og í rauninni ófram- kvæmanleg beiting tolllaga. Þegar menn á hinu leitinu hegða sér þannig að gerð er tilraun til innflutnings á eftir- • sóttum vörutegundum, t.d. á- fengi og tóbaki i stórum stíl til almennrar sölu án tollaf- greiðslu, er fégræðgin orðin höfuðmarkmiðið. Þeirri hátt- semi er eðlilegt að refsa eftir því, sem lög standa til. Með slí.kum smyglurum hafa menn ekki samúð. Skattsvikin eru margfalt stór kostlegri en smyglbrotin. Það getur að vísu munað um, ef hátollavörrur eru flutt REFSIVÖNDUR ar inn án tollafgreiðslu í veru- legum mæli. Svo var málum t.d. farið í sambandi við smygltilraunina í Langjjjkli, þar sem verðmætin voru talin nema 1.2 milljónum króna. Enginn getur því haft á móti að réttvísin taki skörulega á þeim málum, eins og raunin hefur á orðið. En hér má segja- Maður, líttu þér nær. Áhugi almennings beinist fyrst og fremst í þá átt að upp ræta toll- og skattsvik vegna þess, að undankoma eigna frá lögmætri skattgreiðslu í opin- bera sjóði leiðir til þess, að skattbyrðin verður þeim mun þyngri á herðum hinna heiðar legu og löghlýðnu borgara. Það er að vísu nokkuð alvar- legt íhugunarefni, þegar gerð er tilrau ntil að smygla í land með einu skipi ólöglegum varningi, er nemur að sölu- verðmæti yfir eina milljón króna. ,,En hvað er ein millj- ón nú á dögum?“ sagði Sigurð ur heitinn Berndsen einu sinni í útvarpsviðtali. Og enn má spyrja: Hvað er ein millj- ón nú á dögum, ef tekið er tillit til þeirra stjarnfræði- legu upphæða, er sviknar eru undan skatti árlega á íslandi? Skatsvikin eru erfið vandamál Nú ber það ð játa, að skatt svik eru érfið vandamal til úr lausnar' ggfíiji |i|]o^gt fyr- irbrigði. Hér á landi hefur þetta mál aldrei verið tekið föstum tökum fyrr en núver- andi ríkisstjórn gerði tilraun Gunnar Hann varð aS flýja úr ráðherra- stóli að kröfu skattsvikaranna. til að leysa þau með stofnun skattaeftirlitsinr eða skatta- lögreglunnar svonefndu. Höfuðástæðan til stofnunar skattalögreglu mun hafa ver- ið hin slælega innheimta sölu skattsins. Söluskatturinn er, eins og kunnugt er, ein af að- altekjulindum ríkissjóðs og að nokkru sveitarfélaganna, en þa ufá í sinn hlut nokkurn hluta skattsins. Atvinnufyrir- tækin eiga að leggja skattinn sem nú er 7V2% á seldar vör ur og þjónustu. Þetta gera þau samvizkusamlega. Það bregzt ekki. En þau reyna eft ir megni og gera í ríkum mæli að draga svo úr bókfærðri veltu að skil á skattinum til ríkissjóðs verði sem allra minnst. Söluskatturinn hefur því reynzt óhlutvöndum fjár- aflamönnum kærkomið tæki- færi til að selja neytendum vörur og þjónustu hærra verði í skjóli skatsins, en bara skila honum ekki til rétts eig anda. Skattþjófnaðurinn er hvergi augljósari.. Hræðslan við skattalögregl- una. Til að stemma stigu við sölu skattssvikum og herða á skatt eftirlitinu að öðru leyti, lét ríkisstjórnin Alþingi lögfesta ákvæðin um embætti ríkis- skattstjóra og skattrannsókna stjóra. Voru þessi lagaákvæði vissulega gflugasta viðleitni ríkisvaldsins, sem gerð hefur verið hérlendis til að fletta ofan af skattsvikum og fyrir byggja þau. Svo vel vildi til, að í hin tvö áðurnefndu emb- ætti völdust tveir ungir vel menntaðir og harðduglegir menn þeir Sigurbjörn Þorkels son og Guðmundur Skapta- son. Var þegar ljóst við skip un þeirra og fyrstu embættis störf, að enginn bilbugur yrði á þeim að framkvæma þau lög réttlátlega og dyggilega, er þeim hafði verið falin for- sjá á. Þessir embættismenn munu fljótléga hafá’kómizt að ráun um, að við hverja skóflu- stungu í starfi komu þeir nið- ur á rotið fjármálalíf, sem um vafið var svikum og prettum, röngum skattaskýrslum og röngum vottorðum til yfir- valda. Ríkisskattstjóri og skattarannsóknarstjóri voru til þess albúnir að moka flór inn og komast niður á fast, þannig, að einhverrar heið- ríkju hefði mátt vænta í ís- lenzku athafna- og fjármála- lífi. En þegar málum er hér komið, eiga sér stað undar. legir hlutir. Skattsvikararnir sem voru í ratsjá lögreglunn- ar, áttu „sín sambönd á æðri stöðum“. Þessi „sambönd“ leiddu til þess, að æðstu yf- irmenn skattalögreglunnar báðu hana að fara hóglega í vinnugleði sinni. Þegar þess- um háttsettu yfirmönnum var bent á hin skýlausu laga- i ákvæði varðandi störf skatta lögreglunnar, fór skattamála- ráðherra þá einfjjldu en óskyn