Nýr Stormur


Nýr Stormur - 02.09.1966, Page 7

Nýr Stormur - 02.09.1966, Page 7
FÖSTUDAGUR 2. sept. 196G ^Í/ormur 7 Eimskipafélag íslands hf. — Framh. af bls. 3. bæði þar í landi og hér heima. Birtust um þetta nokkrar greinar i „Nationaltidende.“ Svaraði Nielsen þeim aödrótt unum sem þar höfðu verið bornar fram í sama blaði hinn 1. júní 1915. í svari sínu seg ir hann svo: „Enginn íslendingur, hvorki stjórnendur félagsins né ein stakir menn, höfðu látið nokkra ósk í ljósi við mig, um að málað yrði yfir flöggin. Það var ég einn, framkvæmd arstjóri félagsins, sem skip- aði þannig fyrir. Ástæðan til þess var sú, að Gullfoss var hið fyrzta skip, er til íslands hefur komið svo, að það var smíðað fyrir íslenzkt fé ein- göngu. Fyrirtækið var svo al- gjörlega þjóðlegt, að hver maður, jafnt ríkur sem fátæk ur, hefur lagt á sig þungar byrðar og sýnt hina mestu ó- sérplægni í þessu máli. Það hefði því verið næsta óvið- feldið að koma með varúðar- merkin og „Danmark" málað á skipshliðina, þegar fyrsta skipið kom til íslands. Önnur ástæða mín var sú, að varúðarmerkin gera það að verkum, að skipið sýnist minna, en það í raun og veru er. En ég vildi auðvitað, að þetta snotra skip liti eins fallega út og unnt væri, er það kæmi heim til sín. Fólk tók Gullfossi alls staðar með fögnuði, en allt var það laust við pólitískar æsingar." Áður en Gullfoss fór aft- ur frá íslandi voru merkin máluð á hann á ný. Emil Nielsen andaðist í. Kaupmannahöfn 18. maí 1947. Við fráfall hans átti ís- land, ekki siður en Danmörk, á bak að sjá einum af sín- um beztu sonum. Guðmundur Vilhjálmsson Hinn 1. júní 1930 lét Emil Nielsen af starfi sem fram- kvæmdarstjóri félagsins. — Hafði hann á árinu 1927 lýst því yfir við félagsstjórnina, að hann óskaði að láta af störfum vegna heilsubrests og annara ástæðna. Varð það að samkomulagi að hann gegndi starfLnu áfram til þess tíma. Við starfi hans tók Guð- mundur Vilhjálmsson. Var hann fæddur að Undirvegg í Kelduhverfi í Þingeyjarsýslu 11. júní 1891. Um 14 ára skeið starfaði hann hjá Kaupfélagi Þingeyinga á Húsavík og næstu 15 árin dvaldist hann að mestu erlendis sem starfs maður Sambands íslenzkra samvinnufélaga, fyrstu árin í skrifstofu Sambandsins í Kaupmannahöfn. Á heims- styrjaldarárunum 1914—1918 fluttist Guðmundur til New York og annaðist þar inn- kaup á erlendum vörum fyr- ir Sambandið og sölu á út- flutningsvörum til USA. — Dvaldist Guðmundur í USA um þriggja ára skeið og að stríðinu loknu þegar viöskipt in hófust á ný í fyrri farveg, setti Guðmundur á stofn skrifstofu fyrir SÍS í Edin- borg í Skotlandi og starfaði þar, þangað til hann tókst á hendur framkvæmdastjórn Eimskipafélagsins. Því starfi gegndi hann í rúma þrjá ára tugi, eða á tímabili sem mesta atvinnubylting gerðist á ís- landi frá þvi land byggðist. Tímabilið 1930—1939 var' mjög erfitt. Heimskreppan var skollin á með fátækt og atvinnuleysi. Og svo braust síðari heimsstyrjöldin út sem kostaði íslendinga mörg mannslif og mörg skip. Sú saga er öllum kunn. Að styrjöldinni lokinni hóf ust miklar framkvæmdir hjá Eimskipafélaginu í sambandi við endurnýjun skipaflotans. Ný og fullkomnari skip leystu hin gömlu af, og tæknilegar framfarir sem orðið höfðu á