Nýr Stormur - 24.09.1965, Page 4

Nýr Stormur - 24.09.1965, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 24- september 1965 MOLDVIÐRI UM LANDBÚNADINN Landbúnaðurinn er og hefur ávallt verið grundvallaratvinnuvegur þjóð- arinnar. Röng efnahagsmálastefna síðastliðin 25 ár er orsök fyrir erfiðleik- um landbúnaðarins. Búin eru rekin með tapi og allar líkur fyrir samdrætti, sem skapa mun skort á landbúnaðarvörum til innanlandsneyzlu innan ör- fárra ára. Dýrtíðarófreskjan er afkvæmi misviturra stjórnmálamanna. BÓNDI ER BÚSTOLPI BÚ ER LANDSTÓLPI ÞVÍ SKAL HANN VIRÐUR VEL Það mál sem er efst á baugi í íslenzku þjóðlífi í dag, er landbúnaðarmálin. Um fátt er meira rætt manna á milli en verðlagningu landbúnaðaraf- urða. Æsingarnar út af þess- um málum rísa svo hátt, að rætt er og ritað að leggja beri landbúnað niður og flytja inn landbúnaðarvörur. Heimskir menn hrópa óhróður um bændur og samtök þeirra og heill stjórnmálaflokkur virð- ist helzt eygja það sér til bjargar að skapa tortryggni í garð bænda, þótt sjálfur eigi hann mikla sök á, hvernig komið er. Við enga stétt hefur óða- verðbólgan komið eins harka- lega og bændur. Aðrar stéttir hafa í nauð- vörn sinni getað gripið til ó- hemju- og óvenjumikillar yf- irvinnu, og sumar verðlagt vinnu sína langt yfir gerða samninga. Engu slíku hafa bændur kost á. Þeirra kaup hefur verið lögbundið og sína vinnu hafa þeir ekki getað selt hærra. Um framleiðslu- aukningu hefur ekki verið að ræða án þess tilkostnaðar sem gleypt hefur allar tekjur. Bóndinn getur ekki framleitt meiri afurðir, nema með auk inni ræktun, stærri bústofni og meiri vinnu og hana verð ur hann að ' lupa. Ræktunin kostar óhemju fé. Aukinn bústofn krefst mik- illar fjárfestingar. Penings- hús og hlöður og annað slíkt gleypa upphæðir, sem hljóða upp á mörg hundruð þúsund krónur. Lán þau, er bændum eru ætluð til þessara fram- kvæmda, bera hærri vexti en tíðkast í nágrannalöndunum, Þau eru einnig miklu lægri Sigurður Sigurðsson, búnaðarmálasijórL og auk þess til helmingi skemri tíma eða meir. Mis_ muninn verða bændur svo að fá lánað á stuttum víxlum, ef þeir eiga ekki sjálfir féð, sem sjaldgæft er. Hinar stífu af- borganir og háu vextir gera svo það að verkum, að bónd- inn er í sífelldri fjárþröng og verður að skera allt við negl- ur sér í búskapnum, sem þýð ir, að hann verður að spara eyrinn, en henda krónunni. 1 framkvæmdum sínum verður hann að kaupa vinnu-1 kraft, sem oft er yfirborgað- ur, því fáir fást til að vinna fyrir umsamið kaup. Sjálfur hefur hann enga| möguleika á að koma við slík; um brögðum sjálfum sér til; bjargar, því að laun hans eru ákveðin af opinberum aðilum. Það er því augljóst mál, að ' bændur geta engri vörn kom-1 ið fyrir sig hver um sig, eins og einstaklingar annarra stétta. Ekkert land er talið byggi- legt og hefur aldrei verið, ef ekki er hægt að framleiða mat væli fyrir fólkið, sem þar býr. Að vísu eru mörg lönd ekki sjálfum sér næg í framleiðslu matvæla, og er það fyrst og fremst sökum þess, að löndin eru ekki nógu sfór til að brauðfæða íbúa sína. Þau framleiða þá aðrar vörur, sem þau láta í skiptum fyrir mat- væli. Ekkert land í heimi flyt ur inn matvæli, svo nokkru nemi, sem það getur framleitt sjálft. Hér eru hins vegar uppi raddir um að leggja nið ur elzta atvinnuveg þjóðarinn- ar, og þann sem hún hefur lif að á í yfir þúsund ár. Að vísu tekur enginn vitiborinn mað ur undir þennan söng en skiln ingsleysi ráðamanna þjóðar- innar undanfarna áratugi á grundvallarþýðingu landbún- aðarins er það að kenna, að hagkerfi þjóðarinnar riðar vegna erfiðleika landbúnað- arins. Fjármunum þjóðarinnar er varið í brask til einnar nætur en heilli stétt, sem vinnur störf sem samkvæmt eðli sínu gefa ávöxt á löngum tíma, er gert svo erfitt fyrir með með rekstrarfjárskorti, stutt um lánum .ir”m vöxtum og hátollum á rekstrarvörur sín ar ,að ástæða er til að ætla, að bændur gefist upp í stór- um stíl. Ef litið er yfir farinn veg síðastliðin tuttugu og fimm ár er ljóst, að framfarir í land- búnaði hafa orðið geysilegar, eigi síður en í öðrum atvinnu greinum. Þetta sýnir að bænd ur hafa ekki síður en aðrar þjóðfélagsstéttir, þekkt vitjun artíma sinn. Og ef litið er hlutlægum augum á þessi mál er augljóst, að þeim fram- kvæmdum hefur ekki verið tjaldað til einnar nætur. Það starf, sem unnið hefur verið í sveitum landsins á þessum tíma sýnir okkur einn ig það, að það er ekki unnið einni kynslóð, heldur munu komandi kynslóðir njóta þess í ríkum mæli. Þetta starf hef