samlegu leið að láta Alþingi breyta ’ Vunum um fram- kvæmd skattalaga. Ber Magnús ábyrgðina? Um þetta leyti urðu manna skipti í sæti fjárrr>"1aráðherra. Sá fráfarandi, Gunnar Thor- oddsen, var að eigin sögn orð- inn þreyttur á erilsömum I stört'um i s:ðr3tiiðin átján ár, I og óskaði að hverfa aðrólegra Upphafsorð Framhald af bls. 1 ir þættir úr æviminingum merkra stjórnmálamanna, sem m.a. eru til þess fallnir að varpa ljósi á þá atburði^ sem daglega eru að gerast, en eiga auðvitað allir rætur í fortíðinni. í blaðinu verða flutt drög að stjórnmála- sögu íslands, sem enn hefur ekki verið rituð í heild. Mannkynssaga verður birt í dagblaðsformi, en slíkt lesefni hefur hvarvetna vakið mikla athygli og verið vinsælt. Sagan um Bör Börson verður flutt í mynda- sögu. Vonast er til, að hún falli í góðan jarðveg, eins og ávallt fyrr. í blaði þessu verður tekinn upp sá gamli og góði siður að birta kjallaragreinar um ýmis málefni, inn- lend og erlend. Er mönnum sérstaklega bent á þennan vettvang, ef þeim liggur eitthvað mikilvægt á hjarta, sem erindi á til almenings. Palladómar verða fluttir um þekkta þjóðfélagsborgara í léttum tón. Birtir verða þættir af bellibrögðum ýmissa manna, sem hafa það að iðju sini að féfletta einstaklinga og samfélagið. Þessir þættir verða fluttir undir nafninu „Fílistear". Nöfn verða ekki birt, en almennt ættu þau að þekkjast. Þáttur verður af erlendum vettvangi, og væntanlega verða síðar birtir ýmsir aðrir smærri þættir. Eins og áður segir, tekur blaðið með þakklæti öllum ábendingum um efni og frágang. Það er von útgefanda að geta byggt upp þróttmikið, eftirsótt og áreiðanlegt vikublað, sem fái tiltrú almennings fyrir vandaðan mál- flutning. Þessu marki geta útgefendur ekki náð nema með góðri samvinnu við lesendur. Þar sem blaðið flytur talsvert af samfelldu efni, sem missir meira eða minna leyti gildi sitt, ef lesendur fá ekki öll blöðin, er mönnum bent á að gerast áskrifend- ur að blaðinu, og verður það þá sent í pósti á útgáfu. degi. -Þe'tta blað ber nafnið NÝR STORMUR. Útgefendur vænta þess að blaðið kafni ekki undir nafninu. Það verði þess umkomið að blása fersku lofti inn í þá lognmollu, sem nú virðist einkennandi fyrir íslenzkt þjóðlíf. En þessi lognmolla leggst með sívaxandi þunga á þegnana og varnar þeim sýn í hinum tryllta dansi í kringum gullkálfinn, dansi, sem færist æ nær bjarg- brúninni, en enginn fær séð, hvað við tekur. Útgefendum er ljóst, að takist vel með útgáfu þessa blaðs, þá muni það verða litið hornauga af ýmsum þeim, sem vinna í leynum og byggja starfsemi sína bak við tjöldin. Fyrir þeim er sannleikurinn bannorð. Fyrir þeim er sá einn sekur, sem tapar. Þeir lifa og starfa á bak við tjöld sýndarmennskunnar Ef blaðinu tekst að svipta þessum tjöldum til hliðar, þótt ekki verði nema að litlu leyti, er tilganginum náð. starfi sem yfirmaður íslenzka sendiráðsins í Kaupmanna- höfn. Við starfi fjármálaráðherra tók hinn skagfirzki alþingis- maður, Magnús Jónsson, síð- ast bankastjóri Búnaðarbank- ans. Magnús er fjölhæfur hæfileikamaður, vel greindur reglusamur og umfram allt tápmikill dugnaðarmaður. Með fullri virðingu fyrir hæfi leikum Gunnars Thoroddsen bjuggust menn almennt við, að nýtt loft, nýr stormur, mundi str". 'n inn í íslenzka fjármálastjórn. Vel má vera, að svo verði. Slíkt vona menn af heilum huga. En ekki verður sagt, að fyrsta ganga Magnúsar í hinu virðulega embætti hafi verið i f”’1" samrfp- bær vonir sem menn höfðu tengt við hann sem fjármálaráðherra. Fyrsta verk hans var sem sagt að knýja fram áðurgreindar breytingar á skattalögunum. Þessar breytingar eru í því fólgnar, að ,"'ð er algerlega refsilaust að telja rangt fram til skatts og brjóta drengskap- arheit með undirritun skatta framtals. Þótt skattlögregla geti sannað og hafi sannað, að skattþegn hafi framkvæmt skattsvik, er það refsilaust með því eina skilyrði, að ’-att þegn hafi á ný talið rétt fram fyrir 1. marz 1966. Vera má, að þessi frestur verði fram- lengdur. Lagaákvæðin í þess um efnum eru því nú þannig að það er allt í lagi að reyna að gefa rangt upp til skatts. Komist skattsvikin ekki upp, eru þau fullkomnuð. Fari hins vegar svo illa, að upp komist, er sagt við skattþegn- Framhald á 6. síðu.

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.