styrjaldarárunum notaðar af fremstá megni. Keyptar voru vinnuvélar til notkunar við lestun og losun skipa og hafa þær sparað margt handtakið. Þannig hélst þróunarsaga fé lagsins áfram í tíð Guðmund-- ar Vilhjálmssonar. Fyrir störr hans stendur Eimskipafélag íslands h.f. og þjóðin öll í mikilli þakkarskuld við hann að leiðarlokum, en hann and aðist hinn 26. sept. 1965. Óttarr Möller Þriðji framkvæmdarstjóri Eimskipafélagsins tók við störfum hinn 1. júní 1962. — í KILI SKAL KJÖRVIÐUR iðnIsýninoin IÐNSYNINGIN 1966 Opin fyrir kaupsýslumenn kl. 9—14 og almenning kl. 14—23 alla daga. Kaupstefnan allan daglnn. < Veitingar á staffnum AÖgangseyrir 40 kr. fyrir fulloröna, 20 kr. fyrir börn. Silfurmerki fylgir hverjum aögöngumiða. Barnagæzla frá kl. 17—20. Sérstakur strætisvagn allan daginn á heilum og hálfum tímum frá Kalk- ofnsvegi. K0MIÐ SK0ÐIÐ K A U P I 0 ........................................................................................................................................................................................ •■■■■■ ■■■■•■ •«■■■•■»■« »■■• ■■»■»» ■»•■•'■■■ ■■•!■■■■»£»! einbeitti sér að því að „byggja upp sósíalistiskt ríki“ í Ghana kom hann gjaldeyrisvarasjóð unum fyrir kattarnef og kom ríkisútgjöldunum upp í næst- um 50 milljarða króna. Skref fyrir skref eyðilagði hann hin ar lýðræðislegu þjóðstofnanír Nkrumah hélt því fram að hann sjálfur og flokkur hans væri „persónugerfingur fólks- ins“ í landinu. Við kosningarnar árið 1960 lét hann óaldarflokka gera árásir á samkomustaði stjórn arandstöðunnar. Með þessum og öðrum álíka aðferðum, tókst flokki hans að fá hvorki meira né minna en 98% af atkvæðum. 1964 hafði hann bannað alla andstöðu og nú fékk flokkur hans 99% at- kvæða, að því er ríkisstjórn hans tilkynnti. Nkruma var nú kosinn flokksformaður ævilangt. Einræðisherrann kom þvl til leiðar, að pressan á Ghana var sem bergmál af Pravda og tók sér vald til að ógilda hvern þann dóm, er honum líkaði ekki sjálfum. Hann þvingaði háskólann til að fylgja línu flokksins og inn- limaði fagfélögin í flokkinn. Ein milljón stúlkna og drengja, allt ofan í sex ára aidur, voru skipulögð í félags- sxap, sem bar nafnið „Ungir landnemar“ eftir sovéskri fyr irmynd. Ghana varð aldrei alveg komúnistiskt, en Nkruma fór ekki leynt með það, að það væri markmið hans að byggja upp „vísindalegan sósíal- isma“. Hann fór heldur ekki leynt með það, að hann liti á sjálfan sig, sem hvorki meira eða minna, en Lenin vorra daga. Það var siður hans að túlka og breita kenn- ingum Karls Marxs, eins og honum hentaði og Afríku — á sama hátt og Lenin túlkaði Marxismann, svo hann hent- aði aðstæðunum til byltingar 1 Rússlandi. tfr leirgryf jiumi upp í Iiásætið. Ef Nkruma trúði því ekki sjálfur að hann værl guð, þá reyndi hann að minnsta kosti að sannfæra umhverfi sitt um það. — í fúlustu alvöru. Hann tók sér titilinn „Osagyefoí*. sem þýðir lausnari eða frels- ari. Mynd hans var slegin á myntir, prentuð á peninga- seðla og frimerki; götur, torg, verksmiðjur, skólar og þvl. var skírt eftir honum. Það voru notaðar yfir tuttugu milljónir króna til að reisa af honum geysistórar mynda- styttur í Accra og öðrum borg um. Meðan þegnar hans stóðu í biðröðum