ur heldur ekki verið unnið í von um skjótan og fljóttek- inn gróða, eins og viljað hef ur brenna við í flestum öðrum atvinnuvegum okkar. Verzlun mestu lausafjármunamyndun, sem gengur úr sér á tiltölu- lega skömmum tíma, bæði vegna slits og tækniframfara enda afskriftir miðaðar við það. Ræktun jarðar er hins vegar framkvæmdir sem vara um langa framtíð, svo langa, að barnabarnabörnin okkar hafa af þeim fyllstu not. Þann ig er það starf, sem þarna er unnið, starf framtíðarinnar, og þjóðinni ber að meta það samkvæmt því. Og þá kemur spurningin: er það gert? Marg ir mundu vafalaust óska þess, að unnt væri að svara spurn- ingunni jákvætt og víst er, að ekki myndi sumum stjórn- málamönnum okkar verða skotaskuld úr því. Þeir eru því vanastir að meta hlutina í orði en ekki á borði. Þeim er að vísu nokkur vorkunn, því að þeir eiga sökina á því ástandi, sem nú ríkir í þess- um málum, og er þá enginn flokkur undanskilinn. En því miður verður að svara þessari spurningu neikvætt. Forysta bænda er í höndum manna, sem eru annað hvort stjórn- málamenn að atvinnu, eða þá í nánum tengslum við þá og hlýta ráðum þeirra nauðug- ir viljugir. Svikulir starfsmenn. Það hefur stundum komið fyrir, að svikulir starfsmenn hafa beinlínis rænt frá Heyvinna á björtum sumardegi er unaðsleg. fyrirtækjum, sem þeir hafa unnið hjá. Það hefur og kom ið fyrir, að hinir eiginlegu húsbændur og eigendur hafa orðið að víkja fyrir svikurun- um. Þeir hafa setið eftir með sárt ennið og óbættan skað- ann og nagað sig í handarbök in fyrir trúgirni sína. Á svip aðan hátt hefur farið fyrir bændum og viðskiptamönnum þeirra við sjávarsíðuna. Þeir fengu tunguliprum loddurum lykilvöldin að húsinu og eru svo sjálfir á götunni. Engu skal um það spáð, hvort unnt verður að ná þeim lyklum aft ur, en skaðinn er skeður og hann verður ekki bættur. Þá eignaaukningu, sem orð ið hefur af vinnusemi og heil brigðum viðskiptaháttum, ber að virða, Þær hundruð, ef ekki þúsundir milljóna, sem liggja faldar í erlendum bönk um ber að finna og skila þeim þjóðinni aftur. Þeim hundruð- um milljóna, sem stolið er af þjóðinni með skattsvikum ár lega, verður að skila með rent um og renturentum. Ein af or sökum verðbólgunnar eru skattsvikin og söluskattsþjófn aðurinn fyrr og síðar. Skattpíning almennings af völdum þeirra hefur kallað á hærra kaupgjald og þar af leiðandi hærra verðlag og svo koll af kolli. Og sviknu skatt arnir eru víða sjáanlegir, þótt meiri hluti þeirra sé falinn. Við sjáum verzlunar- og í- búðarhallir manna með verka mannaskatta blasa hvarvetna við, og þar er ekkert skorið við nögl. Við vitum um óhófs eyðslu og lúxuslifnað manna, sem samkvæmt framtali sínu hafa varla salt i grautinn. Skemmti- og innkaupaferðir nar til útlanda eru ekki á færi manna, sem ekki eru aflögu færir um að greiða venjuleg vinnukonuútsvör. Bændur hafa a.m.k. ekki ráð á slíku, enda mun titillinn bóndi sjald séður á farþegalistum flugfé- laganna og skipafélaganna. Aftur á móti gera ráðherrar víðreist, nema vera kynni landbúnaðarráðherrann, sem telur sig hafa öðrum hnöpp- um að hneppa. Eyðslunni og sukkinu verður að vísu ekki skilað aftur, en það ætti að vera hægt að koma í veg fyr- ir áframhald þess. En það mun áreiðanlega kosta átök, en áður en þau verða, er þrúg andi almenningsálit eina vörn in gegn ósómaum, Misheppnað val. Verkamönnum og alþýðu- stéttunum við sjávarsíðuna hefur mistekizt val á forystu mönnum sínum, svo sem dæm in sanna. Þeir hafa leitt þess ar stéttir út í hverja ófæruna á fætur annarri með skamm- sýni sinni g yfirborðs- mennsku. Verðbólguófreskj- an hefur verið á hælum þeirra, en þeir hafa ekki látið sig það neinu skipta. Þeir hafa att verkalýðnum út 1 tilgangslaus verkföll og hróp að síðan um sigra, sem eftir nokkra daga var snúið upp í megnasta ósigur. Um raun- verulegar kjarabætur hefur minna verið hirt. Bændastéttinni hefur einn- ig mistekizt sitt val. Fulltrúar bænda á Alþingi, sem fæstir eru bændur sjálfir, hafa gleymt því hlutverki, sem bændur fólu þeim, jafnskjótt og þeir voru komnir inn úr dyrum Alþingis. Þeir virtust hafa ótal úrræði til að leysa vandann, er þeir ræddu við kjósendur sína, en um leið og þeir stigu inn í þingsalina, voru þeir komnir á kaf í hringdansinn kringum gullkálfinn. Hvér hinna sex tíu þingmanna virðast vera greindir og gegnir menn, hver í sínu lagi, en um leið og þeir koma saman, virðast þeir missa ráð og rænu. Auður, völd og metorð virð Framhald á 5. síðu.

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.