til að kaupa mat- væli á himin háu verði, eyddi hann óhemju upphæðum í gríðarmiklar og skrautlegar byggingar. Ein þessara bygg- inga var State House, feikn- mikið hótel ,með geysilegum ráðstefnusal. Það kostaði nærri þúsund milljónir og áttl að hýsa fulltrúana í ráði Afríkuríkjanna. Það var að- eins einu sinni notað. Maðurinn sem kom landi sínu á 'vonarvöl, er einn ein- kennilegasti persónuleiki, sem Afríka hefir nokkru sinni fóstrað. Nkruma er sambland af töfrandi persónuleika og hrottamenni. Hann er mjög vel gefinn og vel að sér í sögu og hugsunarhætti vestrænna manna. Samt sem áður hefir hann verið að grúska æ meir við juju, Vestur-Afríkanskan svartagaldur. Lífvarðarforingi hans var jujuprestur. Hann vaV mælskasti formæl andi í Afríku fyrir „sósialis- tiskum hreinleika" og samt sem áður tókst honum að safna sér einkafjársjóðum, sem nema um 1000 mllljónum króna. Hann lifði í fursta- legum óhófslifnaði, með tvo opinbera þjóðhöfðingjabú- staði útbúnum sundhöll, eigin dýragarði, fiskasafni og leik- húsi. Nkruma tilheyrir Nzima- ættbálknum og er fæddur ár- ið 1909 í Nkroful fátæklegu þorpi með leirkofum. Hann byrjaði að taka þátt í stjórn- málum, er hann kom heim ár- ið 1947 frá Bandarikjunum og Englandi eftir 12 ára erfitt nám — og auðmýkingar. Hann gekk strax í þjóðern- issinnaðan flokk, sem var stjórnað að enskum hætti. Nkruma fór þó fljótt sínar eigin lelðir og stofnaði „þjóð- arflokk", sem á stuttum tima vann mikið fylgi, vegna þess að hann krafðist sjálfstæðis landsins strax. Nkruma olli brezku nýlendu stjórninni mikíls höfuðverkj- ar og var fangelsaður af Eng- lendingum. Flokkur hans vann meirihluta árið 1951, meðan hann sat í fangelsi. Enska stjórnin átti ekki annars úrkosta en láta hann lausann, svo að hann gæti orð ið leiðtogi nýrrar stjórnar. Þegar Ghana fékk sjálfstséði árið 1957, varð Nkruma for- sætisráðherra og síðar forseti þegar landið varð lýðveldi. Sviklii loforð. Til að byrja með, hélt hann herfylkinu, Emmanúal Kotoka hlutleysisstefnu að mestu. En árið 1961 fór hann í heimsókn ir til Kína, Sovét, og Austur- Evrópu. Nkruma fékk konung legar móttökur á hverjum kommúnistiska höfuðstaðnum á fætur öðrum og þegar hann kom heim, þrumaði hann um allt það er hann hafði séð og talaði opinskátt um að færa Ghana inn í hinn „vísinda- lega sósíalisma". Hann hélt þó áfram að taka á móti hjálp frá USA og Vestur-Evrópu, meðal annars til þess að byggja mikla uppistöðu við Volta-fljótið. Samt sem áður notaði hann hvert tækifæri til að hella úr sorpfötu af skammaryrðum yfir Ameríku menn, sem hann kallaði til dæmis „fasistiska heimsveldis sinna og nýlendukúgara“. Um þúsund sérfræðingar komu frá Kína, Sovétríkjun- um og fylgiríkjum þeirra, til að aðstoða við að byggja upp ríkisreknar . verksmiðjur og landbúnað. Það komu líka læknar og kennarar. Og kin- verskir leíðbeinendur þjálf- uðu með mikilli leynd 2—300 Afrikana frá öðrum löndum ásamt fjölda Ghanabúa i skæruhernaði, vopnameðferð og þvílíku. Þetta fór fram í herbúðum á bak við bambus- orirðinear og menn vita að bæði Rússar og Austur-Þjóð- verjar hjálpuðu tíl. Þotu flugvöllurinn í Tamale lúthlutun á undanförnum ár-

x

Nýr Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.